Þegar kötturinn sefur fara mýsnar á stjá.

.

Aumingja kisi minn.  Ég hef haldið fyrir honum vöku í langan tíma til að fyrirbyggja að allt fyllist af músum.  Hvað á maður að gera ? Gasp   Auðvitað get ég samt ekki endalaust látið köttinn vaka.  Líklega er skynsamlegast að setja upp vaktaplan fyrir kisurnar mínar tvær.  Önnur vakir meðan hin sefur.  Og svo er bara að vona að þær fari ekki fram á jólafrí og sumarfrí og svoleiðis vitleysu.  Pinch

Ef það gerist fer ég að vatna músum.

.

silly_animalz_may_038 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei, ég á tvo ketti sem myndu umsvifalaust gera sér mat úr svona uppákomu.

Anna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 13:06

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég á ekki orð.  

Sko..... ég er ekki farin að spjalla við sjálfa mig á blogginu.......það kommentaði kona sem spurði hvort ég ætti köttinn og ég var bara að svara henni.  En spurningin hvarf með einhverjum torkennilegum hætti. 

Bara svona hókus pókus.  Skil´ett´ekki. 

Anna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 13:23

3 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Hvernig eru launakjör svona OFURkatta????

Bergljót Hreinsdóttir, 14.9.2008 kl. 13:26

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahah!! Ég veit ekki hvort mér finnst fyndnara þú og kettirnir eða þú og kommentin.......

Þetta er náttúrulega frábær hugmynd með vaktaplönin - það er bara smávandamál........ á hvaða máli ætlarðu að hafa planið? Kannski bezt að setja þetta myndrænt upp..?

Spurning hvort ég komi og aðstoði þig

Hrönn Sigurðardóttir, 14.9.2008 kl. 13:29

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Launakjörin eru í formi kattamatar.  Mínir fá Whiskas - sem þýðir að þeir eru hálaunaðir.

Já Hrönnsla..... komdu og hjálpaðu mér með þetta. 

Annars þori ég varla að senda þetta..... kannski verða kommentin ykkar dottin út eftir eina mínútu og þá lít ég út eins og vitleysingur, talandi við sjálfa mig. 

Anna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 13:52

6 Smámynd: Einar Indriðason

Þú þarft að hafa amk 3 ef ekki 5 ketti, ef þú ætlar að hafa vaktaplan.  Þú þarft þá að skipuleggja sumarfrí, orlof, hvíldartíma, og svo framvegis....

Kannski er bara einfaldara að ná samkomulagi við mýsnar?  "Þið fáið að borða hluta af sérvöldum, og sér-staðsettum osti, gegn því að þið látið allt annað vera hjá mér.  Og, já... ekki fjölga ykkur of mikið!  Eiginlega þurfið þið að bera allar fjölganir undir mig fyrst!  Skilið?  Gott!"

Einar Indriðason, 14.9.2008 kl. 13:53

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hérna náði ég að kópera úr stjórnborði hluta af kommentinu sem hvarf, komment númer 1.  Það var hún Brynja sem kommentaði; 

Veistu, þetta er rosakrúttlegt, seinsofandi köttur með mús á...

(), 14.9.2008 kl. 13:00
og svo endaði hún á að spyrja hvort ég ætti köttinn.  Einhvern veginn finnst mér að ég þurfi að sanna að ég sé ekki alveg gengin af göflunum.    En það er auðvitað möguleiki að enginn trúi því. 

Anna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 13:59

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Með því að leggja hérna inn ekkert, þá ert þú sjálf einungiz með helmíng skrifaðra athugasemda við þessa færzlu þína sjálf.

Góðmenni andans er ég...

Steingrímur Helgason, 14.9.2008 kl. 14:21

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já, ég veit það.  Þetta lítur illa út. 

Anna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 14:39

10 Smámynd: Ragnheiður

LOL!

Á að drepa mann út hlátri hehe...

Þetta lítur spes út, því er ekki að neita en ég trúi þér alveg Anna mín

Ragnheiður , 14.9.2008 kl. 14:50

11 identicon

Já það er ekki nema von þú sért farin að skrifast á við sjálfa þig Anna mín, svefnlaus eins og þú ert við að halda kettinum vakandi. Annars fóru ekki að berast mýs að mínum dyrum fyrr en ég fékk mér kött og ein rotta að auki sem mér sýnist eiga frænku á myndinni. Hin ömurlega niðurstaða er semsagt að losa sig við kettina þá fara mýsnar líka:( Ég ákvað að halda kettinum og taka músagangi eins og hverju öðru hundsbiti.

Ásdís (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 15:57

12 Smámynd: Einar Indriðason

Hvenær kemur næsta komment frá þér Anna?

Einar Indriðason, 14.9.2008 kl. 16:52

13 Smámynd: halkatla

Það mætti halda að þú og kettirnir væruð búin að vaka of lengi

halkatla, 14.9.2008 kl. 17:11

14 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Hehehe, færslan var góð, en commentin slá hana út

Svanhildur Karlsdóttir, 14.9.2008 kl. 20:04

15 identicon

Anna mín, hættu að væla um peningaleysi og kreppu fyrir framan köttinn.  Þá hættir hann að koma með sinn skerf til heimilishaldsins. Einhver sagði að kettir skynjuðu þessi vandræði eigenda sinna og væru bara að aðstoða við rekstur heimilisins með þessum hætti. Láttu kisu vita að þú hafir nóg og þú getir séð fyrir ykkur báðum.  Annars lokar þú bara köttinn inni og venur hann á sandinn  

Emilía (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 22:16

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Jasso.  Lesendur mínir halda máski að ég búi í músarholu.    Hér hefur ekki komið ein einasta mús inn á þessu ári, enda heimiliskettir of saddir til að nenna að veiða.  Þeirra er góðærið.... og Whiskasið og harðfiskurinn. 

Þessi færsla var nú bara bull að hætti hússins - og kommentin ennþá meira bull.

Hvar endar þetta ? 

Anna Einarsdóttir, 14.9.2008 kl. 22:24

17 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Þýðir ekkert að halda fyrir kisunum vöku, þú verður að draga úr Whiskasinu og harðfisknum. Fjölga alla vega um einn og hafa svo hund í verkefninu. Mín reynsla er sú að þeir eru meiri aflaklær en kettirnir þegar kemur að músaveiðum.

Hitt er svo annað mál hvort að ástæða sé til að ætla að þú þurfir á þessari þjálfun að halda. Mýsnar virðast hafa það hvort eð er svo gott ,,úti á víðavangi" og í nánastaumhverfi að þær leita síður inn til okkar.  Velmegunin, sko!

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 14.9.2008 kl. 22:30

18 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

EF ÉG vaktaði ekki köttin minn.. þá gerðist andhverft miðað við letiketti þína. þá kom hann með mýs og fugla eða jafnvel orma til að gefa mér.

Brynjar Jóhannsson, 15.9.2008 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 342807

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband