Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Fýlukastið mistókst.

Nenn´ekki að vera lengur í fýlu.  Þasso leiðinlegt. 

Góðan daginn. Smile

Alveg að koma sumar og svona.

Þegar ég kom heim í nótt, voru hundurinn og kötturinn saman í sófanum, að horfa á bíómynd sem var stranglega bönnuð 16 ára og yngri.  Óþekktarangar !

 


Trú´ess´ekki.

Landsmenn kvittuðu í gær undir fleiri álver, stuðning við innrás í Írak, spillingu í stjórnkerfinu, óstöðugleika í efnahagslífinu, ójafnrétti osfrv. osfrv.  Og kjósendur bættu um betur og þökkuðu bara kærlega fyrir þetta.  ÓTRÚLEGT !

Ég er í fýlu. Frown

Fer ekki aftur í gott skap nema Samfó fái að vera samfó Sjöllunum í næstu ríkisstjórn.   

Heyrirðu það Geir ! W00t


Fyrstu tölur !

Áður en þú kýst er vert að hafa í huga að:

Jón er kall.

Geir er kall.

Steingrímur J. er kall

Ingibjörg Sólrún er kona

Guðjón Arnar er kall

Ómar Ragnarsson er kall

Þar sem við erum fremst á merinni, hvað jafnréttissjónarmið varðar, er ljóst að úrslit fara sem hér segir:

Jón Sig. 10%

Geir       10%

Steingrímur J.  10%

Ingibjörg Sólrún 50%

Guðjón Arnar 10%

Ómar 10%

Svo vil ég bara fyrir mínar hendur báðar, þakka fyrir ferlega skemmtilega kosningabaráttu. LoL

 

 


Bara eitt enn.......

 

X-S og koma svo.

GrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinWinkGrin

GrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrin

GrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinGrinToungeGrinGrin

 


Hagur minn vænkaðist.

Það er alltaf verið að tala um Kaffibandalagið.  Ég veit sko alveg hverjir eru í því.  Framsókn !  Þeir eru ennþá að gefa sömu kaffipakkana og þeir gáfu fyrir 8 árum.  Hafa greinilega ekki fattað þá hvað þeir áttu fáa aðdáendur og pantað alltof stórt upplag.  En nú verð ég að játa á mig mikla skömm. Frown  Fyrir átta árum var ég ung og vitlaus.  Altså ung miðað við Halldór Ásgríms og vitlaus miðað við Albert Einstein.  Í kosningunum fyrir átta árum vissi ég ekki hvað ég ætti að kjósa.  Rétt fyrir kosningar kom til mín frambjóðandi frá Framsókn.  Hann lofaði mér barnaskattkortum og kaffipakka ef ég setti X við bé.  Kaffipakkann afhenti hann mér strax en barnaskattkortin hef ég ekki séð ennþá.  Því er ég farin að hallast að því að ég hafi kosið einn lítinn kaffipakka.  Er hægt að vera vitlausari ?  Fyrir þetta hef ég skammast mín í átta ár.  Í dag fékk ég örlitla uppreisn æru.  Ég hitti frambjóðanda Framsóknar þar sem hann var að útdeila þessu hundgamla kaffi og gerði mér lítið fyrir og hirti af honum einn lítinn kaffipakka.  Það er þó skömminni skárra að hafa kosið tvo kaffipakka heldur en einn. Wink


Ömmupistill.

Pssssst, hafið ekki hátt meðan þið lesið þetta því ég er í felum. Wink

Eins og áður hefur komið fram, er lýst eftir mér.  Það sögðu allir VÁ í versluninni þegar í ljós kom að stelpan var með vákort.  Annan pannan er samt saklausari en sítróna í þessu máli.  Til öryggissss er betra að sitja heima og sleppa öllum kosningaáróðri.  Því stendur það sem ég sagði...... not jor bissness hvað ég kýs.

Bless.

Ninja


Eftirlýst.

Nú mátt þú lesandi góður - og einlægur aðdáandi minn - búast við að ég hætti að skrifa innan skamms. 

Í dag fór ég í búðina.  Við kassann dró ég upp mitt huggulega gull-debetkort og hugðist greiða mínar skuldir.  Kassadaman renndi kortinu í gegn og leit svo á mig grundsemdaraugum. GetLost Þarna stóð ég, sakleysið uppmálað þegar hún skellir miða á borðið.....vákort !  Gasp

Þetta hefði ég getað sagt mér sjálf.  Eftirlýst af Interpol.  Skrifa eins og bjálfi að ég selji ekki neitt, fyrir fullt af peningum - eða kannski er þetta út af mínum pólitísku skoðunum ?  Aha,, það eru helv.....norsararnir !  Samsæri og ekkert annað.  Þeir voru ekkert að grínast í Spaugstofunni með þetta.  Sjáið þið ekki samhengið ?  Geir og Siv !   Hverjir ætli vinni annars hjá Interpol ?  Alþjóðlegir pólverjar kannski ? 

En allavega, nú þarf ég að skrifa eintóma ömmupistla fram að kosningum.  Á laugardaginn set ég svo upp kolluna og svartan skýluklút og laumast á kjörstað.  Hvað ég kýs, er mitt einkamál Wink

Bestu kveðjur úr sveitinni.

Anna S. Einarsdóttir.


Betlari eða sníkjari ?

Í gær fór ég um víðan völl og seldi ekki neitt.  Og seldi bara töluvert af´ðí. 

Þetta er nefnilega spurning um framboð og eftirspurn.  

Ég gekk inn í fyrirtæki, hitti forstjóra, brosti og sagði:  Má ekki bjóða þér ekkert ?  Og þeir keyptu það flestir. Smile  Enda lítið af engu í boði.  Einn spurði reyndar hvort ég væri að selja styrktarlínu en fékk það svar að hann fengi enga línu... bara styrkur í boði.

Ehmmm.... ég vona að mér verði ekki vísað úr landi, eins og harmonikkuleikurunum, þótt ég opinberi þetta.  Reyndar skil ég alls ekki af hverju ég má selja MIG - abbababb, er samt ekki til sölu  - en þessir menn mega ekki selja hæfileika sína.  Sideways   Ég sem var hæstánægð með að fá betlara í heimabyggð, sbr. verslum í heimabyggð. 

En talandi um að ganga í fyrirtæki og selja ekki neitt..... ég er æviráðin í hinar ýmsu fjáröflunarnefndir fyrir vikið því ég þyki víst sérlega efnilegt sníkjudýr. Tounge

 

 


Dómsmálaráðuneytið brýtur lög.

Dómsmálaráðuneytið auglýsti ólöglega eftir umsóknum um embætti aðstoðarríkislögreglustjóra.  Auglýsingin birtist aðeins í vefútgáfu Lögbirtingablaðsins.  Blaðið kom úr á pappírsformi sama dag og umsóknarfresturinn rann út.  Páll Winkel, nýskipaður yfirmaður stjórnsýslusviðs hjá ríkislögreglustjóra, var sá eini sem sótti um starfið.  Páll er sonur Guðnýjar Jónsdóttur,  ritara Björns Bjarnasonar í dómsmálaráðuneytinu.

http://www.visir.is/article/20070509/FRETTIR01/105090127

Tilviljun ? 

 


Margir kennarar

Sjálfstæðismenn stóla núna á þrennt:

  1. að kjósendur muni ekki neitt
  2. að kjósendur viti ekki neitt
  3. að kjósendur skilji ekki neitt

 

Kæri Geir.   Það er ekki nóg að spyrja Jón Sigurðsson.  Hann myndi nefnilega staðfesta við þig að þannig sé þetta einmitt ...... skjátan fékk bara 4,5 í sögu hjá honum í den.  Þaðvarsamtekkiaðmarka !  Stelpan var bara 17 ára þá svo hvernig í veröldinni átti hún að muna hvað gerðist 50 árum áður en hún fæddist? Shocking  Geir, spurðu heldur Ingu Jónu og þá færðu að vita að ég fékk 10 í bókfærslu og rekstrarhagfræði hjá henni ... mont mont. Grin  Ehhhh.... niður á jörðina aftur.  Nú vil ég skila því til þín Geir

 

  1. að kjósendur muna eftir eftirlaunafrumvarpinu
  2. að kjósendur vita að þið hafið gert hagstjórnarmistök
  3. að kjósendur skilja að  "minn tími er kominn" * 

* Jóhönnu tími sko...... LoL...... ég er ekkert að fara á þing.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 342840

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband