Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Ör í hjartað.

Mig dreymdi afar undarlegan draum í nótt.

Ég var í öðrum kvenmannslíkama og yngri.  Ég var nýbúin að hitta stóru ástina mína.  Við kærustuparið vorum saman í húsi og þá kemur kona inn og skýtur okkur bæði í hjartað með örvum.  Ég fann sáran sviða.  Síðan fannst mér að við hefðum verið mjög heppin og lifðum þetta af en vorum í gíslingu í húsi þessarar illu konu.  Mér fannst ég hafa verið þar í langan tíma þegar dyrabjallan hringir.  Ég fer til dyra og þar stendur mamma.  Hún var í líki fallegrar rauðhærðrar konu, þ.e. ekki sama móðir og ég á í alvörunni.  Mamma bjargaði okkur, mér og kærastanum og það voru æsispennandi augnablik þegar við vorum að komast undan.  Svo finnst mér líða dálítill tími, ekki mjög langur, en þá fær kærastinn minn hjartaáfall.  Ég hélt honum í fanginu og hann sagði "þetta hefur verið yndislegt yndislegt líf með þér". 

Þarna gelti hundurinn minn og vakti mig.  Hann geltir nánast aldrei á nóttunni en ég var mjög fegin að vakna..... þvílík átök á einni nóttu.  púfferípúff.

psssssst.  ég réð drauminn sjálf - sjá athugasemd númer 7.

Tek að mér að ráða drauma fyrir aðeins tvöþúsundkall stykkið.

 


Hvað viljum við ?

Fundurinn með Jóni Baldvini og Bryndísi var roooosalega góður.  Maðurinn hefur hæfileika til að koma aðalatriðunum málsins frá sér þannig að allir skilji.  Ekki ætla ég að reyna að koma neinu frá mér í skiljanlegu formi - það væri stílbrot.  Hins vegar vil ég segja þetta:  Lesið allar greinar Jóns Baldvins sem þið komist yfir fram að kosningum.  Hvort flugvöllurinn verður hér eða þar eða hvað skoðanakannanir segja...... það eru algjör aukaatriði.  Aðalatriði þessara kosninga er hvert við íslendingar viljum stefna í nánustu framtíð.  Viljum við jöfnuð eða ójöfnuð, sérhagsmuni eða almannahagsmuni ? 

Ogkomasvo.......X-S.......fyrir skynsemi. 

 


Fundur.

Hvers konar jafnaðarstefna?

29. apríl kl. 19.30 Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram á opnum stjórnmálafundi um jafnaðarstefnuna.

Fundurinn verður í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar í Félagsbæ, Borgarnesi.

B1XEBUCAKSMVS9CA9CSWT4CANJLS1YCAJQ42TECAHK4VLXCA024CIBCATYVAP0CARC4LKZCA7K50XTCACRQJ6CCAUSM4R2CA7GIOXYCAU09AGECA4T3KB9CAZGDKLGCAA88221CA9T74IQCAM8S49WCAF0F3LF

Rúsínan í pylsuendanum verður svo ég, haldandi á SS pylsu.  

Rúsínan skorar á alla sem halda að þeir séu ópólitískir og eru ekki búnir að ákveða hvað þeir ætla að kjósa - að kjósa S fyrir SS pylsa Tounge

Á ég að birta þetta - eða ekki - eða láta það fara - eða hvað ? 

Stundum finnst mér ég fara aðeins yfir strikið en þá færi ég bara strikið aðeins til Grin


Ég má líka þaddna.

Mér sýnist á bloggvinkonum mínum að það sé modins að vera með allra handanna gátur.  Þar sem mér er í mun að skera mig ekki úr fjöldanum - döööööööh - þá kem ég hérna með eina erfiða.

Hvað er það sem fer rooosalega hratt yfir en kemur samt síðast heim ?

 

 

HALLÓ !  Lesendur Dúu og Jennýar..... kíkja aðeins hingað og leysa gátu. Kissing

Kem ekki með svarið fyrr en eftir 10 athugasemdafærslur.

 

 


Honímún.

Gömlu hjónin voru á leið til Akureyrar í tilefni af 50 ára brúðkaupsafmælinu.  Þegar þau voru að nálgast Blönduós, voru þau stoppuð af lögreglunni.  Sá gamli skrúfar niður rúðuna. 

Löggan:  Ertu með ökuskírteini ?

Kerla, sem orðin var heyrardauf, snýr sér að manni sínum:  Hvað sagði hann? 

Karl:  HANN VAR AÐ BIÐJA UM ÖKUSKÍRTEINI.

Löggan:  Hvert eruð þið að fara ?

Kerla:  Hvað sagði hann ?

Karl:  HANN VAR AÐ SPYRJA HVERT VIÐ VÆRUM AÐ FARA.

Karl:  Við erum að fara á Akureyri.

Löggan:  Akureyri, Police  Þar fékk ég þann versta drátt sem ég hef á ævinni fengið.

Kerla:  Hvað sagði hann ?

Karl:  HANN SAGÐIST HAFA HITT ÞIG Á AKUREYRI.

 


Stjórnlaus eistu.

 

Rússar misstu stjórn á mörg hundruð eistum. 

Það var sagt frá því í hádegisfréttunum. 

Vóóó. ég hefði alveg viljað sjá þetta. Tounge


Misjafn sauður í mörgu fé.

 

Í ferðum mínum til útlanda er ein athöfn sem ég reyni að sleppa aldrei;  að rétta einhverjum fátæklingi pening. 

Þetta byrjaði strax þegar ég var um tvítugt.  Var þá á gangi í París að kvöldlagi og sá fullorðna konu sem hnipraði sig saman á húströppum undir gatslitnu teppi.  Þessi kona minnti mig á ömmu.  Ég fór til hennar og rétti henni vænan seðil.  Viðbrögðin sem ég fékk voru óvænt fyrir mig.  Hún fór að hágráta og blessaði mig í bak og fyrir.  Þetta var eitt af þeim augnablikum lífsins sem eru mér ógleymanleg. Gamla konan varð svo ofboðslega glöð.  Þarna held ég, svei mér þá, að ég hafi tryggt mér aðgöngumiða í himnaríki þegar þar að kemur. Halo 

Eitt sinn, í Barcelona setti ég pening í bauk gamallar konu á brautarstöð.  Konan fór að grenja en það var einhvern veginn ekki sannfærandi.  Við vorum nokkur saman í hóp og við gengum fyrir hornið en snerum svo við og kíktum aftur á kjellu.  Sat hún þá ekki þarna með þurr augun eins og ekkert hefði gerst.  Þetta var eitthvað sem við vildum gjarnan skoða betur svo annar úr hópnum var sendur með aur í baukinn.  Það sama gerðist, kerla grenjaði. Hey !  Grin Þetta var soldið gaman...... eins og grenjudúkka.  En svo hætti hún alltaf jafnóðum og við vorum komin í hvarf.  Við fórum margar ferðir og gáfum þessari.  Sú fékk aldeilis að skæla. Joyful

Í þriðja sinn var ég líka á gangi í Barcelona þegar ég sé mann, sofandi undir pappakassa.  Æi, greyið.  Ég fer í vasa minn og hnippi svo í manninn til að rétta honum pening.  Karlinn vaknar upp með andfælum og það mátti engu muna að ég fengi einn á lúðurinn, því maðurinn var bara öskuvondur yfir ónæðinu.  Crying  Hann lét svo nægja að hrifsa af mér peninginn og hvarf með það sama undir pappann aftur. 

Núna reyni ég að vanda valið á fátæklingum.

poor_john     

Gustav Berg í heimsókn hjá fátæka Jóni.  Þarna fékk hann hugmynd Wink

 


Hversu óheppinn getur maður verið ?

 

 

Ég klemmdi mig á sjúkrakassa í dag.  Undecided


Hvað þýðir þá Andrés ?

********************************************************** 

 

Dúa bloggvinkona vakti mig til umhugsunar.  Reyndar ekki í fyrsta skipti því stelpan hefur meira hugmyndaflug en ég hef áður séð.  Mæli með því að þið lesið bloggið hennar ef þið hafið snefil af húmor - annars ekki.Whistling 

Hún sagði: 

"Andvaka er bjánalegt orð. And-vaka = ætti þá að vera sofandi" Errm

Mér finnst þetta mjög rökrétt.  Og í framhaldi af því þá lýsi ég því yfir að ég er núna.......

Andskotinn = ekki skotin í neinum altso

               og  

Andfúl = hress bara  Grin 

 

 


Gillí

Hvernig myndi þér líða ef þú fengir dauðadóm ?

Gillí frænka mín er mikil hetja.  Hún fékk dómsuppkvaðningu hjá læknum í janúar s.l.  Ólæknandi krabbamein var henni tjáð.  Gillí er 46 ára, eldklár, skemmtileg, hörkudugleg kona með hjartað á réttum stað.  Hún er ekki týpan sem gefst upp.   Gillí ákvað að fara þá leið að njóta lífsins áfram;  brosa, ferðast, gifta sig, hjóla, fara í saumaklúbbinn, íhuga, njóta.  Hún er á sama tíma að berjast - af miklum krafti.

Br_kaup_071_sized

Gillí með öllum strákunum sínum.  (sjáiði kjólinn) vúúú.

 

Allir íslendingar með "hjarta", myndu telja að þessar aðstæður væru meira en nóg álag fyrir unga konu.  En stjórnkerfið okkar er stórgallað og snýr í raun baki við þeim sem mest þurfa á að halda.  Ég vitna í hennar eigið blogg, skrifað í gær:

"Það er auðvitað álag að hafa stöðugt á bak við heilann að kannski lifi ég ekki lengi þótt ég velti mér ekki upp úr því dags daglega. Svo bætti ekki úr skák að í dag fékk ég örorkumatið, ég fæ kort og 16.999 á mánuði út árið fyrir utan skatt. Þetta þýðir að í haust verð ég launalaus, verð að selja bílinn, hætta að vera til og stinga hausnum undir koddann.  Auðvitað veit ég ekki hvort ég verð á lífi þá eða orðin frísk og get farið að vinna en ég er líka svo reið að ég gæti sprungið......ef einhverjum dettur í hug að kjósa yfir okkur sama ríkisstjórnarmynstur þá er sá hinn sami að ganga af veiku fólki og öldruðu endanlega dauðu þar á meðal mér."

Hún er skapmikil stelpan. Grin  Ég ætla líka rétt að vona að krabbadruslan þori ekki að staldra lengi við og forði sér hið snarasta. 

Það stríðir gegn allri skynsemi, þú þarft að vera einn í heiminum til að aðhyllast sömu stefnu og verið hefur á Íslandi undanfarin ár.   Eiga a.m.k. enga aldraða foreldra, enga veika ættingja eða þekkja fólk sem vinnur á kassa í Hagkaup og hvað ætli það séu nú margar fjölskyldur sem flokkast undir þetta ?  Og svo mátt ÞÚ auðvitað ekki veikjast eða lenda í slysi - eða verða gamall. 

Hér til hliðar er tenging á Gillí - hún bloggar flott, enda mikill karakter. Wink 

 

 

 


Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband