16.7.2007 | 14:00
Úrslit farin að skýrast.
Nú er ég búin að raða blogg-skák-vinum mínum með tattoo upp í ákveðinni röð.
Glöggir lesendur sjá strax að þarna er komin afar líkleg niðurstaða í væntanlegu móti.
Kristjana vinnur og því er hún efst. Til hamingju Kristjana mín.
Svo kemur Brattur. Með hann sem dómara í mótinu verður ekki hjá því komist að hann dæmi sjálfum sér nokkra sigra og komist upp með allskonar svindl og svínarí. Hann er hrókur alls fagnaðar og er þá með þrjá hróka. Það verður erfitt að eiga við úthugsaðar brellur hans. Maðurinn er kex !
Þriðja sætið kemur í hlut Bjargar. Það veit nefnilega enginn hvaða andstæðing hún hefur að geyma. Þetta er stelpa með fullt af nefbeinum. Hún stundar flúðasiglingar villt og galið... aðallega galið. Strákarnir munu vaða upp í hugsunarlausa sókn og gleyma að verjast. Hún heimaskítsmátar þá.
Edda fær fjórða sætið. Það þarf ekkert að rökræða það. Edda ! Þú ert ekki einu sinni bloggvinkona mín. Lagaðu þetta stelpa.
Fimmti verður Ægir. Hann kann víst Sikileyjarvörn, drottningarvörn og prinsessuleik, auk þess sem hann hefur þróað með sér afar mikla þolinmæði undanfarnar vikur. Ægir er búinn að vera allt þetta ár að fúga smá klósettkytru. Hvernig er þetta hægt ?
Í sjötta sæti kemur Halldór. Hans tími er ekki kominn. Ágústmánuður sem átti að fara í að læra mannganginn, fer að mestu í tiltekt í garðinum. Halldór hefur nýlega viðurkennt að hann er búinn að missa alla stjórn á trjágróðrinum sínum. Nú stjórna Aspirnar á hans heimili. Þess má geta í framhjáhlaupi að Halldór býður upp á fyrirtaks skíðasvæði í kartöflugarðinum heima.
Nú vil ég ekki fara lengra í verðlaunasætaúthlutuninni því ég verð sífellt óvinsælli eftir því sem neðar dregur.
Sjálf mun ég lauma mér ofarlega á listann, mér sjálfri til ómældrar ánægju.
Það er ekkert grín að vera svín.
16.7.2007 | 09:15
Stelpupör.
Það er vandi að vera stelpukjáni og kostar fórnir.
Ég geri eitt og annað til að viðhalda stelpuímyndinni, sem er auðvitað minn stíll og hefur verið síðan ég var stelpa.
Fólk eyðir áratugum í að leita að sjálfu sér og finna sér sinn eigin stíl. Sjálf gafst ég upp á að leita eftir fertugt,, ákvað þá með stæl að vera bara áfram stelpa. Þessvegna kemur ekki til nokkurra mála að gera eitthvað sem breytir mér í kjéddlingu.
Eitt er það sem veldur ama - aðallega öðrum - því ég er langoftast hæstánægð.
Ég sé ekki rassgat útfyrir 10 metra radíus. Það heitir að vera nærsýn.
Þetta orsakar það, að í 20 ár hef ég ekki heilsað fólki sem ég mæti í bílum nema ég þekki bílinn. Í sama árafjölda hef ég heldur ekki heilsað fólki sem er svo óprúttið að ganga hinumegin við götuna.
Ég á sko gleraugu ! En þau henta hræðilega mínum stelpustíl því ég breytist í kennslukonu ef ég set þau á andlitið á mér. Á mjög áhrifamikinn hátt.
Er n nokkuð að lesa þetta ? Einu sinni prófaði ég að setja upp gleraugun þegar ég var að keyra og þá brá mér heldur betur ! Ótrúlega var mikil umferð. Ég tók þau strax niður aftur, því ég varð hreinlega dauðskelkuð að sjá alla þessa bíla. Miklu öruggara að sjá minna.
Á íþróttaleikjum vandast málið. Enginn fókus ! Verð að viðurkenna að tvisvar eða þrisvar hef ég laumað glyrnunum á nefið á mér, sem áhorfandi á verulega spennandi körfuboltaleikjum. En við erum þá að tala um fjögurra liða úrslit og allt í laumi. Megi himnarnir hrynja á gleraugun mín ef ég næst á sjónvarpsmynd með þau.
Nú man ég ! Stalst líka einu sinni til að lauma rúðunum á nefið í leikhúsi. Hafði heyrt að leikarinn yrði gersamlega berrassaður í lokaatriðinu. Svoleiðis löguðu vill nú enginn, með virka hormónastarfsemi, missa af. Nektaratriðið stóð yfir í hálfa sekúndu. Svindl !
Linsur er ég sko búin að reyna að prófa. Augnhárin mín breytast í útkastara. Kasta linsunni út - áður en hún kemst inn. Þar gafst ég upp þegar fjórar linsur voru ónýtar.
Annars veit ég ekki af hverju ég er að pikka þetta ! Þetta er sko ekkert mál fyrir Önnu sál.
Sé´ðig !
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Bloggfærslur 16. júlí 2007
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði