Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.

 

Í gær fjárfesti ég í nammipoka fyrir kisu, svokölluðu kisunammi.  Þegar heim kom, gaf ég henni einn mola og hún smjattaði vel og lengi á honum.  Eftir kvöldmat ætlaði ég svo að lauma öðrum mola að henni en fann þá ekki pokann.  Hér leituðu allir dyrum og dyngjum að kisunamminu en það var engu líkara en jörðin hefði gleypt það.

Eftir langa mæðu fann ég pokasnifsi á gólfinu.  Afganginn af pokanum utan af kisunamminu.  Mér var eiginlega létt að jörðin skyldi ekki hafa gleypt nammið, heldur kisa sjálf.  Tounge  Líklega er henni illt í maganum í dag.

.

------------------------------------------------

Ég var búin að nefna við ykkur afleysingavinnu mína í ávaxtakælinum þessa dagana.  Það sem kemur mér mest á óvart við þá vinnu, sem annars er mjög skemmtileg, er hversu ótrúlega margar tegundir eru til af ávöxtum og grænmeti.  Pinch   Ég þekki varla helminginn af þessu.

.

vitamin_jan07 

.

Í einhverri auglýsingunni sagði;  Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.

Með það í huga, góni ég á alla torkennilega ávexti sem ég kann ekki nafnið á en er þó engu nær. 

Auglýsingar eru bull !

.

------------------------------------------------

.

P.S.  Þessa dagana er ég mjög hamingjusöm.   Það er þó ekki alveg laust við að ég hafi smá samviskubit yfir gleði minni því ég veit að margir eiga um sárt að binda vegna ástvinamissis.
Enn felli ég líka stundum tár yfir Gillí minni og öðrum ástvinum sem eru farnir.  Því vil ég kveikja á kertum fyrir þá sem við söknum og til að sýna samkennd með þeim sem eiga erfitt. 


Með ósk um ljúft kvöld. Heart 

.

Candles2 


Bloggfærslur 16. júlí 2008

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband