Ég fékk útblástur fyrir vildarpunkta.

 

Þessi færsla er mín fyrsta í flokknum "umhverfismál".

Þannig háttaði til að ég og mín fjölskylda nutum lífsins á Hótel Loftleiðum nú um helgina, fyrir vildarpunkta eingöngu.  Þetta er orðin hefð.  Fjórða árið í röð sem við förum til Reykjavíkurhrepps um miðjan desember til að tjilla og eyða vildarpunktunum. 

Jæja.  Við fórum og skoðuðum mannlífið í verslunum og litum við í kvikmyndahúsi einu.

Um kvöldið fórum við heim á hótel.  Sjáum við þá í lyftunni viðvörun á tíu tungumálum; 

"Varað er við stormi í nótt.  Vinsamlegast lokið gluggunum".

Við náttúrulega brostum í kampinn, vitandi það ósköp vel að veðurspáin hljóðaði upp á bongóblíðu og ekkert annað.  Smile   Galopnuðum gluggann og lögðumst til svefns.

Klukkan 9 í morgun vöknuðum við, við ógnarhávaða.  Drrrrunn, drrrrunn.  Flugvélarnar þöndu vélarnar eins og þær væru að fara í spyrnu.  Ekki viðlit að sofa lengur.  Allt í góðu með það því morgunstund gefur gull, ergelsi og pirru, eins og þeir segja Spaugstofumenn.  Joyful

Örstuttri stundu síðar fyllist herbergið af flugvélaútblæstri.  Hóst hóst.  Hreinasti mökkur !  Ég lít út og sé að flugvélarnar eru að þenja sig með afturendann alveg við andlitið á mér.  Crying

.

mengun 

.

Nú fer að þykkna upp.  Ekki bara á himni heldur líka svona inni í mér.  Ég hringi niður í afgreiðslu og bið konuna vinsamlegast að koma aðeins upp á herbergi.

Þegar hún gengur inn bið ég hana að þefa.   Hún segir þá;  "Já, þetta er alveg eins niðri hjá okkur" og svo segir hún "þetta er mengunin í Reykjavík".  Shocking

Við erum nú ósköp sveitó en.......... mengunin í Reykjavík ?

Nú spyr ég og vil fá hlutlaust svar;  Lít ég út fyrir að vera heimsk ?  Blush

 


Bloggfærslur 14. desember 2008

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband