RiverRafting

 

Hei !  Það eru tvö laus pláss  í RiverRafting núna á mánudaginn.  Grin 

Þetta er ferð sem engin okkar á eftir að gleyma.  Við getum sagt barnabörnunum óskaplega fínar frægðarsögur af okkur síðar meir.  Wink

Fyrstur kemur, fyrstur fær.

 

Sjá nánar http://www.rafting.is/icelandic/is-riverrush.php

Þetta verður einstök ferð því klikkhausarnir Anna og Björg verða þarna til að skemmta sér og öðrum.  Rífið upp stemminguna og látið vaða !

 

Ferðalýsing

 

1. dagur: Varmahlíð - Laugarfell
Þátttakendur koma í bátahús Ævintýraferða í Varmahlíð um kl. 16:00. Ekið er um Vesturdal og Sprengisand í Laugarfell og gist í upphituðum og góðum skála Ferðafélags Akureyrar. Eftir kvöldverð er notalegt að fara í laugina og safna kröftum fyrir næsta dag.
2. dagur: Laugarfell - Hildarsel

Eftir morgunverð er ekið að Jökulsánni en hún fellur um hraunið skammt frá Laugarfelli. Siglingin hefst í hægum straumi en brátt fellur áin um gljúfur og þrengingar og ærinn starfi að stýra í flúðum og stórgrýti. Þegar komið er niður í Austurdal minnkar straumurinn nokkuð, fyrr en varir blasir við ágætur skáli Ferðafélags Skagfirðinga í Hildarseli þar sem við gistum og njótum kvöldsins í faðmi fjallanna.

 

3. dagur: Hildarsel - Villinganes - Varmahlíð

Þegar leiðangursmenn eru ferðbúnir er ýtt á flot. Hér gefst gott tækifæri til að njóta þess sem fyrir augu ber og rifja upp áratökin. Vatnsmiklir lækir og þverár falla í Jökulsána á leiðinni frá Laugarfelli, því vex vatnsmagn árinnar stöðugt eftir því sem líður á ferðina. Siglingin um gljúfrin í Austurdal er afar tilkomumikil og spennandi þar sem stórar flúðir reyna á samhæfingu áhafna. Við Villinganes eru bátar og búnaður tekinn upp og ekið í Varmahlíð þar sem ferðinni lýkur með slökun í sundlauginni og grillveislu á góðum stað.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Sorry, hætti mér ekki í svona svaðilfarir, en góða skemmtun samt. Vonandi verður þetta eins minnisvert og það virðist vera.

Bjarndís Helena Mitchell, 11.8.2007 kl. 13:23

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fyrr skal ég dauð liggja en ég fari í svona svaðilför.  Væri reyndar til í allt hitt sem talið er upp og tjilla bara á meðan ævintýrafólkið tekst á við beljandi stórfljótið.  Þú ert hugrökk kona Anna.  Baráttukveðjur

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.8.2007 kl. 13:35

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk fyrir það Jenný....... Björg er þó fjórum sinnum hugrakkari.  

Eru engar karlhetjur eftir þarna úti ?

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 13:39

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Anna ég sé að þú hefur þurkað sigurslóðina út

Brynjar Jóhannsson, 11.8.2007 kl. 14:12

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ertu viss Brynjar ?          (það er svo gaman að stríða)

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 14:19

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Pifff    luser ....... ,,,,,,,,

átt þú ekki að vera með hausinn ofan í kafi á jökulárfljóti núna ? 

Brynjar Jóhannsson, 11.8.2007 kl. 14:25

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Á mánudaginn og þriðjudaginn og miðvikudaginn Brynjar.....  

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 14:44

8 identicon

já ég get nú vitnað um það að þetta er sú allra skemmtilegasta ferð sem hægt er að fara...  ...síðast kom mín heim með harðsperrur í maganum eftir öll hláturköstin.. ferðin er sem sagt mjög góð fyrir alla maga og kjálka vöðva

Björg F (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 15:34

9 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já það er alveg rétt hjá þér björg... EN ANNA TABAÐI SAMT FYRIR MÉR Í BULLUKEPPNI... og það í fyrstu lotu

Brynjar Jóhannsson, 11.8.2007 kl. 15:43

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Sá vægir sem vitið hefur meira.

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 16:03

11 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Bíddu annar ertu að biðja mig um að vægja ? ...

Brynjar Jóhannsson, 11.8.2007 kl. 16:23

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Allir James Bondar Íslands (eða báðir).......... á ekki að skrá sig í RiverRafting ?

Unik trip here...... en flot rejse..... glæsileg upplifun ...........

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 17:21

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já eða fjóra.    Annars fer ég ekki fyrr en á morgun.  Sé fram á tölvufjör í kvöld.

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 18:57

14 identicon

Anna mín... Það er nokkuð augljóst að bloggheimurinn er huglaus.. ekkert nema kjafturinn sem felur sig á bak við tölvuskerminn.. það þorir enginn með..

Björg F (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 19:22

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ótrúlegt alveg Björg !!  Ég hef það á tilfinningunni að bloggarar þori ekki einu sinni að standa upp úr stólnum. 

Og hér er í boði ævintýraferð með tveimur pæjum og hvað er rómantískara en að hittast í hyl innan um íshröngl ?  Maður spyr sig !

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 19:28

16 Smámynd: Brattur

... ég er ofboðslega kjarkaður... ég get varla lýst því... og þó.... einu sinni saf ég ofan á leiði til að losna við draughræðslu og það tókst... er þetta ekki hugrekki????

... en á þriðjudaginn er ég sko í stúdíói, hvorki meira né minna... taka upp "Veiðilagið" og daginn eftir fer ég að veiða silung í á... og verð sko ekki í neinni gúmmítuðru... nei, félagar, ég veð beljandi fljótið upp í háls og syndi yfir mestu straumana til að komast að veiðistöðunum... ég þarf engann bát.... en í alvöru.... ég hefði skellt mér með í River Rafting... ef ég hefði bara verið laus...

Brattur, 11.8.2007 kl. 20:08

17 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ægir húmoristi 

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 21:02

18 Smámynd: Brattur

... nú næ ég þessu ekki alveg... hvar er húmorinn???

Brattur, 11.8.2007 kl. 21:24

19 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Lestu komment númer 17 betur...... svo segir þú hetjusögu Brattur...... svo kemur komment 19 þar sem Ægir reynir að plata lesendur með brellu.   

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 21:26

20 Smámynd: Brattur

... Ægir brellukóngur....

... mér finnst eins og það sé verið að gera grín að mér...

Brattur, 11.8.2007 kl. 21:35

21 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hér er ekkert nema grín Brattur 

Gerðu bara grín að Ægi og þá líður þér miklu betur á eftir.

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 21:37

22 Smámynd: Brattur

... Ægir, Pægir; Nægir; Þægir, sá á vit sem Vægir...

... nú nlíður mér miklu betur 

Brattur, 11.8.2007 kl. 21:43

23 Smámynd: Anna Einarsdóttir

ERU ENGIR INDÍANAJÓNSAR Á ÍSLANDI SEM ÞORA Í RIVERRAFTING................ HA ? 

Anna Einarsdóttir, 11.8.2007 kl. 22:00

24 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Anna þú ert óborganleg

Marta B Helgadóttir, 11.8.2007 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 343173

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband