Væntumþykjupistill.

.

Ég hef oft sagt að systkinin í Dal séu meira eins og systkini mín en frændfólk, enda ekki nema 3 kílómetrar á milli æskuheimila okkar og samgangur nokkuð mikill.

Í Dal bjuggu amma og afi okkar allra.  Afi gaf okkur stundum í nefið (ekkert svo oft en það er bara svo gaman að segja frá því) en amma gaf okkur eitthvað gott að borða, spilaði við okkur og kenndi okkur bænirnar.

 

Gillí er elst af okkur.  Við litum upp til hennar.  Rósa, Halldór, Þorgeir og ég erum öll á sama aldri.  Egill og Helga voru svo litlu börnin.... en eru það reyndar ekki lengur.  Wink  Egill er meira að segja orðinn doktor ..... FootinMouth ....  kannski skrifað með stóru Déi ?

.

Við krakkarnir lékum okkur í bílaleik og dúkkuleik, feluleik, "búó" og draugaleik.  Við áttum líka horn, leggi og kjálkabein og gátum því verið stórbændur ef okkur bauð svo við að horfa.  Þegar Rósa lærði að lesa, lærði ég að lesa.  Þegar Rósa lærði að prjóna, lærði ég að prjóna.  Þegar Halldór lærði að hjóla, lærði ég að hjóla. 

Einfalt kerfi og skilvirkt.  Smile 

Við fundum út svör við gátum lífsins í sameiningu:  "Verður Helga systir Jesú þegar hún verður stór" ? var ein af stóru spurningunum sem ég man eftir að hafa borið fram.  Helga er nefnilega fædd á Jóladag og því fannst mér nokkuð sjálfsagt að hún tæki við hlutverki Jesú þegar hún hefði aldur til.

.

Síðar, þegar við urðum unglingar, leigðum við saman um tíma.  Þá var oft mikið gaman og alltaf kom okkur vel saman.  Halldór er langskemmtilegasti sambýlismaður sem ég hef haft.  Við hlógum einu sinni í gegnum alla Hagkaupsbúðina vegna þess að hann hafði sprautað sjampói upp í nefið á sér þegar hann ætlaði bara að finna lyktina.....og þegar við Halldór hlægjum saman... þá smitum við hvort annað og getum illa hætt.... hreinlega grátum úr hlátri.

.

Árið 2000 varð Golfklúbbur Guttorms tudda til.  Það er félagsskapur gamalla Miklhreppinga og áhangenda þeirra sem eiga reglulega saman góða stund við golf á sumrin en á veturna er keppt í ýmsum íþróttum, s.s. keilu, billjard, pílukasti, félagsvist, skák og badminton.  Drifkraftarnir í Guttormi eru Gillí og Þorgeir.  Það er alveg frábært að slá tvær flugur í einu höggi;  hitta gamla vini og leika sér með þeim í leiðinni.  

.

Gillí hef ég kynnst á annan hátt á blogginu.... betur en áður.  Það er henni að þakka að ég byrjaði að blogga, því hún hvatti alla vini og vandamenn sem blogguðu, til að segja sér frá því.  Þá var hugmyndinni sáð hjá mér - að kannski væri þetta eitthvað sem ég gæti gert.   Gillí er ótrúlega magnaður karakter og það vita allir þeir sem hafa fylgst með henni hérna á blogginu. 

.

Elli er mikill húmoristi og við getum alltaf hlegið saman þegar við hittumst.  Við Gerða unnum saman í heilt ár og samdi alveg rosalega vel.  Hún er svo dugleg og létt og kát að það er ekki hægt annað.

.

Í sumar fórum við svo í yndislega Barcelonaferð;  Gillí, Palli, Kári og Ásgeir, Halldór og Denna, Egill og Ragna, Þorgeir og Sif og ég og Brynjar..... ferð sem batt enn frekar fjölskylduböndin.

.

Ég vissi ekki, þegar ég byrjaði að blogga, hvað kæmi út úr því.... en ég er að reyna að segja fjölskyldunni í Dal hvað mér þykir vænt um þau öll.  Heart

.

Barcelona

 

 


Bloggfærslur 4. nóvember 2007

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband