14.6.2007 | 21:42
Í dag lærði ég að.......
Lífið er eins og lítið blóm
litfagurt ferðalag
raulaðu lag með þýðum róm
og njóttu lífsins í dag.
Valdapot og veraldleg gæði
hamingju tæplega skapa
vertu því vinur í ró og næði
og veistu, þú munt ekki tapa
Gæska þín er gullin og fróm
en gæt að því sérhvern dag
að elska hvern mann, hvert lítið blóm
og hástöfum syngja lag.
Takk Gillí.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
13.6.2007 | 21:03
Þróunarkenning Darwins á við engin rök að styðjast.... við erum komin af kartöflum.
Það þarf varla að taka það fram að Frakkar eru komnir af frönskum kartöflum. Segir sig sjálft.
Spil og leikir | Breytt 14.6.2007 kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
12.6.2007 | 21:11
Tapað - fundið.
Vissirðu um bakarann ?
Hann týndi hálsmeninu sínu.
Hann leitaði.........
......... en fann það ekki í smjördeiginu
......... heldur ekki í snúðadeiginu
......... né í kökudeiginu
en hann fann það......
.......... í hádeginu.
Thihihihi hahahaha.... fyndið, fyndið.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.6.2007 | 07:41
Sláttur er hafinn í Borgarfirði.
Þar til fyrir nokkrum árum notaði ég sjálfvirkar garðsláttuvélar, samtengdar skítadreifurum, afar hentug tæki sem bera vinnuheitið hross. Í garðinn minn fóru þessar græjur reglulega og inntu af hendi (væri kannski réttara að segja inntu af hófum) garðvinnuna.
Síðan flyt ég og eignast garð sem er svo stór, að virðulegir lögbýliseigendur líta mig öfundaraugum. Ekki má í þennan garð sleppa hrossum sökum nálægðar við nágranna. Því fór ég á stúfana og festi kaup á garðsláttuvél..... eða svo hélt ég þar til sonur minn upplýsti mig um annað. Eftir miklar hláturrokur hans og bendingar á nýja tækið, lét hann í té þá skoðun sína að þetta væri ekki meira en sýnishorn. Leikfangasláttuvél ! Svona Bubbi byggir útgáfa.
Í gær tók ég upp "dótið" mitt og hóf slátt. Fór semsagt að leika mér. Sprettan góð og það verður að viðurkennast, með semingi, að leikfangasláttuvélin réði heldur illa við blettinn. Hún drap á sér nokkuð oft og neitaði ítrekað að fara í gang aftur. Þá greip ég til gamals húsráðs og hristi hana duglega til, sneri henni í hálfhring og gaf henni drag. Man að heima var sjónvarpið alltaf lamið í gamla daga. Þetta virkaði vel og blettinn sló ég.
Hann fékk nýtískulega klippingu í þetta skiptið..... pönk.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.6.2007 | 16:54
Þetta er ástæðan fyrir því að ég borða ekki kjúkling.
10.6.2007 | 20:40
Vildi bara segja ykkur að.......
.......greidd skuld er glatað fé.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.6.2007 | 17:01
Hremmingar
Það er ekki lengur óhætt fyrir konur að vera einar á ferli í Reykjavík.
Fyrir nokkrum dögum, gekk ég eftir Kleppsvegi að kvöldi til og varð fljótlega vör við að það var maður á eftir mér. Minnug allra fréttanna af nauðgunum og misþyrmingum ýmiskonar, herti ég gönguna. Lít aftur fyrir mig og sé að hann hefur líka hert á sér. Ég var farin að strunsa og þakkaði mínum sæla fyrir að vera ekki á háum hælum. Maðurinn dró samt á mig. Nú leist mér ekki á og fór að hlaupa. Hann hljóp líka. Vóóó,, ég hljóp eins hratt og ég gat en samt heyrði ég að hann nálgaðist mig, heyrði þungan andardrátt hans rétt fyrir aftan mig. Skelfingin var yfirþyrmandi. Ég fann hönd snerta bakið á mér, opnaði munninn til að öskra þegar hann stundi..........
.......... KLUKK.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.6.2007 | 17:56
Skrýtinn samningur.
Alltaf á milli jóla og nýárs förum við hópur úr Borgarfirði, til Blönduóss að spila bridge. Mjög skemmtilegt mót þá, þar sem léttleikinn er í fyrirrúmi og keppnisskapið dempað. Fyrir þá sem ekki vita, eru allir með makker í bridge..... félaga sem þú lærir á og þarft að láta þér lynda við... ekki ósvipað og í hjónabandi. Síðan færðu spil og átt með sögnum að lýsa spilunum þínum eins og best þú getur fyrir makker þínum og þið í sameiningu að finna rétta sögn.
Í fyrra voru, meðal annarra, tveir briddsarar sem aldrei höfðu spilað saman áður. Annar þeirra fékk ótrúleg spil á hendi...... 7 lauf og 6 spaða og ekkert annað. Þessi spil voru það góð að bæði var hægt að taka alla slagina með lauf sem tromp, sem og spaða.
Þeir félagar hefja nú sagnir en eitthvað vantaði uppá samskiptamátann því þeir enduðu í 2 hjörtum í stað slemmusagnar í laufi eða spaða.
Í rútunni á heimleiðinni var mikið hlegið að þessari fáránlegustu sögn ever og til varð þessi vísa:
SPAÐAR SEX OG LAUFIN SJÖ
SÁ HANN FRAMTÍÐ BJARTA
EN SIGGI MELDAR....SKRAMBINN, DJÖ !
ÁTTA SLAGI Í HJARTA.
5.6.2007 | 07:15
Óttast stubbaflóð í borginni !
Á Vísi.is var það fyrsta sem ég sá í morgun: "ÓTTAST STUBBAFLÓÐ Í BORGINNI".
Og pólsk yfirvöld eru á sama tíma að rannsaka hvort Stubbarnir séu samkynhneigðir.
Flóð af samkynhneigðum !
Vink vink.........
ég verð að drífa mig áður en flóðið kemur.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.6.2007 | 12:48
Buddl.
Gillí frænka mín segir að ég hafi sérstakan áhuga á málsháttum og orðatiltækjum - sem er alveg rétt hjá henni.
Sumir málshættir eru gamaldags.
Með smá nútímavæðingu gæti þessi t.d. litið svona út:
var:
Allt er hey í harðindum
verður:
Allt er fé í blankheitum.
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði