Hugsa bloggvinir.... hugsa.

 

Öll höfum við ákveðnar hugmyndir um hvaða matur passar saman;

.

Læri, kartöflur, grænar baunir, rauðkál, sulta, sósa

eða

Fiskur, hrísgrjón, hrásalat, brauð

eða

Buff, kartöflustappa, sósa og spælegg

Nú verð ég að hætta að telja upp, því ég er orðin svo svöng.  Pouty

------------

EN...... hvaða matur passar hræðilega illa saman ?

------------

Ef þið ættuð að hrekkja einhvern með svakalegri samsetningu á mat, hvernig liti sú samsetning út ?

Þetta getur komið sér vel síðar, ef einhver mætir iðulega í heimsókn, einmitt á matartíma, dag eftir dag.  Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Það væri helst niðurskorin, súr lifrarpylsa, með súkkulaðisósu. Má gjarnan bera fram með ORA sardínum í olíu...;)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 2.4.2008 kl. 21:36

3 identicon

Ýsa í raspi með rabbabarasultu.Saltfiskur með kanil og grjónagrautur með rúsínum og kartöflum,þetta passar lýgilega vel saman

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 21:43

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hangikjöt með smá remúlaði er mjög gott, en hvítlaukssósa á súrsaðan hval gengur bara ekki.  Eða sultutau á súrsaða punga.

Ef einhver kemur í heimsókn á matartíma,(oft og iðulega) þá berið á borð fyrir hann  kjötfisksbollur sem eru blandaðar til helminga af fiskibollum úr dós og saxbauta úr dós.  Gefa með þessu gróft skorið hvítkál, niðursoðnar radísur, belgbaunir og uppstúf yfir allt saman.  Bregst ekki, vinurinn lætur ekki sjá sig oftar.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 2.4.2008 kl. 21:48

5 Smámynd: Linda litla

Ég hef heyrt af manni sem borðar rabbabarasultu með saltfisk. Mér verður óglatt við tilhugsunina.

Linda litla, 2.4.2008 kl. 23:48

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Grillaður svínahnakki, remólaði og steiktur laukur. Brenndar kartöflur í álpappír úr Helguvík "by the way" og smurt með túnfisksaladi úr Bónus.

Juoghk. oj bara.

Halldór Egill Guðnason, 3.4.2008 kl. 00:11

7 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Slátur, stór klessa af smjöri og sulta með. Til vara reykt hrossakjöt með sama meðlæti. Hef í raun séð menn snæða þennan ófögnuð

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 3.4.2008 kl. 00:55

8 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Fyrsta skiptið sem mér verður óglatt af að lesa athugasemdir... 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 3.4.2008 kl. 05:24

9 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Steikt slátur með tómatsósu......ég legg ekki meira á  ykkur...

Fanney Björg Karlsdóttir, 3.4.2008 kl. 13:42

10 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Finnst þetta allt saman vera alveg þess virði að prufa einhvertímann á góðri stundu, hef samt trú á að til dæmis grænn hafragrautur sé ekki lystugur né mjög rauður fiskur, spurning um að kaupa matarlit Anna og skemmta sér svo í eldhúsinu.

Gerði einu sinni grænan grjónagrautinn fyrir dætur mínar, urðu óvenju listalausar og viðbjóðurinn í andlitunum sagði allt, mér fannst samt virkilega gaman að þessu.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 3.4.2008 kl. 14:24

11 Smámynd: Brynja skordal

Saltfisks vöfflur hélt ég myndi gubba þegar ég smakkaði það En búandi með manni sem gerir hinar ótrúlegustu kúnstir með mat og álegg kemur mér ekkert á óvart hann hefur fengið suma til að nánast ÆLA og hefur gaman af sérstaklega Dætur sínar hann myndi hiklaust borða það sem þið hafið skrifað hér

Brynja skordal, 3.4.2008 kl. 15:11

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk fyrir margar frábærar hugmyndir. 

Mér dettur í hug að setja saman sviða-rúgbrauðspizzu með sinnepi og niðursoðnum perum. 

Þið fáið % þegar ég sel viðskiptahugmyndina;

Veitingahúsið Sullumsaman - öðruvísi matur fyrir nýjungagjarna.

Anna Einarsdóttir, 3.4.2008 kl. 16:23

13 Smámynd: Tófulöpp

Ég þigg frekar matarboð hjá Önnu heldur en ÖLLUM ofangreindum kommenturum. Væri t.d. alveg til í hvað sem er af öllum þessum "eðlilega" sem þú taldir upp... Steiktur blóðmör með sykri, kartöflum, rófustöppu og SPÆLEGGI fellur undir "eðlilegt" hjá mér

Tófulöpp, 3.4.2008 kl. 17:05

14 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Slátur í skyrhræringi með lýsi útá. Getsvosvarið að ég sá þetta einusinni. En bragðaði ekki ....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.4.2008 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband