7.2.2009 | 09:13
Mandana Masa.
Í fyrrinótt dreymdi mig að ég bakkaði á. Mér fannst höggið lítið svo ég ákvað að keyra bara af stað. Maður getur jú leyft sér örlítið sveigjanlegri hegðun í draumaheimi. Nú, þar sem ég keyri í burtu, lít ég í baksýnisspegilinn og sé......
..... stóran, kolsvartan, glansandi sendiferðabíl sem merktur er LÖGREGLAN.
Bíllinn sem ég bakkaði á. Ég gerði það besta í stöðunni. Ég vaknaði.
.
.
Í nótt var ég svo stödd innan um fullt af fólki. Það var eitthvað að spjalla þegar einn maðurinn segir upp úr þurru: "Mandana Masa".
Ég sprakk úr hlátri.
Hló hátt og vakti bæði sjálfa mig og annan til.
"Mandana Masa" er auðvitað ekki íslenska og heldur ekki enska.
Ég komst að þeirri skemmtilegu staðreynd að....... Ég skil bull.
.
Ég gúgglaði "Mandana Masa" og fékk m.a. upp þessar myndir;
.
.
.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.2.2009 | 21:38
Góði Guð.
Haltu verndarhendi yfir mömmu og pabba og ömmu.
.
.
Og taktu til þín köttinn í næsta húsi.
Amen.
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.2.2009 | 20:32
Traust efnahagsstjórn.
Það mætti halda að Íslendingar líti samskonar augum á stjórnmálaflokka eins og enskir líta á fótboltalið. Það er haldið með liðinu - sama hvað !
Sumir eru svo miklir sjallar að þótt flokkurinn seldi ömmu kjósandans, myndi kjósandinn samt halda áfram að setja x við dé-ið.
Af því bara. Hef alltaf gert það. Afi gerði það líka. Og pabbi.
.
Sjálfstæðisflokkurinn lagði það pólitíska landslag sem leiddi til efnahagshruns þjóðarinnar. Þeir einkavæddu og settu reglurnar og áttu að sjá til þess að eftirlit væri fullnægjandi. Og þeir brugðust illilega.
Kjörorð þeirra fyrir síðustu kosningar var Traust efnahagsstjórn.
Hahahahahaha
Fyrirgefið.... mér finnst þetta bara svolítið fyndið.
.
Kæru Íslendingar.
Með því að kjósa sjálfstæðisflokkinn aftur eruð þið að leggja blessun ykkar yfir efnahagslegt hrun landsins. Leggja blessun yfir ærumissi okkar á alþjóðavettvangi. Leggja blessun yfir spillinguna.
Ekki gera það.... plís.
![]() |
Sjálfstæðisflokkur stærstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2009 | 20:08
Eins og þungu fargi af mér létt.
Það er eins og þungu fargi sé af mér létt að sjálfstæðisflokkurinn skuli vera kominn í frí.
Mér líst afar vel á málefnasamning nýju ríkisstjórnarinnar, svo vel að það mætti halda að ég hefði smíðað hann sjálf ! Án gríns þá hjó ég ekki eftir einu einasta atriði sem ég var ósátt við varðandi málefnin. Nú er að sjá hvort ríkisstjórin fái starfsfrið fyrir sjöllunum. Það væri nú alveg eftir þeim að reyna að skemma fyrir góðum verkum.
Ef ég hefði ráðið öllu, (það skal tekið fram að ég réð engu) sæjum við dálítið öðruvísi samansetta ríkisstjórn. Ég er mjög sátt við helminginn af ráðherrunum en hæfilega efins varðandi hinn helminginn. Hefði viljað sjá önnur andlit í sumum stólunum án þess að ég ætli að tilgreina sérstaklega hverjum.
Það gladdi mitt hjarta þegar Jóhanna sagði í sjónvarpinu áðan að hún ætli ekki að bruðla.... hún ætli bara að forgangsraða rétt. Það er nákvæmlega málið þegar auraráð eru lítil og ég treysti henni fullkomlega til að standa með þeim sem minnst mega sín.
Áfram Jóhanna og til hamingju !
![]() |
Slá skjaldborg um heimilin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.1.2009 | 22:48
Bara ef allir væru svona kátir....
.
.
31.1.2009 | 14:30
Amen á eftir efninu.
Myndir þú einhvern tíma stofna fyrirtæki, ráða 63 starfsmenn, skipta þeim í nokkra hópa og segja sem svo..... "sá hópur sem stendur sig best fær að vinna áfram eftir 4 ár" ?
Er það ekki beinlínis ávísun á að hver hópurinn vinni gegn öðrum ?
Og að fái einn hópur góða hugmynd, verði hún rifin niður af hinum hópunum vegna þess að velgengi einhvers hóps ógnar tilveru þess næsta ?
Af hverju erum við með svona furðulegt kerfi á Alþingi ?
Ég segi fyrir mig að stofnaði ég fyrirtæki, vildi ég að starfsmenn ynnu að hag fyrirtækisins sem ein heild. Og þannig er það í öllum fyrirtækjum.
.
.
Því er það staðföst skoðun mín að flokkakerfið sé úrelt... hafi það einhvern tíma verið gott.
Endurvekjum lýðræði á Íslandi og kjósum fólk.
Leggjum niður gömlu flokkana í næstu kosningum.
Amen.
.
31.1.2009 | 11:49
Spegill, spegill, herm þú mér.......
.
.
Mig langar svo að sýna ykkur þennan spegill sem ég fékk í jólagjöf.
Hann er búinn til úr keramik og listamaðurinn er dóttir mín, 12 ára gömul.
.
30.1.2009 | 19:30
Lét Geir þá stjórnast af ÁST ?
Geir segir að Samfylkingarmenn, ásamt einhverjum öðrum, hafi látið stjórnast af hatri á Davíð Oddssyni þegar þeir vildu segja honum upp starfi.
Þetta er í meira lagið fyndið.
Hvað með alla sem fengið hafa uppsagnarbréf undanfarna mánuði ? Eru þeir þá hataðir af sínum vinnuveitendum ? Maður spyr sig !
Stundum þarf einfaldlega að segja fólki upp, ýmist vegna hagræðingar, minni verkefnastöðu eða í einstaka tilfellum vegna þess að starfsmaðurinn vinnur ekki nógu vel.
Það var einmitt málið með Davíð og Seðlabankann. Og Fjármálaeftirlitið. Og Sjálfstæðisflokkinn. Þeir unnu þjóð sinni ekki nógu vel og því hefur þeim verið sagt upp störfum.
.
Það skyldi þó aldrei vera að Geir elski Davíð ?
.
.
![]() |
Geir: Stjórnuðust af hatri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2009 | 20:11
Brilljant nafn !
Þeir eru sniðugir Rússarnir þegar þeir skíra börnin sín.
Mér finnst til dæmis alveg stórkostlegt nafn á rússnesku tenniskonunni;
Dinara Safina.
.
Svona lítur það svo út með eðalgóðum framburði;
Dína Rassafína.
![]() |
Williams og Safina í úrslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2009 | 18:33
Íslendingar svelta.
Mér rann til rifja að lesa Þessa frétt í DV. þar sem fjallað er um eldri mann sem sveltur.
.
.
Þessi sami maður lagði Fjölskylduhjálpinni til aðstoð meðan hann hafði vinnu. Nú þarf hann sjálfur að leita þangað eftir aðstoð, eftir að hann og konan hans misstu bæði vinnuna. Það er illa komið fyrir mörgum fjölskyldum þessa dagana en sárast finnst mér þegar eldra fólk, sem skilað hefur ærnu ævistarfi, þarf að kyngja stoltinu og biðja um hjálp.
Það er skylda okkar sem eigum eitthvað smávegis afgangs að hjálpa þeim Íslendingum sem standa í þessum hræðilegu sporum.
Í dag lagði ég pening inn á Fjölskylduhjálp Íslands og ég skora á ykkur, sem getið, að leggja eitthvað smávegis af mörkum.
0101-26-66090, kennitala 660903-2590.
Það á enginn að þurfa að svelta á Íslandi, sama hversu bágborið annars efnahagsástandið er.
Þetta er bara spurning um að reyna að skipta jafnar á milli.
.
Knús á línuna.
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 343426
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði