Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Hei !

25%20Ways%20To%20Say%20Goodbye[1]

 

 

Ætlaði bara að kasta á ykkur kveðju.  Kissing

 

Hitti ég ?

 

 

 

 

 


Auðveldasta gáta í heimi.........

 

Nú er ég að fara svolítið.  Hvert er ég að fara ?

 

Vísbending:  Nafnið á staðnum sem ég fer á,  rímar við mann sem rekur við í þolfalli.

 

Hversu auðvelt er það nú ekki. LoL

 

 

 

 

 


Tregur læknir maður.

 

istockphoto_2291915_doctor 

 

Þegar ég fór til læknisins á föstudagskvöldið, átti eftirfarandi samtal sér stað:

 

Læknirinn   Jæja góða mín, hvað get ég gert fyrir þig ?

 

Ég   Gat nú skeð.

 

Læknirinn  Ha, hvað ?

 

Ég   Gat nú skeð.

 

Læknirinn horfði á mig opinmynntur og skildi greinilega ekki neitt.

 

Ég    GAAAAAT nú skeð. Gasp

 

Furðulegt að læknar skuli ekki leggja sig fram við að skilja venjulegt fólk !

 


Rétt taktík.

 

drunkers

 

Það voru tveir vinir að spjalla saman og annar segir við hinn... Ég skil þetta ekki.. alltaf þegar ég er að koma heim af barnum læðist ég upp að útihurðinni, opna ofur varlega, fer úr skónum og læðist upp á baðherbergi. Þar passa ég mig á að gera engan hávaða og svo læðist ég eins varlega og ég get upp í rúm og alltaf skal samt konan vakna og skammast í mér.

 

Þá sagði hinn... ég ríf upp dyrnar með látum, skrölti inn á bað og pissa þannig að bunan fer beint í miðjuna á skálinni svo að það koma hellings læti.. fer svo inn í hjónaherbergi og tæti af mér fötin, rek við og segi svo hátt... "núna væri sko gott að fá að ríða".      Það bregst ekki að konan steinsefur.

 


Djúpar pælingar.

 

Hafiði pælt í því að þegar maður er farinn að græða á áhugamálinu sínu, þá er það hætt að vera hobbý.

Dæmi:

  Þú borgar fullt fyrir hest og reiðtygi og hagabeit  =        áhugamál

  Þú temur hross fyrir fólk gegn greiðslu                =        atvinna

 

Mér datt bara í hug...........  aumingja kvensjúkdómalæknarnir.

Þeir missa af helv.... góðu áhugamáli.


Þú hefur verið blekkt/ur.

 

Maður á að miðla af reynslu sinni.

Nú vill svo til að ég er kona með reynslu af höfuðhöggi.

Þar með vil ég koma því á framfæri að það er bara plat að fólk sjái stjörnur við þessar aðstæður.

Ekki ein einasta stjarna.  GetLost

 

2-stars 


Sex spor.

 

Ég vann ferðina til Vestmannaeyja og hún varð vendipunktur í mínu lífi.  Í sakleysi mínu var ég að dansa þegar kona dettur beint fyrir aftan mig og kippti undan mér fótunum þannig að ég flaug á hnakkann og úps !!!  GAT á hausinn minn.

Þá komu þrjár löggur og handtóku mig.  Það var frekar gaman. Grin Löggan keyrði mig á spítalann.  Síðan var stefnumót við lækninn sem því miður var kvenkyns.  Já, maður fær ekki öllu ráðið.  Ekki á óskalistanum.  Jæja, daman setti sex spor í hausinn á mér og núna er ég sem ný.   

Í gær tróð ég svo upp með Árna Johnsen.  Hann kom og spilaði fyrir okkur kjellurnar.   Ég hafði fjárfest í gítar einum, fyrr um daginn.  Svona pínulitlum gítar en samt nógu stórum til að  taka lagið með stráknum.  Núna erum við búin að stofna dúett - eða hljómsveit.  Allir sem eru fúlir út í strák fyrir þjófnað, hætti því strax.  Kallinn er húmoristi og þá má hann eiginlega allt.  Það er bara þannig.  Skemmtilegur kall.  LoL

Eigum við að kjósa aftur ?


Glæsileg verðlaun.

 

Í tilefni af tuttuguþúsundustu flettingunni á bullinu, verða nú veitt vegleg verðlaun.

 

Hinn heppni hlýtur ferð fyrir einn til Vestmannaeyja í fyrramálið.  Innifalin er hótelgisting í tvær nætur, skoðunarferðir, veislumatur, hellaskoðun og eintóm gleði.

 

island_rundtur_0610_vestmannaoeyene_article_large_image

 

 

 

Og sá heppni eeeeer..... trommusóló, bomm bomm bomm......    ANNA EINARSDÓTTIR !

Þvílík endemis lukka.  Grin


Bloggvinabálkur....

author_icon_10891

Svampur Sveinsson ægilegur

en stundum var hann þægilegur

oft kerlingar frusu

er fengu á sig gusu

mér fannst kauði hlægilegur.

 

 

content_rubylee

Hugarfluga fallegt fljóð

finnst mér vænt um hana

á hún skilið ástarljóð

er prýði meðal svana

 

 

saemi3

Sæmundur er gamall granni

gat hann alveg teflt

segi því með fullum sanni

sá hafi andann eflt.

 

 

P1010058

Gillí frænka er ferlega klár

og fyndin,  ættgengt mun það vera.

Ég vona að hún lifi í 100 ár

því endalaust er hún gott að gera.

 

 

jdpprd

Jenný mín hún bloggar margt

mig setur hún á gat

pistlar fjórir fyrripart

og fimm svo eftir mat

 

 

7427

Af bloggvinum á Heiða hauga

en hefur engan mann.

Gæskan er með glóðarauga

hver gaf henni á´ann ?

 

 

img_0659_208425

Ef ég Eva hitti þig

er geng ég niður veginn

skaltu kjella knúsa mig

og kyssa báðum megin

 

 

gisli_8711

Bratti ég lofa litlu kvæði

því ljóðelskur karlinn er

maðurinn er algjört æði

í uppáhaldi hjá mér.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Fann dóna !

 

Hér er það netlögreglan sem ritar. Police

Í dag kom ég upp um dóna.  Whistling

Ég var að leita að ákveðnum aðila á blogginu í dag og tek það fram, svo ekki komist af stað einhver útbreiddur misskilningur, að maðurinn er líklega á sjötugsaldri, frekar en áttræðis.  Áhugi minn á honum var altså bundinn við hans bundna mál. 

Jæja,  þar sem ég mundi bara fyrra nafnið mannsins sem ég leitaði og hann er ekki einn af mínum bloggvinum, smellti ég mér í bloggleit.  Það leiddi til þess að ég datt alveg óvart inn á nýstofnaða klámsíðu.  Ojojojoojjjjj.  Svona gera menn bara ekki. GetLost

Ég auðvitað skoðaði hana vel og vandlega til að vera viss um að þetta væri klám en ekki erótík.  Blush  Ekki var um að villast.  Þá sendi ég póst á mbl-stjórann og var augljóslega fyrst með fréttirnar.   Ekki fékk ég nú fundarverðlaun eða neitt svoleiðis.  Núna er ég að reyna að láta ekki valdið stíga mér til höfuðs.  Police

 


Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband