Vindmylla föður míns.

 

Faðir minn heitinn, hafði mikið hugvit.  Hann var bifvélavirki í sveit og það komu tímar, þar sem hann þurfti að finna sér verkefni.  Oft sátum við saman við eldhúsborðið og hugsuðum hvað hann gæti gert til að afla tekna yfir háveturinn, þegar lítið var að gera á verkstæðinu.  Meðal þess sem hann bjó til í hjáverkum voru dráttarkúlur, snúrustaurar, blómastandar, garðhlið og garðslöngur.

Fyrir um 30 árum datt honum í hug að smíða sér vindrafstöð.  Rafmagn var dýrt á þessum árum og verkstæðið notaði mikið rafmagn.  Næstu 10 árin,  eyddi hann stórum hluta frítíma síns í að byggja vindmylluna.  Jarðhýsi byggði hann utan um rafalinn.  Blöðin á vindmyllunni voru mjög stór.  Ef ég hef skilið rétt er öxull látinn snúa rafal sem getur framleitt rafmagn.  Vindmyllan hans pabba gat framleitt 12kW.  Vindmyllan var tilbúin, að mig minnir, árið 1988.

.

Vindmylla

 

.

Vindmylla I 

.

Vegna óstöðugleika í veðri, hafa vindmyllur yfirleitt hemlunarbúnað til að blöðin snúist ekki of hratt.  Slíkur búnaður var á þessari vindmyllu.  Ég sá föður minn nokkrum sinnum hlaupa upp mastrið til að stöðva vindmylluna ef þess þurfti.  Afar misvindasamt er á þessum æskuslóðum mínum.  Áttir geta breyst á örskotsstundu.  Það gerðist einn daginn með þeim afleiðingum að vindmyllan fór að snúast öfugt, náðist ekki að stöðva hana og spaðarnir fóru af. 

Pabbi fékk nýja spaða en þegar þeir fóru af í annað sinn, alllöngu síðar, gafst hann upp.  Áratugs vinna farin í súginn.  Draumurinn búinn.  Hann var hnípinn þann daginn.

Í dag getur pabbi vonandi kíkt niður af himnum á dóttur sem er ennþá stolt af honum fyrir eljuna og hugvitið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Falleg færsla, ég man eftir vindmyllunni

Hann var mikill pælari hann pabbi þinn. En segðu mér, hvaða barn er á myndinni?

Kristjana Bjarnadóttir, 4.5.2008 kl. 22:17

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Frumburðurinn, sonur minn, er á myndinni.      Myndin er tekin árið 1988.

Anna Einarsdóttir, 4.5.2008 kl. 22:20

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þeir eru góðir, svona pabbar..

Hrönn Sigurðardóttir, 4.5.2008 kl. 22:33

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Falleg og frábær saga og svo talandi fyrir þessa kynslóð, sem kunni að bjarga sér í hverju sem var. Hann hefur sannarlega verið á undan sinni samtíð hann pabbi þinn.  Það er akkúrat á svona fullhugum, sem við þurfum á að halda í dag. 

Jón Steinar Ragnarsson, 4.5.2008 kl. 22:41

5 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Mér er bæði faðir þinn og smíði vindmyllunnar minnistæð.  Þær voru djúpar pælingarnar sem lagst var í og eitthvað lagði ég í þetta með upplýsingasöfnun frá útlandinu.  Líklega gagnaðist það ekki neitt.  Fjármagnið ekki mikið en því meiri elja og hugvit.  Oft átti maður erindi til Einars í Holti með sprungið dekk, brotið púströr eða annað álíka eftir þrælaferðir á vondum vegum Snæfellsnessins.  Um hann pabba þinn geymi ég góðu minningarnar.  Hinu er ég búinn að gleyma.

Sveinn Ingi Lýðsson, 4.5.2008 kl. 22:43

6 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Er mastrið og vindrafstöðin enn uppistandandi, gaman að varðveita svona hluti sem part af sögunni.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 4.5.2008 kl. 23:29

7 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Faðir þinn hefur verið framsýnn maður og á undan sinni samtíð. Hugvitið mikið.

Auðvitað er hann stoltur af sinni dóttur, hvernig má annað vera? 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 4.5.2008 kl. 23:52

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

fíla svona grúskara. takk fyrir söguna

Brjánn Guðjónsson, 5.5.2008 kl. 06:27

9 identicon

Sakni sakn... til ykkar...

 Hver mundi ekki vera stoltur af þér eða að eiga þig að.... Þú ert yndisleg!

 Væri til í að fá þessa mynd uppá vegg hjá okkur.. hann er svo sætur á henni...

 :D:D:D Hlakkar til að sjá ykkur :D:D:D

 Kristín Sif .

Kristín (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 10:38

10 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Mikill hugvitsmaður...karl faðir þinn....... ég og Bóndinn erum mikið að spá í svona vindmyllu..... ég er allveg sannfærð að við getum framleitt nægilegt rafmagn í sveitinni.... allavega svona til heimabrúks........ erum í sambandi við frændur vora í Danaveldi.......

Fanney Björg Karlsdóttir, 5.5.2008 kl. 14:21

11 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Æ þetta er falleg færsla hjá þér Anna mín,greinilega góðar minningar um góðan föður Sætur guttinn þinn á myndinni

Katrín Ósk Adamsdóttir, 5.5.2008 kl. 20:47

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk öll fyrir. 

Þorsteinn Valur.  Nei, því miður stendur mastrið ekki uppi ennþá.  Nýjir eigendur.  Þau nota þó jarðhýsið sem stóð undir vindmyllunni sem hesthús, að því er mér skilst.

Anna Einarsdóttir, 6.5.2008 kl. 20:25

13 identicon

ég sakna þess að vera ungur, maður var svo sætur á ungabarnsaldri;) hehehe

flott færsla mamma mín;)

Bestu kv úr borginni Brynjar.

Brynjar Berg (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 342812

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband