Væntumþykjupistill.

.

Ég hef oft sagt að systkinin í Dal séu meira eins og systkini mín en frændfólk, enda ekki nema 3 kílómetrar á milli æskuheimila okkar og samgangur nokkuð mikill.

Í Dal bjuggu amma og afi okkar allra.  Afi gaf okkur stundum í nefið (ekkert svo oft en það er bara svo gaman að segja frá því) en amma gaf okkur eitthvað gott að borða, spilaði við okkur og kenndi okkur bænirnar.

 

Gillí er elst af okkur.  Við litum upp til hennar.  Rósa, Halldór, Þorgeir og ég erum öll á sama aldri.  Egill og Helga voru svo litlu börnin.... en eru það reyndar ekki lengur.  Wink  Egill er meira að segja orðinn doktor ..... FootinMouth ....  kannski skrifað með stóru Déi ?

.

Við krakkarnir lékum okkur í bílaleik og dúkkuleik, feluleik, "búó" og draugaleik.  Við áttum líka horn, leggi og kjálkabein og gátum því verið stórbændur ef okkur bauð svo við að horfa.  Þegar Rósa lærði að lesa, lærði ég að lesa.  Þegar Rósa lærði að prjóna, lærði ég að prjóna.  Þegar Halldór lærði að hjóla, lærði ég að hjóla. 

Einfalt kerfi og skilvirkt.  Smile 

Við fundum út svör við gátum lífsins í sameiningu:  "Verður Helga systir Jesú þegar hún verður stór" ? var ein af stóru spurningunum sem ég man eftir að hafa borið fram.  Helga er nefnilega fædd á Jóladag og því fannst mér nokkuð sjálfsagt að hún tæki við hlutverki Jesú þegar hún hefði aldur til.

.

Síðar, þegar við urðum unglingar, leigðum við saman um tíma.  Þá var oft mikið gaman og alltaf kom okkur vel saman.  Halldór er langskemmtilegasti sambýlismaður sem ég hef haft.  Við hlógum einu sinni í gegnum alla Hagkaupsbúðina vegna þess að hann hafði sprautað sjampói upp í nefið á sér þegar hann ætlaði bara að finna lyktina.....og þegar við Halldór hlægjum saman... þá smitum við hvort annað og getum illa hætt.... hreinlega grátum úr hlátri.

.

Árið 2000 varð Golfklúbbur Guttorms tudda til.  Það er félagsskapur gamalla Miklhreppinga og áhangenda þeirra sem eiga reglulega saman góða stund við golf á sumrin en á veturna er keppt í ýmsum íþróttum, s.s. keilu, billjard, pílukasti, félagsvist, skák og badminton.  Drifkraftarnir í Guttormi eru Gillí og Þorgeir.  Það er alveg frábært að slá tvær flugur í einu höggi;  hitta gamla vini og leika sér með þeim í leiðinni.  

.

Gillí hef ég kynnst á annan hátt á blogginu.... betur en áður.  Það er henni að þakka að ég byrjaði að blogga, því hún hvatti alla vini og vandamenn sem blogguðu, til að segja sér frá því.  Þá var hugmyndinni sáð hjá mér - að kannski væri þetta eitthvað sem ég gæti gert.   Gillí er ótrúlega magnaður karakter og það vita allir þeir sem hafa fylgst með henni hérna á blogginu. 

.

Elli er mikill húmoristi og við getum alltaf hlegið saman þegar við hittumst.  Við Gerða unnum saman í heilt ár og samdi alveg rosalega vel.  Hún er svo dugleg og létt og kát að það er ekki hægt annað.

.

Í sumar fórum við svo í yndislega Barcelonaferð;  Gillí, Palli, Kári og Ásgeir, Halldór og Denna, Egill og Ragna, Þorgeir og Sif og ég og Brynjar..... ferð sem batt enn frekar fjölskylduböndin.

.

Ég vissi ekki, þegar ég byrjaði að blogga, hvað kæmi út úr því.... en ég er að reyna að segja fjölskyldunni í Dal hvað mér þykir vænt um þau öll.  Heart

.

Barcelona

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Veistu Anna, það skilar sér óumdeilanlega.

Ragnheiður , 4.11.2007 kl. 13:04

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 4.11.2007 kl. 19:02

3 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Það er gott að setja svona hugsanir á blað. Líklega gerum við ekki nóg af því.

Kristjana Bjarnadóttir, 4.11.2007 kl. 19:49

4 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

 Hugsa til ykkar allra.

Katrín Ósk Adamsdóttir, 4.11.2007 kl. 19:59

5 Smámynd: Hugarfluga

Þið eruð svo sannarlega rík að eiga hvert annað að. Fallegur pistill, Anna. 

Hugarfluga, 4.11.2007 kl. 20:21

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Knús á þig Anna mín. Þið eruð rík en þau eru ennþá ríkari að eiga þig.

Edda Agnarsdóttir, 4.11.2007 kl. 20:46

7 identicon

Takk Anna mín. Algjörlega gagnkvæmt til ykkar :)

Ástarkveðjur frá mér og pabba og mömmu.

Rósa (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 23:26

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Fallegur pistill hjá þér.

Marta B Helgadóttir, 5.11.2007 kl. 00:01

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Æi hvað þetta er krúttlegt. og fallegur er hann þessi hópur. Þið eruð ofsalega rík.

Jóna Á. Gísladóttir, 5.11.2007 kl. 00:27

10 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Fallegt

Gunnar Helgi Eysteinsson, 5.11.2007 kl. 19:10

11 identicon

Hæ aftur Anna mín. Ég er búin að lesa pistilinn þinn fyrir Gillí, henni til gleði.

Rósa (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 19:15

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það er ómetanlegt að hafa alist upp með í hópi systkina ao systkinabarna. en  eftir því sem manni þykir vænna um fólk, þess erfiðara er að kveðja það. En lífið er oft harðneskjulegt. 

Hugsa til þín oft á dag. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.11.2007 kl. 19:18

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk fyrir það Rósa mín..mikið ofboðslega finnst mér gott að geta glatt hana.

Bestu kveðjur til allra.

Anna Einarsdóttir, 5.11.2007 kl. 19:23

14 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fallegur pistill. Allir ættu að skrifa einn slíkan. Helst hverja viku hið minnsta. Ja, gott ef ekki á hverjum degi. Á blogg eða blað, skiptir ekki máli. Láta bara vita af væntumþykjunni, það gerir öllum gott.

Halldór Egill Guðnason, 5.11.2007 kl. 19:38

15 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Já, Halldór það er rétt hjá þér, en kannski ekki blogga um það á hverjum degi, en hugsa um það oft á dag. 

T.d.  Finnst mér vænt um ykkur bloggvini mína með Tattoo, enda er ég hrifnæm með afbrigðum.

Þrátt fyrir að vera stundum ekki með öllum mjalla, þá vil ég meina að það sé þroskandi, mannbætandi og ákaflega gefandi að vera í samskiptum við gott fólk.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.11.2007 kl. 19:58

16 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

EINS OG YKKUR ætlaði ég að segja.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.11.2007 kl. 19:59

17 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Anna. ...Þúertrík.,.

Halldór Egill Guðnason, 6.11.2007 kl. 00:59

18 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Egill Guðnason, 6.11.2007 kl. 01:00

19 identicon

Einstaklega fallegt hjá þér Anna mín.  Alltaf gaman að lesa bloggin þín. Kv. Ebba

ebba (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband