Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.

 

Í gær fjárfesti ég í nammipoka fyrir kisu, svokölluðu kisunammi.  Þegar heim kom, gaf ég henni einn mola og hún smjattaði vel og lengi á honum.  Eftir kvöldmat ætlaði ég svo að lauma öðrum mola að henni en fann þá ekki pokann.  Hér leituðu allir dyrum og dyngjum að kisunamminu en það var engu líkara en jörðin hefði gleypt það.

Eftir langa mæðu fann ég pokasnifsi á gólfinu.  Afganginn af pokanum utan af kisunamminu.  Mér var eiginlega létt að jörðin skyldi ekki hafa gleypt nammið, heldur kisa sjálf.  Tounge  Líklega er henni illt í maganum í dag.

.

------------------------------------------------

Ég var búin að nefna við ykkur afleysingavinnu mína í ávaxtakælinum þessa dagana.  Það sem kemur mér mest á óvart við þá vinnu, sem annars er mjög skemmtileg, er hversu ótrúlega margar tegundir eru til af ávöxtum og grænmeti.  Pinch   Ég þekki varla helminginn af þessu.

.

vitamin_jan07 

.

Í einhverri auglýsingunni sagði;  Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.

Með það í huga, góni ég á alla torkennilega ávexti sem ég kann ekki nafnið á en er þó engu nær. 

Auglýsingar eru bull !

.

------------------------------------------------

.

P.S.  Þessa dagana er ég mjög hamingjusöm.   Það er þó ekki alveg laust við að ég hafi smá samviskubit yfir gleði minni því ég veit að margir eiga um sárt að binda vegna ástvinamissis.
Enn felli ég líka stundum tár yfir Gillí minni og öðrum ástvinum sem eru farnir.  Því vil ég kveikja á kertum fyrir þá sem við söknum og til að sýna samkennd með þeim sem eiga erfitt. 


Með ósk um ljúft kvöld. Heart 

.

Candles2 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Gillí var merkileg, stórmerkileg kona. Hún gleymist aldrei. En við megum hreint ekki fá samviskubit yfir því að vera hamingjusamar þrátt fyrir mótvind -það vill enginn.

Ragnheiður , 16.7.2008 kl. 22:38

2 identicon

Kisa hefur verið slóttug að næla sér í nammipokann sjálf,og láta sem ekkert sé ,þær geta verið slóttugar  þegar villidýraeðlið hleipur í þær.Sennilega ert þú samt besti ávöxturinn  sjálf af þeim öllum .Þó að við vitum að eitthverjir eigi um sárt að binda þá meigum við ekki láta það aftra okkar gleði því ef við værun alltaf niðurbrotin annara vegna  þá væri lífið bara leiðinlegt .Hahahahaha

Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 22:44

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ekki vera leið yfir því að vera hamingjusöm! Það þjónar engum tilgangi - síst fyrir þá sem eiga um sárt að binda. Ég tel að með hamingjusemi þinni sértu fremur að mótvægisjafna! Njóttu þín og hamingjunnar

Hrönn Sigurðardóttir, 16.7.2008 kl. 22:56

4 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég tek undir með Hrönn.... njóttu hamingjunnar.... þú hefur unnið fyrir henni........."Gleði gleði gleði......."

Fanney Björg Karlsdóttir, 17.7.2008 kl. 13:46

5 Smámynd: Hugarfluga

Það gleður mig að heyra að þú sért hamingjusöm, fallega kona. Maður á aldrei að hafa samviskubit yfir að líða vel ... málið er bara að kunna að meta það og ég veit að þú gerir það.

Knúslur

Hugarfluga, 17.7.2008 kl. 20:12

6 identicon

En ó hvað ég vildi stinga mér í þetta ávaxtaborð...þetta sér maður ekki á Íslandi...

alva (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 03:30

7 identicon

Ég er líka hamingjusöm, en á furðulega erfitt með að skilja suma hluti. Á það til að fella tár líka. Mig vantar kerti til að kveikja á.

Annars hélt ég að það ætti að vera ættarmót ha? Hvenær er það !

Þórunn Ella (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 13:49

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þórunn Ella frænka.  Við hittumst auðvitað öll á minningarmóti um Gillí.

Síðan höfum við bara ættarmót aðeins síðar. 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2008 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 342815

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband