Neytendahornið - "Betra bak" tekið í bakaríið.

 

Fyrir 6 árum síðan þurfti ég að fjárfesta í nýju rúmi.  Verslunin Betra bak hafði auglýst og auglýst og sakleysinginn ég beit á agnið hjá þeim.  Eftir að hafa skoðað allnokkur rúm í versluninni festi ég kaup á hjónarúmi fyrir 165 þúsund krónur.  Það átti að hafa þann stóra kost að hafa harða brík á öllum köntum þannig að maður gat sest á það án þess að síga mikið niður.

Nýja rúmið var sent heim.  Fljótlega tók ég eftir því að það var miklu betra að sofa öðru megin í rúminu.  Hinu megin var einhvers konar hola.  Ástæðan var sú að á einni hlið rúmsins hélt bríkin ekki.  Það var m.ö.o. hörð brík á öllum köntum nema einum.

Ég hringdi mörgum sinnum í verslunina til að segja farir mínar ósléttar.  Fékk ég þau svör að bráðlega væri von á dönskum sérfræðingi í heimsókn þannig að best væri að ég sendi þeim rúmið og þá myndi sá danski yfirfara það og ég fengi það síðan bætt.  Og þetta gerði ég.

Fór í kjölfarið til Reykjavíkur og heimsótti "Betra" bak.   Sölumaður tók á móti mér, fullyrti að ég fengi rúmið bætt um leið og danski sérfræðingurinn kæmi og bauð mér annað rúm.  Ekki hafði ég áhuga á samskonar rúmi.  Endaði þessi ferð mín á því að ég keypti annað rúm og greiddi fyrir það 185 þúsund en fékk 80% af verði fyrra rúms til frádráttar.  Þeir lofuðu mér því að ég fengi 20% greidd um leið og sá danski kæmi. 

.

XT6N1151 

Leið svo og beið.  Ég gerði mér aðra ferð í höfuðborgina og heimsótti verslunina að nýju.  Rúmið mitt var þá komið í sýningarsalinn og einhver stráklabbi tók á móti mér.   Danski sérfræðingurinn sást hvergi.  Stráklabbinn lagðist í 5 sekúndur í rúmið og sagði;  "Það er bara allt í góðu lagi með þetta rúm".  Þarna var komið allt annað hljóð í strokk Betra-baks-manna.  Stráksi sagði með yfirlæti þess sem allt veit;  "Sko ef eitthvað er að þessu rúmi, þá eru hinar þrjár hliðarnar OF HARÐAR"

Dísuss !

Ég fullyrti að rúmið væri gallað þar sem ein bríkin væri of mjúk.

Þeir neituðu að rúmið væri gallað af því að ef eitthvað væri, þá væru hinar 3 hliðarnar of harðar. W00t

Strák-skunkurinn hagaði sér dónalega við mig og lét eins og ég væri kjelling sem gengi um veröldina og kvartaði yfir öllu sem nálægt mér kæmi.  Með hörku hélt ég reiðinni í skefjum og fékk þá til að samþykkja að hlutlaus aðili tæki rúmið út.  Maður frá Neytendasamtökunum.

Í næstu ferð minni til Reykjavíkur, skömmu síðar, fer ég inn í Betra bak og ætla að sýna vinkonu minni gallaða rúmið.  Þá er það horfið.  Ég spyr sölumann hvar rúmið sé að finna ? 

Svarið sem ég fékk var að þeir seldu rúmið mitt - sem átti að skoðast af hlutlausum aðila - til einhvers sumarbústaðaeiganda á 80% verði.   Crying

Niðurstaða málsins var sú að ég keypti rúm á 185 þúsund og greiddi auk þess 20% af öðru rúmi.  Þeir tóku af mér réttinn til að fá hlutlausan aðila til að meta rúmið.  Þeir lugu að mér.  Þeir komu fram við mig eins og ég væri kvörtunarskjóða dauðans.  Þeir töpuðu ekki einni krónu á gallaða rúminu.

LÚÐAR ! 

Calvin_and_Hobbes_comics_cartoons_f 

.

 

 

 


Bloggfærslur 13. september 2008

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband