Viðundrið biður um kauplækkun.

 

Maður er náttúrulega eins og hvert annað viðundur þegar maður skrifar jákvæðar fréttir en einhver verður jú að vera viðundur.  Pouty  Ekki viljum við að viðundur deyji út !

Þessi pistill fjallar um stórgóða kartöfluuppskeru kortéri fyrir snjó.  Happy

Hér á bæ voru nokkrar kartöflur settar niður þann 7. júlí s.l.  

Já, já, ég veit, ég veit.... doldið seint.

Hér á þessum sama bæ voru kartöflurnar teknar upp þann 2. október s.l. 

Í fyrradag.

Hvílík gleði að sjá litlar sætar kartöflur koma upp úr manns eigin garði.  Joyful

Þetta er alveg hellingur !

.

uppskeran

.

Að rækta kartöflur er mín leið til að mæta kreppunni.  Svo er ég að spegúlera í,  hvað ég geti gert næst.  Kannski ég biðji um kauplækkun.  FootinMouth  Ég hef nefnilega heyrt að kauphækkanir séu verðbólguhvetjandi og þá hljóta kauplækkanir að vera verðbólguhamlandi.   Já, ég held að beiðni um kauplækkun sé besta hugmynd sem ég hef fengið lengi. 

Þó ég segi sjálf frá.  Cool  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Passaðu þig bara að borða ekki útsæðið, óvíst að það fáist keypt í vor !

Kristjana Bjarnadóttir, 4.10.2008 kl. 11:44

2 Smámynd: Gulli litli

Ég held að þú ættir að stjórna landinu ekki Davíð Geir Gísladóttir...

Gulli litli, 4.10.2008 kl. 11:47

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flottar kartöflur!! Glæsilegur árangur í tilraunræktun Önnu.

Mér finnst þetta góð hugmynd með kauplækkunina! Ég gerði akkúrat þetta í vikunni - minnkaði vinnuna um 50% Sjáum til hvort þetta fer ekki að lagast úr þessu........

Hrönn Sigurðardóttir, 4.10.2008 kl. 11:55

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Audda!! Maður Þ.ARF ekkert laun! Maður skellir sér bara í sjálfþurftabúskap og málið er dautt!!!

Ég fæ mér eitt par af svínum, eitt par af nautum,eitt par af hænum,eitt par af lömbum...set niður kartöflur, íslenskar og sætar, rófur, gulrætur,rabbarbara,lauk og sveppi, kaupi epla, peru,banana,vínberja og plómutré og sái hveiti, höfrum og lyftidufti, sæki sjó og sigts úr honum sjávarsaltið, set nokkrar ýsur, lax og humar í búr og hegg eldivið til að geta eldað matinn og hitað mér þegar ég er búin að hamast allan daginn við búskapinn minn...þetta er snilld!

Það þarf hvort sem er enginn á leikskólakennara að halda þegar allir eru farnir í sinn eigin búskap, þeir ala bara upp sín afkvæmi sjálf!! Og það er einmitt svo gott fyrir börn að vera innan um blessuð dýrin, miklu betra en mála ilminn af blómunum eða moka sama sandinum hundraðþúsund sinnum í skóinn sinn....gera meira gagn þegar þau hjálpa manni að mjólka, gefa dýrunum og svíða sviðahausana....jess!!!!

Og samskipti foreldra og barna taka á sig heilbrigðari mynd...

Svo færi maður ekkert í einhvern banka neitt...bara vöruskipti milli okkar bændanna.....

Og krónan mun sóma sér vel á hillum þjóðminjasafnsins....og við sýnum næstu kynslóð hana og öllum finnst ógeð fyndið að það hafi verið notaðir peningar til að KAUPA mat í BÚÐUM...abbababb!!!!

Í safninu getum við svo líka sýnt síðustu minjar stjórnmálamannsins....bankastjórans og samninganefndanna...sem urðu útdauð vorið 2009...

Egg og beikon í morgunmat?..já, ég held það bara.... 

Þetta er framtíðin!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 4.10.2008 kl. 12:26

5 Smámynd: Ragnheiður

Vá hvað mér líst vel á þetta og Bergljót er alveg að slá í gegn sko ! Hehehe

Ragnheiður , 4.10.2008 kl. 12:57

6 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Íslenska efnahags undrið.. varð íslenskaefnahags-við-undrið

Brynjar Jóhannsson, 4.10.2008 kl. 13:08

7 Smámynd: Einar Indriðason

Flott snjókerlingin þarna framarlega til vinstri, þar sem tvær hafa vaxið saman.

Einar Indriðason, 4.10.2008 kl. 13:58

8 Smámynd: Aprílrós

Snildar kartöflur ;)

Aprílrós, 4.10.2008 kl. 20:00

9 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Flottar kartöflur Anna, ég á eftir að taka upp mínar og kannski væri svo hægt að skipta við þig á annarri vöru.

sýnist allt stefna í vöruskipti frekar en að nota einhverja peninga sem aldrei halda verðgildi sýnu sökum gengisfalls eða verðbólgu, förum bara aftur í 1/2 fisk á kíló af kaftöflum, eða 10 rollur á 1 hest, og 2 hesta á 1 kýr.

Þá mætti reikna 2 góðar konur sem  1 unglingspilt eða 3 konur sem 1 karlmann.

Og svo varð fjaðrafok í húsinu.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 5.10.2008 kl. 08:26

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Skemmtilegt blogg og skemmtilegar umræður sem eru líka praktískar!

Höldum áfram í sjálfþurftarbúskapspælingum! (lengjum orðin - það sparar pappír og pláss! uhuh)

Edda Agnarsdóttir, 5.10.2008 kl. 11:23

11 identicon

Hér er mitt innlegg í SPGN i dag:

Gamall maður í Ólafsfirði átti eitt vorið ekki nægt útsæði. Hann brá á það ráð að skera hverja kartöflu í tvennt, og viti menn, uppskeran var alveg jafn góð og hefði hann sett niður heilar kartöflur.

Kveðjur til þín Anna.

Ásdís (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 19:17

12 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Anna

ég var að lesa blogg fyrir ári síðan þegar ég var að reyna að hafa uppi á texta.

þá vildir þú fá að heyra lagið við textan.. fyrir ári síðan...

við texta sem heitir Afþvíbara fíflið..

Hérna er lagið  

Brynjar Jóhannsson, 5.10.2008 kl. 20:13

13 identicon

Kristin Sif (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 13:08

14 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Flott uppskera....enda ekki von á neinu öðru þar sem dagurinn sem jarðeplin voru sett niður er alveg öndvegisdagur..... þá á frumburður minn afmæli...allveg einstaklega vel heppnað eintak....

Fanney Björg Karlsdóttir, 7.10.2008 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 342782

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband