Fyrir pabba.

 

Faðir minn dó fyrir rúmlega 10 árum.

Hann var bifvélavirki.

Ef maður kom með bíl í viðgerð til pabba þá kom þrennt til greina;

Maður vel efnaður =  þurfti að borga venjulegt verð fyrir viðgerð.

Maður í millistétt =  fékk ódýra viðgerð.

Maður átti mjög litla peninga =  viðgerð ókeypis.

Því sýnist mér að pabbi hafi verið Jafnaðarmaður í hjarta sínu.  Hann jafnaði kjör fólks.  Smile

.

pabbi 

.

Í sveitum hefur það gjarnan tíðkast að nágrannar hlaupi undir bagga, hvor með öðrum.   Lendi einn í tjóni eins og bruna koma hinir gjarnan til hjálpar og styðja við hann, ýmist með peningaframlögum eða hjálp við uppbyggingu.  Þessi náungakærleikur er ómetanlegur.

Á erfiðum tímum ættum við að huga að náunganum.

Pabbi kenndi mér að við komumst best í gegnum erfiðleika með því að hjálpast að.

Með þetta í huga, ætla ég að styðja við einn bloggvin minn. 

Allir að kíkja í pósthólfið sitt !  Joyful 

.

Ég hvet ykkur til að huga hvort að öðru.  Wink


Bloggfærslur 1. nóvember 2008

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband