Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Amen á eftir efninu.

 

Myndir þú einhvern tíma stofna fyrirtæki, ráða 63 starfsmenn, skipta þeim í nokkra hópa og segja sem svo..... "sá hópur sem stendur sig best fær að vinna áfram eftir 4 ár" ?

Er það ekki beinlínis ávísun á að hver hópurinn vinni gegn öðrum ?

Og að fái einn hópur góða hugmynd, verði hún rifin niður af hinum hópunum vegna þess að velgengi einhvers hóps ógnar tilveru þess næsta ?

Af hverju erum við með svona furðulegt kerfi á Alþingi ?

Ég segi fyrir mig að stofnaði ég fyrirtæki, vildi ég að starfsmenn ynnu að hag fyrirtækisins sem ein heild.   Og þannig er það í öllum fyrirtækjum.

.

RegionalNetworkingGroups 

.

Því er það staðföst skoðun mín að flokkakerfið sé úrelt... hafi það einhvern tíma verið gott.

Endurvekjum lýðræði á Íslandi og kjósum fólk.

Leggjum niður gömlu flokkana í næstu kosningum.

Amen.

.


Spegill, spegill, herm þú mér.......

 

.

spegill 

.

Mig langar svo að sýna ykkur þennan spegill sem ég fékk í jólagjöf.

Hann er búinn til úr keramik og listamaðurinn er dóttir mín, 12 ára gömul.


Lét Geir þá stjórnast af ÁST ?

 

Geir segir að Samfylkingarmenn, ásamt einhverjum öðrum, hafi látið stjórnast af hatri á Davíð Oddssyni þegar þeir vildu segja honum upp starfi. 

Þetta er í meira lagið fyndið.  LoL

Hvað með alla sem fengið hafa uppsagnarbréf undanfarna mánuði ?  Eru þeir þá hataðir af sínum vinnuveitendum ?   Maður spyr sig !

Stundum þarf einfaldlega að segja fólki upp, ýmist vegna hagræðingar, minni verkefnastöðu eða í einstaka tilfellum vegna þess að starfsmaðurinn vinnur ekki nógu vel.

Það var einmitt málið með Davíð og Seðlabankann.  Og Fjármálaeftirlitið.  Og Sjálfstæðisflokkinn.  Þeir unnu þjóð sinni ekki nógu vel og því hefur þeim verið sagt upp störfum.

.

Það skyldi þó aldrei vera að Geir elski Davíð ?  FootinMouth

.

simon%20elvin%20i%20love%20you-03268-l 

.


mbl.is Geir: Stjórnuðust af hatri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brilljant nafn !

 

Þeir eru sniðugir Rússarnir þegar þeir skíra börnin sín. 

Mér finnst til dæmis alveg stórkostlegt nafn á rússnesku tenniskonunni;

Dinara Safina.

.

Svona lítur það svo út með eðalgóðum  framburði;

Dína RassafínaTounge


mbl.is Williams og Safina í úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar svelta.

 

Mér rann til rifja að lesa Þessa frétt í DV. þar sem fjallað er um eldri mann sem sveltur.

.

gauti

.

Þessi sami maður lagði Fjölskylduhjálpinni til aðstoð meðan hann hafði vinnu.  Nú þarf hann sjálfur að leita þangað eftir aðstoð, eftir að hann og konan hans misstu bæði vinnuna.  Það er illa komið fyrir mörgum fjölskyldum þessa dagana en sárast finnst mér þegar eldra fólk, sem skilað hefur ærnu ævistarfi, þarf að kyngja stoltinu og biðja um hjálp.

Það er skylda okkar sem eigum eitthvað smávegis afgangs að hjálpa þeim Íslendingum sem standa í þessum hræðilegu sporum.

Í dag lagði ég pening inn á Fjölskylduhjálp Íslands og ég skora á ykkur, sem getið, að leggja eitthvað smávegis af mörkum.

0101-26-66090, kennitala 660903-2590.

Það á enginn að þurfa að svelta á Íslandi, sama hversu bágborið annars efnahagsástandið er.

Þetta er bara spurning um að reyna að skipta jafnar á milli.

.

Knús á línuna.  Heart


Ung, vitlaus og klaufaleg... ég segi ykkur það í trúnaði.

 

Á undanförnum árum hefur mér blöskrað hvernig það hefur komist í tísku að ráða algerlega óreynda "stuttbuxnadrengi" í ábyrgðarmikil störf jafnframt því að eldra fólk hefur oft á tíðum verið "afskrifað" mjög ótímabært.

Þrátt fyrir bráðungan aldur minn hef ég öðlast þann þroska að gera mér grein fyrir að mér eldra fólk er með meiri reynslu en ég.  FootinMouth   

Reynsla lífsins er stórlega vanmetin.  Sumt er bara ekki hægt að læra af bóklestri. 

En það er líka hægt að reyna að læra af þeim sem eldri eru ef maður vill verða skynsamur sem fyrst.  Sem ég er að reyna.  Ég sagði REYNA.  Blush

Nú kem ég að vandasömum kafla.  Ætlunin var að vísa í blogg sem mér finnast góð hjá tveimur bloggvinum mínum sem ég HELD að séu eldri en ég.  En nú er ég búin að hljóma eins og þeir séu eldgamlir !  Gasp

Þeir fyrirgefa mér vonandi hvað ég er ung og vitlaus og kem klaufalega fyrir mig orði.... á þessu lyklaborðiWink

.

Má ég kynna;

Stefán J Hreiðarsson 

og

Helgi Jóhann Hauksson

.


Pólitískt grín.

 

Maður er gjörsamlega búin að missa sig í pólitíkinni undanfarna daga.  Pouty

Hefur svosem verið af meira en nógu að taka.  Þvílíkt og annað eins !

En ég er persónulega kát.  Sjálfstæðismenn farnir í frí.  Hyllir í frí hjá Seðlabankamönnum.  Fjármálaeftirlitið fer í frí eftir mánuð.  Björgvin fer bráðum í frí.

Er annars ekkert jafnrétti í þessu landi ?   Ég meina.... fæ ég ekkert frí ?  Woundering

--------

Fann fyrir ykkur sárasaklausan - auðvitað pólitískan - brandara;

 

Sagt með röddu Guðna Ágústssonar:

.

 Þar sem að tveir Framsóknarmenn koma saman.......

.

.

.......... þar er spegill.   W00t

.

04_mirror 

.


Ólafur hefur hlustað á þjóðina.

 

Á óvenjulegum tímum gera menn óvenjulega hluti.

Ég er mjög sátt við að forseti Íslands styðji við þjóð sína með þessum hætti.  Hann hefur greinilega hlustað vel á kröfur okkar á Austurvelli ásamt því að hann hefur fylgst með umræðum á netinu.

Þau fjögur atriði sem hann tiltekur eru að mínu mati nákvæmlega það haldreipi sem við Íslendingar þurfum í stöðunni.

- Við þurfum frið í þjóðfélaginu.

- Leggja þarf áherslu á að kollsteypa ekki fjölskyldum og atvinnulífi landsins.

- Við þurfum kosningar í vor.

- Skoða þarf hvort ekki sé breytinga þörf til að endurskapa lýðræði á Íslandi.

.

 

Ég fyllist bjartsýni.  Cool


mbl.is Skapa þarf samfélagslegan frið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband