Ég á svakalega bágt.

 

Ţetta blogg er búiđ ađ eyđileggja líf mitt.  Frown

Eftir ađ hafa séđ dóma sem falliđ hafa undanfarnar vikur í ýmsum málum, er engum blöđum um ţađ ađ fletta, ađ ég á gríđarlega bágt.

Ég hef veriđ kölluđ bćđi rasisti og nasisti í kommentum á blogginu.  Mér finnst ađ vísu töff ađ ţessi orđ ríma en máliđ er, ađ ef ég höfđa mál, gerir ţetta tvisvar sinnum 300 ţúsund krónur, eđa alls 600 ţúsund krónur, í miskabćtur fyrir mig, miđađ viđ nýfallinn dóm í meiđyrđamáli á blogginu.

Til ađ sýna ykkur fram á alvarleika málsins, ţá jafngildir ţetta fjórum alvarlegum líkamsárásum á konu, međ tilheyrandi spítalaferđ í nokkra daga eđa jafnvel vikur.  Ţetta er jafnslćmt og ađ vera fjórum sinnum barin í klessu á heimili sínu en hvert slíkt tilvik er metiđ á 150 ţúsund krónur í miskabćtur fyrir fórnarlambiđ.  Fjórum sinnum 150 ţúsund eru samtals 600 ţúsund.

Í báđum tilvikum er svo skilorđsbundin fangelsisvist.

Ţađ ţarf engan stćrđfrćđisnilling til ađ sjá hversu grátt ég hef veriđ leikin.  Crying

-----------------------------------------------------------------

En svona í alvöru..... finnst ykkur ţessir dómar í lagi ?  W00t

 


Bloggfćrslur 4. mars 2008

Um bloggiđ

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfiđ

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband