Færsluflokkur: Spil og leikir

Ég á svakalega bágt.

 

Þetta blogg er búið að eyðileggja líf mitt.  Frown

Eftir að hafa séð dóma sem fallið hafa undanfarnar vikur í ýmsum málum, er engum blöðum um það að fletta, að ég á gríðarlega bágt.

Ég hef verið kölluð bæði rasisti og nasisti í kommentum á blogginu.  Mér finnst að vísu töff að þessi orð ríma en málið er, að ef ég höfða mál, gerir þetta tvisvar sinnum 300 þúsund krónur, eða alls 600 þúsund krónur, í miskabætur fyrir mig, miðað við nýfallinn dóm í meiðyrðamáli á blogginu.

Til að sýna ykkur fram á alvarleika málsins, þá jafngildir þetta fjórum alvarlegum líkamsárásum á konu, með tilheyrandi spítalaferð í nokkra daga eða jafnvel vikur.  Þetta er jafnslæmt og að vera fjórum sinnum barin í klessu á heimili sínu en hvert slíkt tilvik er metið á 150 þúsund krónur í miskabætur fyrir fórnarlambið.  Fjórum sinnum 150 þúsund eru samtals 600 þúsund.

Í báðum tilvikum er svo skilorðsbundin fangelsisvist.

Það þarf engan stærðfræðisnilling til að sjá hversu grátt ég hef verið leikin.  Crying

-----------------------------------------------------------------

En svona í alvöru..... finnst ykkur þessir dómar í lagi ?  W00t

 


Undur undur en engin stórmerki.

 

Þessi padda finnst í Indónesíu og kallast Undur undur .... ef ég hef skilið indónesískuna rétt.  FootinMouth

.

myrmeleon-undur-undur

 

 

Myndin hér til hliðar sýnir Undur undur nýkomna úr vinnunni og við erum augljóslega að tala um sóðavinnu hérna.  Æi greyið.  Pouty

 

 

 

 

 

 

526354_undurantlion

 

Hérna er Undur undur búin að fara í bað og er nú orðin allmiklu frýnilegri padda... allt að því hugguleg.

Kannski er hún að fara á deit.  Smile

 

 

 

Ég sakna stundum þáttarins Nýjasta tækni og vísindi.  Sideways 


Tilvísun.

 

Langfyndnasta færsla sem ég hef lesið í vikunni er hjá henni Ragnheiði, bestu bloggvinkonu.

 

d778a6b98c0541c4f9183c14c52e5ef7


Ég er bara að reyna að lengja líf þitt.

 

laugh       Kitty%20Laugh

 

 

 

Hvað sagði appelsínan við hina appelsínuna þegar hún datt í sjóinn ?

 

 

 

 

 

laughing%20baby

laugh     

 

 

 

 

 

          

          

 

            Skerðu þig í báta, skerðu þig í báta !!!!


Þetta er dagsatt.

 

 

district_judge1

Sonur minn þurfti að bera vitni í réttarsal um daginn.  Hann gekk inn í dómsalinn og horfði í kringum sig.  Hann sá að dómarinn var í kjól og lögmaðurinn líka. 

 

 

 

Þá mælti sonur minn hátt og snjallt: 

 

"Átti ég kannski að mæta í kjól"?  

 

Ég er náttúrulega svo furðuleg en mér fannst þetta alveg hroðalega fyndið.  LoL

 

 


Nýtt logo.

 

Loksins, loksins er þessi síða komin með sitt eigið LOGO.

Það er að vísu frekar illa fengið.  Ég stal því frá einhverjum Fullum sem stal því frá öðrum bloggara og ég hef satt að segja ekki hugmynd um hvort hann stal því líka.

En hingað er það komið. 

Þetta er dálítið í stíl við merki sparisjóðanna eins og þið sjáið.... alveg eins svona fjögur eitthvað: 

 

Sparisjóður Mýrasýslu:  

logo18

Sparisjóður grínista: 

 

    d778a6b98c0541c4f9183c14c52e5ef7

 

 


Hver er þetta ?

 

Ef að þetta er ég  Shocking

og þetta er Ragnheiður  Kissing

og þetta er Brattur  InLove

og þetta er Þorsteinn Valur  Cool

og þetta er Halldór  W00t

og þetta er Jón Steinar  Smile

og þetta er Helena  Joyful

og þetta er Gunnar Helgi  Sideways

og þetta er Lára Hanna  Wink

Hver er þá þetta ?  Ninja   ????????

.

.

.

image021

 


Farið að bauka við að búa til bauka.

Áminning til bloggvina með tattoo.

.

Eftir þrjár vikur, þann 15. mars næstkomandi, ætlum við að hittast og etja kappi í norsku Rommýi.  Smile   Jabbedíbabbedídú.

Verðlaun verða að sjálfsögðu veitt fyrir alla frammistöðu, jafnvel þá alslökustu.  Brattur dómari og Halldór yfirdómari munu sjá til þess að keppnin verði drengileg og stúlkuleg.  Whistling

Farið er fram á að keppendur mæti með heimatilbúinn sparibauk og má hann vera í hvaða formi sem hugmyndaflug framleiðenda leyfir. 

Hér koma einhverjar hugmyndir:

 4pigs
        clown-fish-stuffed-beanbag-f1617      

 

 

 

 

                             

                              1164718693752

Doll

                             

 

 

c_documents_and_settings_anna_desktop_myndir_ofl_my_documents_myndir_barcelona2_20058


Þessi er spennandi.

 

...Af hverju var skjaldbakan fljótari en Brattur vinur minn,  út í bakaríið í morgun ???  Gasp

.

BTSide

.


Það er púki í púkanum mínum.

Þessi texti hefur verið að bögglast í mér undanfarið:

Er ég kem heim í Búðardal
bíður mín brúðarval
Ó ég veit það verður svaka partý.
Býð ég öllum úr sveitinni
langömmu heillinni  Pinch 
það mun verða veislunni margt í.

.

Þetta rímar ekki en það er líka erfitt að bjóða langömmu heitinni.. nánast ómögulegt.
Því gúgglaði ég textann og fékk hann allt öðruvísi:

.

Er ég kem heim í Búðardal
bíður mín brúðarval
og ég veit það verður svaka partý
Býð ég öllum úr sveitinni,
langömmu heitinni
myndi þykja veislunni margt í.

.

Langamma var semsagt aldrei boðin í partýið.  Pouty

-----------------------------------------------------------------------------------------

Ps.  Púkinn vildi ekki orðið "gúgglaði" og kom með breytingatillögurnar:

gígglaði
gúlglaði
gúmglaði
gúuglaði
kúgglaði
múgglaði
rúgglaði
súgglaði

Getur einhver útskýrt hvað þessi orð þýða ?  Shocking

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband