Bridge.

 

Þessi færsla er fyrir briddsara.  Wink

Eitt eftirminnilegasta spil sem ég hef spilað, var á móti tveimur stelpum, 12-13 ára.

Eftir nokkra sagnhringi, enduðum ég og makker minn í 6 spöðum á mína hendi í austur.

SUÐUR doblar.  Spilið byrjar og ég sé strax að ég á öll spilin, nema hvað mig vantar laufaás og spaðadrottningu.  Við makker minn erum með 9 spaða.  

Jahá.... svona ung stelpa doblar ekki nema hún eigi allt sem mig vantar.  LoL  Þetta spil liggur svo augljóst fyrir að ég er að springa úr hlátri.

Ég spila laufi og NORÐUR drepur á laufaás.  Ó !  Blush      Aha... LoL .... ég hlæ enn meira inni í mér.       Nú er algerlega borðleggjandi að doblarinn á spaðadrottningu, annaðhvort þriðju eða fjórðu. 

Þá er að vinda sér í verkefnið...... spila spaðagosa og síðan tíu... og svína.  Skítlétt !

Þá gerðist hið óvænta.........  NORÐUR drap á spaðadrottningu.  Frown  Norður átti báða slagina.  Blush

Þær léku laglega á mig.  Suður doblaði með nákvæmlega ekkert....... sem varð til þess að ég spilaði spilinu niður.  Hefði engin doblað, þá tek ég tvo hæstu í trompi og drottningin dettur í.

Maður skyldi aldrei vanmeta unga fólkið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég er búin að vinna í meira en 20 ár á vinnustað sem hefur Brigde í hámæli, mér hefur enn ekki tekist að læra þetta en einhverntímann kunni ég vist. Afhverju er ég þá að kommenta á þetta hjá þér ?  Við erum vinir og vinir hafa áhuga á öllu sem vinirnir gera

Ragnheiður , 5.2.2008 kl. 20:27

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei Ægir, ég var sko ekki búin að taka spaðaásinn.  Það þurfti ekki.... það var "alveg ljóst" hvar spaðadrottningin var, fannst mér. 

Ragnheiður gullmoli. 

Anna Einarsdóttir, 5.2.2008 kl. 20:45

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég man líka eftir því, þegar maður var að byrja og kunni næstum ekkert annað en að telja vínarpunktana, þá varð maður fyrir þessarri slembilukku.  Vönu spilararnir réðu í sagnir sem voru sagðar í fullkomnu kunnáttuleysi.  Já, þá var oft gaman, núna er þetta enn meira gaman.  Eigum við ekki að fara taka eina bertu bráðum?

Spila reyndar standard í dag, þ.e.a.s. þessi tvö skipti á ári sem ég tek í spilTower BridgeBlackjack

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.2.2008 kl. 21:05

4 Smámynd: Hugarfluga

Þú talar tungum. How do you like Iceland?

Hugarfluga, 5.2.2008 kl. 21:16

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Að finnast eða halda í Bridge, gengur ekki Anna mín. Eitt lauf....

Halldór Egill Guðnason, 5.2.2008 kl. 21:34

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ingibjörg.... við tökum rúbertu við næsta tækifæri.

Halldór.... stelpunni ungu "fannst" rétt að dobla mig og "hélt" að hin stelpan ætti kannski spil.    Það gekk nú aldeilis fínt hjá henni.  1

Anna Einarsdóttir, 5.2.2008 kl. 21:59

7 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

úfffffff þessi færsla er eins og latina fyrir mér, skil hvorki upp né niður

Svanhildur Karlsdóttir, 5.2.2008 kl. 22:18

8 identicon

Já, einmitt!  Skil ekki orð af því sem þú ert að segja svo ég bið bara að heilsa í bili......

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 22:53

9 Smámynd: kloi

Ég dobla hjartað....  ......Úps bridge ekki fyrir mig. Annars er ég nokkuð góður í Svarta Pétri og Lúdó og Stefán .....   hí, hí hí .....Lúdó og Stefán ...góður.

kloi, 5.2.2008 kl. 23:49

10 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Kannast við þetta. Sjálfur er ég svona slarkfær spilari og ég hef stundum tekið eftir því að þessir "góðu" dobla stundum á ekkert. Þá kemur gamla póker-sálfræðin í góðar þarfir

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.2.2008 kl. 00:41

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Má eiginlega segja að ég hafi lent í þessu í kvöld (bridge á þriðjud.kvöldum á Reyðó) Ég spilaði 4 sp. í suður og austur doblaði en ég svínaði trompinu í vestur. Stóð slétt á hættunni

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.2.2008 kl. 00:47

12 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Pass

Gunnar Helgi Eysteinsson, 6.2.2008 kl. 06:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband