Saxbauti.

.

Árið 1975 voru til 4 áleggstegundir í nærliggjandi verslun við átthaga mína;

Hangikjöt, rúllupylsa, spægipylsa og malakoff.

Það er dálítið merkilegt hvernig maður safnar upplýsingum í gagnabankann (heilann).  Stundum man maður alls ekki eitthvað sem ætti að "munast".  Svo getur maður vitað eitthvað sem gagnast engum.

Ég veit t.d. að Saxbauti í kvartdós kostaði heilar fjögurhundruð og eitthvað árið 1975 á meðan heildós af fiskibollum kostaði hundrað og eitthvað.

Nauðsynlegar upplýsingar ?

Aftur á móti hef ég ekki hugmynd um af hverju þeir hættu að framleiða Saxbauta.  GetLost

Og hverjir voru ÞEIR ?  Ora eða Kea ?

Svo man ég að skilagjald á gosflösku var 5 krónur.  Til hvers man ég það ?

Eitthvert árið kostaði appelsínflaska 13 krónur innihaldið en 18 krónur með gleri.

Og við afgreiðslu sagði maður;  "Ætlarðu að taka hana með þér eða drekka hana hér"?

Allar ofangreindar upphæðir eru í gömlum krónum.

.

180px-Isl_Krone

.

Ef ég væri tölva, væri ég löngu úrelt.  Pouty

 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

... en þræl skemmtileg.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.4.2008 kl. 13:43

2 Smámynd: Ragnheiður

Mér fannst saxbautinn ferlega góður..namm namm....en hann var óguðlega dýr !

Ragnheiður , 13.4.2008 kl. 14:00

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

saxbauti tilheyrði alltaf útilegum - óguðlega góður!

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 14:44

4 identicon

Ég man eftir því þegar appelssín í gleri,lakkrísrör og lítið prinspóló kostaði 20 krónur.Hahahahahahaha.Saxbautinn var snilld

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 15:54

5 Smámynd: Brattur

... en hvað kostaði Cream Soda og Vallas...hmm...??? vona að Saxbautinn komi aftur á markaðinn... væri gaman að skella honum í kastarólu og drekka svo maltöl með...

Brattur, 13.4.2008 kl. 17:13

6 identicon

Held að saxbautinn hafi verið frá KEA. og var bæði í1/4 og 1/1 ds. ef ég man rétt ásamt ýmsu öðru kjötmeti,og þetta var bara mjög gott.En talandi um PRINCE POLO þá er það svindl,það er ekkert líkt því sem það var áður. Og munið þið eftir gamla góða vanillukexinu?? Kveðja,, þið eruð öll soldið skemmtileg.Ein í felum.

sæa (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 17:19

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Aldrei sá ég heildós af Saxbauta og líklega er skýringin sú að sveitafólkið hefði aldrei eytt svo miklu í Saxbautadós, á einu bretti.   

Anna Einarsdóttir, 13.4.2008 kl. 17:30

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Cream Soda og Vallas?

Í hvaða sjoppu ólst Brattur upp?

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 18:11

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Hrönn.  Brattur er óvenjulegt karldýr. 

Anna Einarsdóttir, 13.4.2008 kl. 18:44

10 Smámynd: Brattur

... mér skilst að það hafa verið nautakjöt í þessum Saxbauta... ég heyrði í markaðsstjóra Norðlenska (sem framleiðir m.a. vörur undir KEA merkinu) og spurði af hverju þeir hefðu hætt að framleiða Saxbautann... hann sagði það hafa verið vegna lítillar eftirspurnar... síðasti maður sem spurði um Saxbautann hjá þeim hringdi árið 1999 í þá... sá er talinn sérlundaður í meira lagi... hann er að finna HÉR

Hrönn, ég verslaði mest hjá Randver Sæm. og í Mummabúð... en mjög sjaldan hjá Steina Hólm...

Brattur, 13.4.2008 kl. 18:52

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já ég sé af hverju hann er talinn sérlundaður.....

Hrönn Sigurðardóttir, 13.4.2008 kl. 22:01

12 Smámynd: Gunnar Níelsson

Það sem vantar í þesssa umfjöllun um Saxbauta er að hann var í lauksósu Ég tók þátt í því að selja þessa munaðarvöru.  Einnig var boðið uppá kjöt í karrý.  Saxbauti og Vallash eða Saxbauti og Læm.

Snæddi Saxbauta fyrir líklega 4 árum drakk heimalagað rauðvín með. 

Dásamlegt

Sérlundaður ?  Neibb, fer bara í það far sem hentar hverju sinni

Gunnar Níelsson, 13.4.2008 kl. 22:14

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Niðursoðnar sérlundir - fengust þær líka hjá KEA?

Hrönn Sigurðardóttir, 14.4.2008 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 342860

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband