Hrafnkatla Himinbjörg Skítalabbi Gustavsberg.

 

Mikiđ hefur veriđ skrifađ um Hrafnkötlu Himinbjörgu, margar myndir birtar og má ćtla ađ hún sé hvers manns hugljúfi og ljómi allra kettlinga.  Í ţađ minnsta fékk ég beiđni um eigendaskipti á henni í dag.  Frćnkur mínar tvćr vildu gjarnan eignast ţetta krúttilega kvikindi.  Ég sagđi bara;  "Já, fínt, ţiđ megiđ bara eiga dýriđ"  Grin

.

064 

.

Ţađ kom á ţćr yfir svari mínu... ţeim fannst ég full fljót ađ afhenda kisu, svo ţćr spurđu nánar út í dýriđ.  Já, sagđi ég, hún er óskaplega ţrifin greyiđ.  Fer alltaf í kassann sinn og gerir ţar stykkin sín.  Mér fannst hún óttalegt krútt međan hún var međ harđlífi.  Eitthvađ fór móđurmjólkurleysiđ í magann á henni svo nú er hún međ skitu.  Ţađ vćri bara fínt - hún fer í kassann sinn og svoleiđis - eeeeeeen einhvern veginn tekst Hrafnkötlu alltaf ađ stíga ofan í niđurganginn og svo arkar hún niđur ganginn, létt á fćti, eins og gengur, eins og gengur.  *DĆS* 

Skítalabbi semsagt.  GetLost

Ţegar illa tekst til, kemur hún međ saurugan fót upp í rúm til mín og ţegar enn verr árar, stígur hún á háriđ á mér, međan ég sef.  Hvađ getur mađur sagt ?   SHIT ! Pinch

Viđ fjölskyldan erum nú búin ađ vera í skítverkum alla helgina og Hrafnkatla fer í bađ ţrisvar á dag.

Langar einhvern í hana ?   


Nćringafrćđi.

 

Ást er kavíar og kampavín, brúđkaupskaka, jarđaber og rjómi.

.

elephant_love

.

Vinátta er nýbakađ brauđ, nýstrokkađ smjör, sveitaostur og te fyrir tvo.

.

image

.

Best er ađ hafa kynnst hvorutveggja.

En vináttan fer betur međ meltinguna. 


Bloggfćrslur 30. mars 2008

Um bloggiđ

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfiđ

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband