Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
11.12.2008 | 20:07
FM 101,3 Óðal
Vantar einhvern að komast í jólaskap ?
Grunnskólakrakkarnir í Borgarnesi senda út jólaútvarp í eina viku á ári...... þessa viku.
Hægt er að komast inn á útsendingu hér; http://odal.borgarbyggd.is/
Þar eru spiluð jólalög, tekin viðtöl við fólk og meira að segja sagðar fréttir og veðurfréttir.
Í augnablikinu eru þau með beina útsendingu frá leik Skallagríms og Vals í körfuknattleik.
.
.
Veðrið er að versna. 45 metrar undir Hafnarfjalli.
Endalaust gott kúr-veður.
Ég ætla að chilla í kvöld.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.12.2008 | 15:50
Þessi er heillandi.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.12.2008 | 22:43
Uppákoma í útvarpi.
Á Bylgjunni í gær var þáttur, þar sem fólki gafst kostur á að hringja inn, spjalla og biðja um óskalög.
Inn hringdi maður í fínu skapi. Hann sagði að þau hjón væru bara tvö heima, að skreyta fyrir jólin með kertaljós og kósý.
.
.
Eftir nokkurt spjall spurði þáttastjórnandinn hvaða lag mætti bjóða honum að hlusta á ?
Maðurinn valdi jólalag en þá heyrðist hvell rödd konunnar fyrir aftan hann;
Nei ! Ég vil ekki þetta lag. Það er ömurlegt.
.
Maðurinn varð víst hálfvandræðalegur því þessi uppákoma stemmdi illa við lýsingu hans á notalegheitunum heima.
Hann sagði; "Þú sérð hver ræður á heimilinu".
9.12.2008 | 21:03
Soðið rauðkál með eplum.
Þar sem ég veit að lesendahópur minn samanstendur af hagsýnum húsforeldrum, dembi ég á ykkur einni gómsætri uppskrift;
.
.
Soðið rauðkál með eplum

7.12.2008 | 22:03
Ferlega góð limra :-)
.
Þegar Steinn var að yrkja til Stínu
öll stefin úr hjarta sínu,
þá varð honum það
til þrautar að
hann þurfti að minnast á svo miklu
fleira í lokin en nokkurt viðlit var að segja í síðustu línu.
Höfundur; Hrólfur Sveinsson.
.
.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.12.2008 | 13:01
Allt eitt allsherjar plott.
Þegar ég var að komast til meðvitundar í morgun, eftir nætursvefninn, var mín fyrsta hugsun sú að stjórnmálamennirnir væru heldur betur búnir að plata okkur.
Þetta er sko allt eitt plott. Þeir hafa málað upp stöðu efnahagsmála á Íslandi miklu svartari en hún raunverulega er. Norski ráðgjafinn ráðlagði þeim að gera það. Síðan, smátt og smátt, kemur í ljós að staðan er skárri þarna og betri hér. Verulega slæm staða samt en þar sem hún fer örlítið batnandi, sbr. styrkingu krónunnar nú, þá láta kjósendur gabbast til að trúa því að stjórnmálamennirnir hafi spilað svona vel úr spilunum. Og þá halda þeir Geir og Dabbi sínum elskuðu stólum og við erum áfram sauðir.
.
.
Hahhh, ég sá í gegnum plottið.
.
Já sæll, eigum við að ræða það eitthvað frekar ?
6.12.2008 | 15:12
Steinríkur er smáhneta.
Hér áður fyrr var ég skrifstofublók. Sat á skrifstofustólnum mínum allan daginn og gerði ekki handtak í orðsins fyllstu merkingu. Pikkaði bara inn og hugsaði dálítið.
Síðan venti ég mínu kvæði í kross - snarsneri mínu ljóði við - og vann mig niður í verslunarstarf. Ykkur að segja er miklu auðveldara að vinna sig niður en að vinna sig upp. Nú sé ég um að fylla á grænmetistorg með tilheyrandi burði og göngu. Það eru ekki allir sem fá greitt fyrir að stunda líkamsrækt.
Í morgun fór ég að spá í hvað ég lyfti mörgum kílóum á viku. Daglega tek ég af stóru bretti af grænmeti og ávöxtum, fæ nokkur hundruð kíló af kartöflum og rófum vikulega og síðan ber ég allt dótaríið fram í torg og fylli þar á. Lauslega áætlað reiknast mér til að ég lyfti um 3 tonnum vikulega.
Ég er næstum því satt að segja farin að ganga með hendurnar hálfan meter frá skrokk vegna umfangs allra nýju vöðvana. Þarf meira að segja að skáskjóta mér inn um dyr.
.
. Steinríkur er "pínöts" við hliðina á mér.
Nú, þar sem ég vil ekkert vera að misnota þessa síðu og grobba mig, ætla ég að sleppa því að minnast á alla hlutina sem ég hef brotið og bramlað vegna minna óbeisluðu krafta undanfarið og láta hér staðar numið með einu frumsömdu kvæði í kross;
.
.
Þrjú tonn af grænmeti,
Anna fær nóg
aaaaf kálhausum
já heilan skóg.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.12.2008 | 17:58
Davíðsháttur.
Friðleifur múrari vann sem múrari.
Dag einn fékk hann þau skilaboð að starfskrafta hans væri ekki lengur óskað hjá Múrmúr ehf.
Friðleifur sagðist ekki hlusta á þetta. Hann ætlaði sér að starfa sem múrari í nokkur ár í viðbót.
Friðleifur sagði að ef þeir myndu samt sem áður þvinga hann til að hætta, þá horfði málið allt öðruvísi við. "Þá mun ég snúa mér að stjórnmálum" sagði hann kotroskinn.
.
.
----------------
.
Ég hvet alla, sem lenda í þeirri stöðu að vera sagt upp vinnu, til að svara með Davíðshætti;
"Heyrðu nei, ég ætla að vinna þessa vinnu í nokkur ár í viðbót" !
2.12.2008 | 21:58
Dýr-legur brandari.
Þrjár kisur sátu saman á vegg.
Ein þeirra sagði brandara;
.
.
"Hvað sagði annar hundurinn við hinn þegar þeir gengu framhjá stöðumæli ?
Hvur andskotinn ! Þeir eru farnir að rukka inn á salernið hérna".
.
Og svo mjálmuðu kisurnar úr hlátri.
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 343353
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði