Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010
28.2.2010 | 14:18
Hugmyndaflug á heimsmælikvarða.
25.2.2010 | 14:27
Ég festist næstum því í skafli.
Í gær var enginn snjór !
Það er óhætt að segja að veturinn hafi skollið á fyrirvaralaust.
Ég er búin að fara út í tvígang í morgun.
Í síðara skiptið óð ég skafl sem náði mér upp fyrir nafla. Var næstum því föst.
Og jeppinn í næstu götu komst hvorki áfram né afturábak. Hann var alveg fastur.
Það má því með sanni segja að ég sé betri en jeppi.
Og það hvíla auk þess engin okurlán á mér.
.
.
.
Best að kúra í dag.
.
.
.
Börn send fyrr heim úr skóla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.2.2010 | 11:30
Fólk hlær miklu meira ef bannað er að hlægja.
Þegar ég var krakki, fyrir ekki svo alllöngu, ólst ég upp í sveit. Mér verður oft hugsað til þess nú þegar dóttir mín sem hefur allt til alls og vini allt um kring, segir reglulega: "Ég hef ekkert að gera".
Ég hafði nánast alltaf eitthvað að gera þegar ég var krakki. Nema kannski á Föstudaginn langa en þá var verslunin við hliðina á æskuheimili mínu lokuð og sjónvarpsefnið á þá lund að hver meðalmaður gat hæglega drepist úr leiðindum, Guði til samlætis.
Og hvað gat krakki dundað í sveit, upp úr miðri síðustu öld ?
Á sumrin var farið í alls konar leiki. Við spiluðum reglulega fótbolta og það var fátt skemmtilegra en að sóla "gamla" menn. Borðtennis var líka eitt af mínu uppáhalds..
Á veturna spiluðum við blak einu sinni í viku - krakkar og fullorðnir. Skákmót voru fastur liður og svo söng ég í kór. Kórinn söng að vísu bara fyrir jól og páska því eins undarlegt og það nú er, þá var fólk bara ekkert að deyja á þessum árum og því man ég ekki eftir einni einustu jarðarför fyrr en afi dó þegar ég var komin hátt á þrítugsaldurinn.
.
.
Mér fannst býsna gaman í kórnum. Skemmtilegasta atvikið átti sér stað í miðri messu. Afar stór og pattaraleg maðkafluga sveimaði um kirkjuna og það fór ekki fram hjá kórfélögum því kórinn var staðsettur uppi á svölum eða svokölluðu kirkjulofti.
Í kirkjunni var allmargt fólk. Flugan gat auðvitað ekki flogið viðstöðulaust alla messuna svo hún hefur tekið ákvörðun um að lenda. Til þess valdi hún - og mér fannst það vel valið - eina skallann í kirkjunni. Maðurinn sem átti skallann fékk við þetta einhvern kláða í höfuðið og klóraði sér. Flugan lyfti sér á meðan en settist niður um leið og hönd mannsins hvarf. Þannig gekk í langan tíma; Flugan settist og manninn klæjaði, maður klóraði og fluga flaug á meðan en settist svo aftur - alltaf á sama stað.
Kannski er þetta ekki svo fyndið að lesa..... en að horfa...... maður minn !
Ég hló svo ofboðslega að tárin láku niður kinnarnar - en maður hlær alltaf miklu meira þar sem alls ekki má hlægja.
Þáttastjórnandinn í myndbandinu hérna átti til dæmis ekki að hlægja:
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
"Lögreglan segir að það geti valdi mikilli hættu fyrir ökutæki sem er að draga kerrur, auk þeirrar getur þetta valdið mikilli hætti fyrir ökutæki sem flytja slíkar kerrur auk þeirrar hættu sem það geti skapað öðrum vegfarendum".
.
Eruð þið búin að lesa þessa frétt tvisvar ?
Þegar maður les svona þvælu, er ekkert annað að gera en að skella höndinni á læri eins og amma heitin gerði og segja "Ég er svo aldeilis hissa" !
.
.
Er þetta boðlegt ?
Hættulegt að aka með kerrur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.2.2010 | 15:14
Lestir en ekki kostir.
Í æsku voru mér kennd ákveðin gildi, eins og heiðarleiki, sannsögli, ábyrgð og gæska. Mér var sagt að þeir sem lifðu lífi sínu samkvæmt þessum gildum, teldust vera mannkostamenn miklir.
Það virðist eins og gildin hafi snúist við á síðustu árum og nú er þjóðfélagið sem við byggjum að reyna að segja okkur að það sé allt í lagi að ljúga, stela og vera vondur.
Þetta gerir mig alveg ruglaða.
Eru allir búnir að gleyma boðorðunum tíu ?
.
Árið 2007 sat ég stundum og velti því fyrir mér af hverju sumir urðu svo ofsaríkir, að því er virtist upp úr þurru. Ég hugsaði "hvað er það sem þeir hafa í kollinum sem ég hef ekki"? Engin varð niðurstaðan af þessum pælingum. Nema ef vera skyldi að ég væri orðin gamaldags. Ég bara skildi þetta ekki. Fyrr en seinna. Þá uppgötvaði ég að það voru græðgi og óheiðarleiki sem helst einkenna þá ofurefnuðu. Lestir en ekki kostir.
Mikið er nú gott að vera gamaldags.
.
.
Ég held ég sé orðin tilbúin til að verða AMMA.
12.2.2010 | 16:55
Muna að safna orku.
Þar sem helgin er að renna í garð, finnst mér tilvalið að við tökum okkur einhverjar stundir í burtu frá argaþrasinu og hlöðum batteríin á ný.
Hvernig hljómar til dæmis:
- Gönguferð í blíðunni
- Góður matur við kertaljós
- Ein góð bíómynd
- Spila á spil
.
Og ef fólk vill lesa blogg um eitthvað annað en pólitík, þá mæli ég í dag með:
- Hrönn
.
Góða helgi.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.2.2010 | 12:06
Jólakveðjur.
Það eru ekki alltaf jólin....... hélt ég......... þar til ég sá ÞETTA.
Jóla hvað !
Mögulega fæ ég óvæntar óskir um gleðileg jól 2009 alveg fram á vor 2010.
Það verður nú að segjast eins og er, að mannabreytingarnar á Mogganum virðast ekki ætla að skila bættari vinnubrögðum. En hver bjóst svosem við því ?
Kötturinn sagði "ekki ég".
.
.
6.2.2010 | 12:48
Ég er að spá í að stela.
Þar sem ég er bara heimavinnandi húsmóðir þessa dagana og vantar örlitla fjölbreytni í líf mitt, hef ég verið að velta fyrir mér ýmsum möguleikum.
Ein hugmynd mín er sú að gerast þjófur.
Það er að vísu ekki ný hugmynd því margir hafa áður fengið slíka hugdettu.
En í dag felast einmitt miklir möguleikar í því að vera þjófur.
Fyrst fer ég í búðina og stel einu lambalæri. Lærið er stórt og ég er lítil, þannig að yfirgnæfandi líkur eru á að upp um mig komist. En það gerir ekkert til. Ég segi bara við lögregluna: "Strákar mínir, við skulum ekkert vera að dvelja við fortíðina". (ég stal sko lærinu daginn áður) "Það er framtíðin sem skiptir máli".
Og ef það dugir ekki segi ég: "Ó ! Ég vissi ekki að það væri ólöglegt að stela. Smá mistök, þið afsakið. Ég skila bara lærinu og málið er dautt".
Já, því meira sem ég hugsa málið, því betri finnst mér hugmyndin. Þetta er spennandi en á sama tíma tek ég enga áhættu. Ég gæti jafnvel endað sem þingmaður !
.
.
Það er þó alveg bannað að stela kökum úr krúsum í gær því nær öruggt er að jafnvel börn muni spyrja hver hafi gert það.
Anna litla þjófur.
.
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði