20.3.2008 | 22:53
Oft er bloggari kattliðugur eftir æfingar.
Nú þegar Páskahátíðin fer í hönd með tilheyrandi áti, er ekki úr vegi að taka léttar æfingar á milli máltíða. Ég fékk fyrirsætu til að sýna æfingar sem þið getið gert.
.
Leggist niður og andið djúpt að ykkur.... muna að slaka vel á.
Lyftið höfði upp og til hægri. Þessi æfing styrkir magavöðva. Það má sleikja sig aðeins í leiðinni.
Teygið vinstri loppu út og haldið í þrjár mínútur. Mjög gott fyrir hálsvöðva.
Lyftið síðan vinstri loppu upp og teygið vel á. Æfingin hentar vel fólki sem er inni í sér.
Veltið ykkur á hina hliðina og spennið kviðinn út. Smá naflaskoðun.
Að lokum skal fara í fósturstellinguna og sofna vært.
20.3.2008 | 12:00
Sonur minn var tekinn.
Tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur í Borgarnesi (sjá hér)
Þetta er fyrirsögnin á Vísi.is. Síðan kemur;
Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði í gærkvöldi tvo ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumennirnir eru báðir á þrítugsaldri. Þá var annar ökumaður á fertugsaldri tekinn í morgun vegna ölvunaraksturs.
Fram kemur í afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra að í síðasta mánuði hafi 96 ökumenn verið teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna á landinu öllu eða að meðaltali 3,3 á dag.
------------------------------------------------
Sonur minn er annar þeirra sem var stöðvaður. Það eru engin tíðindi hér á bæ, því hann var um tíma tekinn í dópleit þrisvar í viku. Hann gat ekki um frjálst höfuð strokið og ef hann átti að mæta í vinnu í Reykjavík á tilteknum tíma, þurfti hann að fá bílinn minn lánaðan til að vera viss um að vera ekki tekinn og koma þar með of seint í vinnu. Sonur minn, eins og margir aðrir unglingar, hefur fiktað við einhver efni, einhvern tíma..... en hann er hreinn núna og hefur verið það nánast í ár. Lögregluyfirvaldið í Borgarnesi er hins vegar ekki á því að gefa unglingum sem vilja bæta ráð sitt, tækifæri.
.
Mér finnst sjálfsagt að lögregla taki menn í tékk..... en hversu oft má lögregla stöðva sama einstakling ? Er í lagi að taka einn einstakling í 50 dópleitir á þremur árum.... og finna nánast alltaf ekkert ? Eru engar vinnureglur um þessi mál innan lögreglunnar ?
.
Hér eru lögregla, sýslumaður og sýslufulltrúi margoft búnir að sýna, bæði mér og honum, að þá skortir alveg þroska í mannlegum samskiptum. Ef lögregla brýtur á honum.... t.d. með því að eyðileggja eigur hans eða með því að láta hann standa úti í kulda og frosti í hálftíma á skyrtunni einni saman, meðan þeir leita í bílnum hans..... þá er ekki viðlit að kvarta til sýslumanns því hann frussar bara á mig í símann, snýr útúr og er dónalegur. Það eru mörg vitni af dónalegri framkomu hans við mig. Sýslufulltrúi bætir um betur og öskrar í símann þegar ég tala við hann.
.
Þetta er allt sami grautur í sömu skál og mér finnst grauturinn vondur.
.
Borgarneslögreglan virðist hafa það markmið að verða fræg fyrir að taka flesta fíkniefnanotendur. Þeir senda ALLT í fréttirnar. Það gleymdist þó að geta þess í síðustu frétt, að prufan kom út hrein, utan smá litabreyting á eitt efni sem fæst ekki einu sinni á Íslandi. Sonur minn fór því fram á að tekin yrði blóðprufa í kjölfarið.
Ef Reykjavíkurlögreglan sendi inn samskonar fréttir af öllum málum sem upp koma... þar sem grunuðum, jafnt og þeim sem teknir eru með nánast ekki neitt, yrðu alltaf gerð góð skil....... þá erum við væntanlega að tala um að gefið yrði út heilt aukafréttablað á Íslandi um þessi mál.
.
Ég gæti skrifað langan texta um einelti lögreglunnar gagnvart syni mínum, sem staðið hefur í 10 ár....eða frá því að hann var 11 ára gamalt barn.... en ég nenni því ekki núna.
.
Þess má samt geta, að þegar tveir erlendir menn réðust á son minn og börðu,, annar þeirra hafði áður hótað honum lífláti vegna þess að sonur minn var á föstu með fyrrv. kærustu hans,, var hringt á lögregluna og beðið um aðstoð en lögreglumaður á vakt sagðist upptekinn við annað og skellti á. Sonur minn komst undan á hlaupum.... bólginn, marinn og með glóðarauga.
.
Það er afleit staða að geta ekki treyst lögreglu, sýslumanni né sýslufulltrúa, ef eitthvað alvarlegt kemur uppá.
---------------------------
Sonur minn er núna í skóla, stundar AA fundi og er á allan hátt að standa sig vel í lífinu. Ég er mjög stolt af honum.
Bloggfærslur 20. mars 2008
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði