Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008
6.4.2008 | 22:55
Er teljarinn bilaður eða er ég biluð ?
Innlit á síðuna mína eru miklu færri en IP tölur. Með öðrum orðum; þetta er eins og 50 manns hafi kíkt í heimsókn en 80 manns hafi samt komið.
Ætli þessi mismunur tengist krónunni ?
Að 80 manns rýrni svo yfir daginn að þeir séu í raun bara 50 að kvöldi ?
Tja, hvað veit ég ???
.
5.4.2008 | 09:46
Róleg morgunstund - NOT.
.
Morgunstund gefur ýmislegt í aðra hönd.
Þegar ég vaknaði og reis upp, varð mér litið í spegilinn.
.
Ég gólaði.
.
.
.
Brattur spurði; "Hvað sástu eiginlega" ?
Ég benti honum skelkuð á spegilinn.
.
Hann leit í hann .............. og gólaði.
.
4.4.2008 | 20:47
Hrafnkatla Gustavsberg.
Það er helst að frétta af Hrafnkötlu Gustavsberg, að hún stækkar á ljóshraða. Í hvert skipti sem hún heyrir rödd mína, verður hún sársvöng og mjálmar skrækróma mííííííjááá. Það er dálítið kyndugt að hún er ekkert svöng þegar hún heyrir annarra raddir. Ég ætti líklega að vinna við matvörukynningar ?
.
.
Hundurinn nýtist Kötlu sem koddi og rennibraut ásamt ýmsu öðru.
.
.
Katla hefur fengið barnamat undanfarna daga, í bland við Whiskas kæfu og þurrmat. Henni finnst rosa gott að fá kalkúnamauk. Það er rétt eins og Þakkargjörðarhátíð sé runnin í garð hjá henni, upp á hvern einasta dag.
Hrafnkatla fer alltaf í kassann sinn þegar hún þarf að gera númer eitt og númer tvö. Ég horfði á hana fyrir þremur dögum í kassanum. Hún var að gera númer tvö og það leit mjög vel út. Ekki of lint og ekki of hart. Ég var stolt á svipinn ....... ............ alveg þangað til ................. hún hætti að gera númer tvö og var þá svo þreytt að hún settist. Þarna sat hún í hægðum sínum eins og ekkert væri sjálfsagðara.
ALGJÖRT RASSGAT !
.
.
3.4.2008 | 21:23
Gæðastund.
Er sumarið kom yfir sæinn
og sólskinið ljómaði um bæinn
og vafði sér heiminn að hjarta
ég hitti þig, ástin mín bjarta
.
Og saman við leiddumst og sungum
með sumar í hjörtunum ungum
-hið ljúfasta úr lögunum mínum
ég las það úr augunum þínum
.
Þótt húmi um heiðar og voga
mun himinsins stjörnudýrð loga
um ást okkar, yndi og fögnuð
æ, er ekki tilveran mögnuð ?
Höfundur síðustu línu AE. smáskáld.
Höfundur lags og texta Sigfús Halldórsson / Tómas Guðmundsson
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.4.2008 | 21:02
Hugsa bloggvinir.... hugsa.
Öll höfum við ákveðnar hugmyndir um hvaða matur passar saman;
.
Læri, kartöflur, grænar baunir, rauðkál, sulta, sósa
eða
Fiskur, hrísgrjón, hrásalat, brauð
eða
Buff, kartöflustappa, sósa og spælegg
Nú verð ég að hætta að telja upp, því ég er orðin svo svöng.
------------
EN...... hvaða matur passar hræðilega illa saman ?
------------
Ef þið ættuð að hrekkja einhvern með svakalegri samsetningu á mat, hvernig liti sú samsetning út ?
Þetta getur komið sér vel síðar, ef einhver mætir iðulega í heimsókn, einmitt á matartíma, dag eftir dag.
2.4.2008 | 18:04
Hver hefur svar á reiðum höndum ?
Ef ég er spurð að einhverju, hef ég nánast aldrei svar á reiðum höndum.
Það er nú algjör óþarfi að hugsa að ég sé svo vitlaus, þú þarna lesandi. Hvaðeraððér ?
.
Hendurnar mínar eru bara undantekningalítið glaðar en ekki reiðar.
Þessi dama gæti haft svar við nánast öllu, á reiðum höndum:
.
.
Í einu er ég virkilega ágæt.
Ég get látið hendur skipta.
Skipta á rúmunum, skipta fótboltamyndum og skipta um dekk.
Bara að nefna það og ég læt hendur skipta.
.
Þið munið þetta, næst þegar þið lesið um handalögmál.
----------------------
p.s. Gamlir og grónir lesendur mínir vita að einhver sauðurinn gerði stólpamistök þegar hann bjó til orðið "handklæði".
Handklæði eru auðvitað vettlingar. Kjánar.
1.4.2008 | 21:33
Ég er ólétt.
Í dag er ég búin að velta fyrir mér, hvaða hroðalega hrekk ég eigi að fremja.
.
Ég byrjaði reyndar í morgunkaffinu og tók vinnufélaga "á teppið". Kallaði á hann og bað hann að fylgja mér á skrifstofuna mína, grafalvarleg á svip.
Síðan lét ég hann bíða meðan ég svaraði í símann og sá að hann varð ögn óstyrkur. Þegar ég hafði lagt á, liðu 10 sekúndur í nærri óbærilegri þögn þar sem ég horfði á hann með hrukkað enni.
Síðan sagði ég "1. apríl".
Hann hló og við gengum niður aftur. Ég kallaði á næsta vinnufélaga og endurtók leikinn. Sá viðhafði verulega ljótt orðbragð þegar ég sagði honum erindið. Það er ekki hafandi eftir.
Þasso gaman að stríða.
.
En það er ekki allt búið enn. Vinnufélagi minn, pólskur, sendi mér sms. (ritað með hans hætti)
"Godan daginn Ania. How are you? I have a question about new 4 new guys to work. How long time they will live in us apartment ? This is problem, because it´s 8 guys there together. Can you ask Siggi? Takk. Have a good day".
.
Já, hugsaði ég. Þeir voru bara 4 í íbúðinni síðast þegar ég vissi. Nú hefur einhver í fyrirtækinu alveg gleymt að tjá sig. Ég hringi í Sigga og spyr hann. Hann, eins og ég, hefur ekki hugmynd um hvaða fjórir gæjar þetta eru og hann segir mér að hringja bara í pólverjann og spyrjast nánar fyrir um þetta. Rétt í sama mund og ég hringi, hringja bjöllur í kolli mínum. Við höfðum bæði verið plötuð.
.
-----------------------------
Ég ákvað fyrr í dag að segja opinberlega frá því hér, að ég er ólétt.
ÓLÉTT.
.
-----------------------------------------
En það eeeer ljótt að plata.
Ég segi því bara satt;
Ég er létt.
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði