Jökulsá Austari.

 

Ferðasaga Bjargar vinkonu minnar er HÉRNA og ég hvet ykkur til að lesa hana áður en þið lesið mína.  Hennar saga er mjög vel sögð ferðasaga þeirra sem hafa kjarkinn. 

Björg  picture_0117_164179  er rosalega skemmtileg og ég get sagt ykkur að hún er miklu fallegri en hún sýnist á þessari mynd.  Wink  Bróðir hennar var með í för og hann er algjör húmoristi.  LoL

Aðrir sem í hópnum voru:

Anúp, fararstjórinn á bátnum okkar, sem án efa bjargaði lífi mínu 35 sinnum. Wizard

Karú, kajakræðarinn, sem ég mútaði.  Lánaði honum góða hanska gegn loforði hans um að vera mættur á svæðið innan 10 sekúndna til að veiða mig upp úr ánni, ef ég skyldi detta.

Anil, sem var einn á trússbátnum... ótrúlega duglegur.

Chris, líka kajakræðari, eldhress.

Síðan voru tvær kjarkmiklar og duglegar stúlkur, starfsmenn hjá Ævintýraferðum og einn strákur frá Californiu sem var sá lélegasti spilari sem ég hef fyrirhitt.  Hann skíttapaði meira að segja spili sem hann kenndi okkur sjálfur - og sat þá eftir með öll bestu spilin á hendinni, en notaði þau ekki.   

Flottur hópur og allir glaðir og hressir.  Grin 

Iss, mér sýndist að þetta yrði bara hundauðvelt ! 

...................

Ferðasaga Önnu kemur hér og takið eftir að enginn upplifði ferðina svona - nema ég.

....................

Á þriðjudag sigldum við af stað, frekar rólega.  Ég sat í miðjum bátnum, brosandi út að eyrum.  Heyrði útundan mér að þau voru að tala um hve lítið væri í ánni.  Vissi ekki að það myndi breyta allri ferðinni hjá mér.  Við sigldum í hálftíma án tíðinda. 

Þá fóru að koma allmiklar flúðir.  Mjög mikið var af stóru grjóti í ánni.  Við sigldum fimlega niður fyrstu flúðirnar.  Bara ferlega gaman.  Smile  Þegar báturinn stoppaði á grjóti, fengum við skipanir frá Anúp.... "allir hægra megin"  "allir vinstra megin"  "allir fram í"  "allir hoppa" og oftast dugði það til að losa bátinn. 

Síðan gerist það, að báturinn stöðvast á grjóti, fyrir ofan allmiklar flúðir.  Anúp segir "allir fram í". 

ALLT Í EINU losnaði báturinn og það kom á hann slynkur.  Mér tókst einhvern veginn að hanga um borð en það sem ég sá næst, olli mér mestu skelfingu sem ég hef á ævinni upplifað.  Ég horfði bókstaflega á alla sópast frá borði, útí iðandi strauminn og grjótið.  Anna var ein á báti og báturinn kastaðist stjórnlaust niður flúðirnar.  (komst reyndar að því síðar að við vorum tvær eftir, hin sat fyrir aftan mig)  Á þessum tímapunkti hélt ég að allt væri búið.  Þessi andartök gerðust eins og í slow motion hjá mér.  Ég held næstum því að ég hafi fengið sjokk, því ég man varla atburðarrásina næstu mínútuna, hvernig fólkið bjargaðist um borð aftur og hvort ég hjálpaði þar til eða hvort ég hékk bara í bandinu og gerði ekki neitt ?  Það komust þó allir heilir í bátinn innan skamms.

.

east_startseite

.

Vá... aldrei aldrei á ævinni hef ég orðið svona hrædd.   Ég fann jafnframt innan í mér að mér var ekki treystandi til að bregðast rétt við ef ég dytti í ánna.  Ég myndi sennilega "panika" og það má alls ekki.   Þessvegna fannst mér vera lífsspursmál fyrir mig að DETTA EKKI ÚT Í.

Ég var afleitur farþegi þennan daginn.  Frown  Anúp var búinn að segja okkur að við ættum að sitja á dekkinu og að hann yrði ekki ánægður ef við settumst innar í bátinn.  Hann myndi gefa okkur eina viðvörun en síðan myndi hann gera eitthvað annað, ef við ekki hlýddum.   Ég fann að ég var öruggari aðeins innar svo ég sat þar, en gat þó enn með góðu móti róið.  Anúp gaf mér viðvörunina, ég færði mig en í næstu flúðum seig ég "óvart" til baka á öruggari staðinn.  Anúp leyfði mér að vera þar.  Það sáu allir hvað ég var skelkuð.  Blush

Næstu 5 tímana sigldum við niður ána.  Einhverjir duttu stundum útí en það varð aldrei neitt í líkingu við fyrsta "óhappið" þótt stundum munaði litlu.   Þegar í kofann var komið, var ég algerlega uppgefin.  Var að reyna að muna hvenær ég var síðast svona þreytt og niðurstaðan var aldrei.

O, Anna, af hverju gastu ekki haft vit á að panta dagsferð í Jökulsá Austari !

..........

Næsta morgun lögðum við af stað aftur.  Þá brá svo við að mér fannst bara ferlega gaman.  Grin  Áin var allt öðruvísi.  Miklu meira vatn og nánast engir steinar, skemmtilegar öldur og mjúkar flúðir.  Ég var svo hamingjusöm að vera ekki hrædd eins og daginn áður.

Eftir klukkutíma siglingu heyrðist splass.  Ég hafði ákveðið að taka sundæfingu án þess að láta neinn vita.  Í hvítri ánni sést ekki til botns.  Klaufinn ég, henti mér út í, þar sem vatnið var bara hálfs meters djúpt og ég hruflaði aðeins á mér hnéð.  LoL   Ferðafélagarnir urðu svakalega hissa þegar ég "datt" því það voru engar flúðir eða neitt. 

Við sigldum í tæpa tvo tíma þennan morgun.  Þá var áð, því hópur Bandaríkjamanna ætlaði að vera samferða síðasta spölinn.   Ég var komin með bólgnar hendur því þurrbúningurinn þrengir verulega að úlnliðnum og ég virtist þola það illa.  Því ákvað ég að 8 tímar í Austari Jökulsá væri bara helv. gott fyrir mig - og meira en margir þora,, þar með talið ég.

Í dag sit ég með alla vöðva auma, sár á hné eftir misheppnaða dýfu "hetjudáðina mína" og nuddsár á hálsi eftir þurrbúninginn, bólu undir nefinu Woundering sem kemur þó málinu ekkert við og............

...... er stolt af sjálfri mér,  þrátt fyrir allt.

Þessari ferð mun ég aldrei í lífinu gleyma og ég hvet fólk til að prófa.... en bara ef það þorir.

Starfsfólk Ævintýraferða er frábært.... allir sem einn.  Grin

Næst ætla ég í Jökulsá Vestari.  Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Anna... vestari er algjör kettlingur miðað við austari!

Frábært að lesa ferðasögurnar ykkar... trúi því ekki að Anna hafi stokkið fram af klettinum!! Hann nær alveg upp til himins! Ég var ekki svona huguð... stóð á brúninni og horfði níður, var næstum því búin að skíta á mig af hræðslu!!!

Heiða B. Heiðars, 16.8.2007 kl. 11:02

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Þetta hefur verið upplifun!! Gaman að lesa, en ég fer ekki fet í svona svaðilför sjálf, svo mikið er víst.

Bjarndís Helena Mitchell, 16.8.2007 kl. 11:23

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég veit ekki hvernig ég væri stemmd fyrir svona löguðu..en ég fór þó í skemmtigarð um daginn og fór í öll tækin. Líka þau sem fara með mann á hvlfi og alles og hraðar og hærra en hægt er að hugsa sér. En þar var ég líka bundin og lokaði bara augunum meðan á ósköpunum stóð. Þetta er öðruvisi og örugglega meiri hetjuskapur en hitt.

Já og eitt enn...Anna er ekki bara hetja hún er líka stórgott skáld og ég hvet ykkur til að taka þátt í kosningunni í sögu og ljóða kepnninni sem nú stendur yfir á blogginu mínu. Anna á þar eitt ljóð!!!!

Og hoppa svo.........

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 16.8.2007 kl. 11:48

4 Smámynd: Ragnheiður

Vó! frábær ferð greinilega en ég er ekki á leiðinni í neitt svona !! Það má alveg kalla mig skræfu !!

Ragnheiður , 16.8.2007 kl. 12:11

5 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Vá þetta var alvöru ferð. Glæsileg frammistaða hjá þér Anna mín. Þú ert hetja í þessu sem öðru. 

Gíslína Erlendsdóttir, 16.8.2007 kl. 16:27

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já Heiða mín...... ég ætla einmitt í Vestari næst því hún hentar betur mínu litla hjarta.   

Ég er ekki hetja, en það er Björg hins vegar.  Vá hvað hún er kúl. 

Anna Einarsdóttir, 16.8.2007 kl. 16:41

7 identicon

Vááá.... takk

Þú stóðst þig vel Anna mín. Veit þú átt eftir að njóta Vestari fullkomlega.. ekki langt í það að þú verður tilbúin í Austari aftur  Takk fyrir frábæran tíma. Æðislegt að kynnast þér

Björg F (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 16:57

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þú ert ekkert blávatn Anna svaðilkona, þú ert alveg gjörsamlega að mínu skapi.

Þarftu nokkuð að vinna með þessu? 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 16.8.2007 kl. 17:57

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Jújú Imba..... fór að vinna á hádegi í dag.  Fríið búið og ég búin. 

Anna Einarsdóttir, 16.8.2007 kl. 18:02

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég er bara til í að fara auðveldari á..... þessi var "aðeins of tú möts"  fyrir mig Kristjana. 

Anna Einarsdóttir, 16.8.2007 kl. 22:21

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Skutlaði ég honum ?  Ég hélt hann hefði FALLIÐ FYRIR MÉR. 

Anna Einarsdóttir, 17.8.2007 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband