Ísland, fagra Ísland.

.

Bfj 

.

BorgarfjörðurI 

.

BorgarfjörðurII 

.


Í Kvosinni.

 

Í Kvosinni, æskuminningar og bergsöglismál eftir Flosa heitinn Ólafsson er á náttborðinu mínu núna.  Flosi hafði þann einstæða hæfileika að vera bara hann sjálfur. 
.

flosi-324x274 

.

Hér kemur smábrot úr bókinni:

 

Og það var raunar þessi amma mín sem orti fræga vísu um jarpan hest, sem Kiddi móðurbróðir minn átti í hesthúsinu uppí lóðinni á Vesturgötu 15.

Á Jarpi höfðu allir mesta dálæti, en Jana, sem var í vist hjá ömmu, og úr Dölunum, elskaði klárinn.

Svo var það einhvern tímann að skita hljóp á Jarp.  Þá orti amma mín þessa vísu:

.

Þegar Jarpur hafði skitu
allir grétu á Vesturgötu
Jana grét þó mest.
Hinir gátu þó hætt.

 

 


Það eru allir hættir að lesa Moggann !

 

Það eru bókstaflega allir hættir að lesa þennan snepil. 

Líka þeir sem skrifa fréttirnar.  Pouty

Og ritstjórinn !

Í nýrri frétt Mbl. stendur;

"Fram kemur á fréttavef Skessuhorns, að í byrjun ársins hafi nýja árinu hafa hefur leitt til þess að þeir mynda meirihluta en Borgarlisti situr einn í minnihluta í fyrsta skipti á kjörtímabilinu".

.

mynd 

.

Páfagaukur hefði gert þetta betur.

.


mbl.is Nýr meirihluti í Borgarbyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er hægt að taka sér bessaleyfi ?

 

Svar Vísindavefsins er svohljóðandi;

Elsta dæmi í söfnum Orðabókar Háskólans um orðasambandið að taka sér bessaleyfi ‘gera eitthvað án þess að biðja um leyfi’ er frá fyrri hluta 18. aldar. Heldur eldra er sambandið að eitthvað sé bessaleyfi. Orðið bersi, en einnig bessi, merkir ‘bjarndýr’. Ásgeir Blöndal Magnússon telur upprunann óvissan í Íslenskri orðsifjabók (1989:52). Annaðhvort liggi til grundvallar mannsnafnið Bessi/Bersi eða bjarndýrsheitið.

.

bessaleyfi_110808

.

Helgi Hálfdanarson skáld og þýðandi getur þess til í grein í Tímariti Máls og menningar (1975:92–104) að að baki liggi týnd saga um einhvern Bessa og sama gerði Jón Ólafsson úr Grunnavík á 18. öld sem nefnir samböndin að hafa bessaleyfi, gera nokkuð í bessaleyfi og taka í bessaleyfi í orðabókarhandriti sínu (AM 433 fol.). Ef hins vegar bjarndýrsheitið liggur að baki gæti það vísað til styrks bjarnarins sem hikar ekki ef hann vill ná einhverju fram.

.

En kannast einhver við nýyrðið að taka sér Bessastaðaleyfi ?

.


Sölvi Tryggvason hittir naglann á höfuðið í þessum pistli.

 

.

EKKI MEIRA!

.

sölvi 

.

Hvort sem við erum með eða á móti ákvörðun Ólafs Ragnars verðum við öll að taka okkur saman um tvennt sem Íslendingar.
.

1) Að ákvörðunin valdi ekki enn frekari skotgrafahernaði í samfélagi sem nú þegar er komið niður í botn jarðvegsins af mokstri skotgrafanna. Það verður ólíft hérna ef umræðan verður ennþá árásargjarnari og óvægnari. Þessi liðsskipting í umræðunni er farin að minna á svæsnustu fótboltabullur. Meira að segja stuðningsmenn Milwall gætu verið stoltir. Það er þyngra en tárum taki að horfa á sjálfhverfa og öfgafulla kverúlanta stýra umræðu sem minnir á lélega morfís keppni. Í guðanna bænum reynum að læra af síðustu 15 mánuðum, sem hafa brunnið upp til einskis á báli skítkasts, reiði, siðleysi og eigingirni. Temjum okkur kurteisi og virðingu fyrir öðrum og lærum að hlusta. Þá meina ég ekki hlustun sem felst í því að ranghvolfa augunum og bíða eftir að geta sagt eitthvað miklu gáfulegra en andstæðingurinn

.

2) Að ýta aftur á play-takkann á lífinu. Annar hver Íslendingur hefur frestað því að vera til síðan bankarnir hrundu. Biluð plata um gengi krónunnar, vísitölur, verðbólgu og ámátlegt væl um hvað allt er ömurlegt hefur hljómað alls staðar síðasta árið. Nú er komið að því að laga grammófóninn. Við erum ennþá lifandi. Allir fá að borða og allir eiga þak yfir höfuðið. Þannig verður það áfram. Við veiðum fisk sem gæti fætt 10 milljónir manna og heimsendir er ekki framundan á næstu vikum. Gerum sem flesta staði að griðarstöðum fyrir neikvæðni og svartsýnishjali. Það sorglegasta sem kreppan getur gert okkur, er að ræna fleiri árum úr lífi okkar. Látum það ekki fyrir nokkra muni gerast.

Skylduhlustun.

 

Í dag er ég dálítið komin niður á jörðina aftur og tel að hattaátið mitt í gær hafi stafað af óeðlilega miklu bjartsýniskasti þess sem vonar að allt verði aftur með eðlilegum hætti á Íslandi, eins og var fyrir u.þ.b. 20 árum.   

Í miðju stormsins er ekki auðvelt að vita hvaðan á sig stendur veðrið.

Fárviðrið í íslenskri pólitík er þvílíkt að maður skilur oft ekkert hvað snýr upp og hvað snýr niður.

En mér finnst ég mikils vísari eftir hlustun á Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur í Speglinum.  (neðst á síðunni hjá Láru Hönnu)

Skylduhlustun fyrir þá sem vilja gera sér grein fyrir hvaða meðölum valdaklíkurnar beita.

.

austin_le

.

Ef við kjósum að loka bæði augum og eyrum gæti farið svona fyrir okkur: 

(tekið úr kommentum við norska blaðagrein)

.

Vi skaper ett land med 6 landsdeler: Oslofjord-området, Innlandet, Sørlandet, Vestlandet, Midt-Norge, Nord-Norge og Island. Island er fulle av ressurser både til lands og til havs og det passer godt med våre kunnskaper og næringer. Og vi har masse penger som nettopp kunne brukes til denne fantastiske investeringen til spottpris nå. Så lar vi islandingene stemme over det, og vi kommer til å få et rungende JA! Jeg gjentar: den beste investeringen Norge noensinne får sjansen til å gjøre.

.
norge

.

Vennlig hilsen,

Anna Einarsdóttir
Islandsk Afdölum nummer 89,
Norge.

.

 


Ég er Ragnar Reykás í þessu máli.

 

Eru heilladísirnar að snúast á sveif með okkur Íslendingum ?

Það skyldi þó aldrei vera að ég þyrfti að éta hattinn minn og viðurkenna mistök mín þegar að ég hélt forseta vera að klúðra feitt með synjun undirskriftar á lögin um Icesave.

En mögulega verður þessi óvenjulega aðgerð forsetans til þess að vekja svo mikla athygli umheimsins á okkur og okkar málstað að af hljótist eitthvað gott.

Síðan má náttúrulega nudda Bretum upp úr þeirri staðreynd að sjónarmið Breta hafi verið önnur í deilu við yfirvöld á Ermasundseyjunum Mön og Guernsey þar sem breska ríkisstjórnin neitaði að ábyrgjast innistæður breskra útibúa, meðal annars vegna þess að þeir hefðu ekki notið fjármagnstekna af þeim en Breska ríkisstjórnin hirti einmitt 40% fjármagnstekjuskatt af Icesave reikningunum í Bretlandi.

.

Nú verð ég að hætta........ þarf að éta hattinn minn.  W00t

.

Womens_wool_hat 

.

 


mbl.is Ekki setja Ísland í skuldafangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk eldist á örskotshraða.

 

 

13 ára gömul dóttir mín kann að líta á björtu hliðar tilverunnar.

.

Hún er að lesa spádóma Vöngu í Vikunni;

2088:  Nýr sjúkdómur.  Fólk eldist á örskotshraða. 

Hahahahaha LoL

Þá verð ég eldgömul, segir hún.

Síðan reiknar hún aldur sinn. 

Ég verð 92ja ára.  LoL

Og allir hinir verða eldgamlir líka.

Hahahaha.  LoL

.

Svo les hún áfram

2097:  Lækning finnst við nýja sjúkdómnum.

Þá spyr hún;  hvernig er hægt að lækna fullt af eldgömlu fólki ?

hahahahaha LoL

.

_41934092_ice_cream_416afp 

.


Ég er miður mín yfir atburðum dagsins.

 

Og ég spyr sjálfa mig;

Er þetta vonlaus barátta hins heiðarlega íslendings fyrir mannsæmandi lífi við gríðarlega spillta valdaklíku sem hefur sankað að sér auðlindum og fé samborgaranna ? 

 

Ég var alltaf á móti pólitískum forseta en hef sýnt honum virðingu fram að þessu.

Hvað er hann búinn að gera þjóð sinni ?

 

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/01/05/hollenskir_stjornmalamenn_hardordir/    

http://www.visir.is/article/20100105/VIDSKIPTI06/986037520/-1 

.

sólarlag 

.

 


Hverjar verða hugsanlega afleiðingarnar ef Icesave verður hafnað ?

 

Ég hef verið að vafra um netið og lesa skoðanir fólks um Icesave.

Þjóðin er klofin, það er ljóst.

Mér finnst athyglisvert ef rétt reynist að fulltrúar Indefence, þeir átta karlmenn sem hittu forsetann, eru fjórir flokksbundnir Framsóknarmenn og fjórir flokksbundnir Sjálfstæðismenn.

En kæmi svosem ekki á óvart.  Það er bullandi valdabarátta í gangi.

.

fundur

Mbl.is/Ómar.

.

Eina athugasemd las ég, sem mér þótti verulega þess virði að ígrunda;

.

"Það liggur algjörlega ljóst fyrir og það er hreint ótrúlegt hvað fólk er heimskt að skilja það ekki að ef að samning um Icesave er hafnað jafngildir það greiðslufalli. Það þýðir junk bond status á alla fjármálagerninga með ábyrgð íslenska ríkisins. Það þýðir hrun Landsvirkjunar, Orkuveitunnar, lokun á gjaldeyrisviðskipti við útlönd og í kjölfar spark út úr EES sem þýðir að við getum ekki einu sinni selt fiskinn sem við veiðum á sómasamlegum verðum.
Það er hreint ótrúlegt að ábyrgðaleysi hjá Sigmundi Davíð og pakkinu í kringum hann að ætla að taka áhættu á að koma þessari atburðarrás af stað". 

.

Erum við að sigla inn í allrosalega kreppu ?

Vonandi ekki.

.


mbl.is Ekkert við frestinum að gera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.12.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband