Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
22.8.2008 | 23:23
Samskeyti.
Fúsi frændi og hinir strákarnir okkar.
STOPP
.
Svakalega góðar kveðjur úr Borgarfirðinum og nágrenni.
STOPP
.
Það eru allir Íslendingar stoltir af ykkur núna......
STOPP
.
Fyrir hönd Sparisjóðs grínista og nágrennis.
Anna frænka og Edda frænka.
Hanna Birna sendir strákunum kveðju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt 23.8.2008 kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.8.2008 | 19:51
Leggst í bleyti og verðlaunaafhending.
Hæ.
Takk fyrir þátttökuna í vísnakeppninni. Nú þarf ég að leggjast í bleyti og finna út hver vinnur.
---------------------------
Viðbót; Sigurvegari í vísnakeppninni er HRÖNN með ljóðið "Snúin löpp".
"Vil ég vinna keppni núna
og vanda mig sem mest ég má.
Á Suðurlandi sá ég frúna
með snúna löpp og lipra tá".
Til hamingju Hrönn. Þú færð verðlaun send heim.
--------------------------
.
.
Spil og leikir | Breytt 23.8.2008 kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.8.2008 | 10:48
Vísnakeppni.
.
Nú fer í gang vísnakeppni. Botnið endilega þessa fyrriparta - því botninn á að vera í Borgarfirði.
Verðlaun verða send heim. Keppni lýkur eftir viku.
Vil ég vinna keppni núna
og vanda mig sem mest ég má
.
.
Anna fer í fríið sitt
hvert fór hún, ekki veit ?
.
.
14.8.2008 | 21:11
Of lágkúrulegt.
Katla Gustavsberg "pósaði" textann hér fyrir neðan en hún neitaði alfarið að sitja fyrir í þeim hluta textans er fjallar um pólitík í Reykjavík. Hún sagði á mjálmsku;
"Ég leggst einfaldlega ekki svo lágt".
.
.
Verst af öllu er í heimi, einn að búa í Reykjavík
kúldrast uppi á kvistherbergi í kulda og hugsa um pólitík
Vanta félagsskap og finnast fólkið líta niður á þig
elda sjálfur, vita að veslings vömbin er að gefa sig
Troðfullt allt af tómum flöskum, táfýlan að drepa þig.
.
.
14.8.2008 | 08:15
Hormottuskandall.
Nýyrðið "Hormottuskandall" er lýsandi fyrir leik Suður-Kóreumanna og Íslendinga.
Lengi hefur mér staðið stuggur af þessum pólska dómara með yfirvaraskeggið. Finnst hann aldrei haga sér almennilega við okkur. Hinn dómarinn virkaði skynsamur á mig. En ég er auðvitað ekki dómbær á dómara ef út í það er farið.
Súrt að ná ekki jafnteflinu eins og leikurinn þróaðist.
Kóreumenn fá Óskarinn fyrir afburða leiklist í öllum skilningi.
.
.
EN....... hér eftir sem hingað til eru þetta STRÁKARNIR OKKAR og ég stend með þeim í blíðu og stríðu, súru og sætu, góðu og illu, bláu og rauðu.
.
Þið eruð langbestir !!!!!
.
Ísland tapaði með einu marki fyrir Suður-Kóreu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.8.2008 | 17:31
Foli á lausu.
.
. Á forsíðu Séð og heyrt er mynd
af Ólafi F. Magnússyni og fjórum
öðrum mönnum.
Við myndina stendur;
Fimm folar á lausu.
.
Jæja. Þrátt fyrir að hafa stundað hestamennsku í 15 ár, játa ég það hér og nú að ég hef ekki hundsvit á hestamennsku.
Ég meina..... Ekki lýgur Séð og heyrt. Foli ?
13.8.2008 | 15:13
Barnssálin er viðkvæm.
Árið er 1972. Ég er úti að leika mér í bílaleik, búin að gera vegi sem hefðu sæmt hvaða Vegagerð ríkisins sem er. Þar sem ég er að keyra "matsbox" bílinn, heyri ég gný. Ég lít upp og sé flugvél í fjarska. Ég hendist upp og hleyp eins hratt og litlu fæturnir bera mig ofan í næsta skurð. Þar fel ég mig í grasinu og held höndunum yfir höfuðið. Skyldi hún koma ? Sprengjan.
Litla 8 ára gamla stúlkan var búin að sjá of margar bíómyndir, þar sem sprengjum var kastað úr flugvélum. Hún var næstum viss um að flugvélin léti eins og eina sprengju falla. Það tók stúlkuna nokkur ár að sannfærast um að ekki væri hætta á ferðum.
.
.
Þetta sama barn var ekki síður skelkað þegar minnst var á heimsendi og kjarnorkuvá í fréttatíma.
Barnssálin er viðkvæm.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.8.2008 | 18:42
Mér líður undarlega.
Á morgun er stór dagur hjá fjölskyldunni. Eldri dóttir mín heldur yfir um haf og gerist skiptinemi í Bandaríkjunum í eitt ár.
Heilt ár !
Þetta er erfitt fyrir mömmuhjartað. EN stelpan á eftir að þroskast heilmikið og læra annan eins helling. Dóttir mín er tæplega 18 ára og mér líður eins og ég muni í fyrramálið, kveðja barnið...... og fá eftir eitt ár, fullorðinn einstakling til baka. (Nú á hún eftir að segja MAMMA !!! ÉG ER EKKI BARN )
Æ, mér líður bara svona. Fer sennilega að skæla. Á morgun hafið þið leyfi til að kalla mig grenjuskjóðu í einn dag.
Böhööööhöööööööööööö.
Ég má ekki einu sinni heimsækja hana.........
.
Brandarar óskast til að létta mína (ó)lund.
.
12.8.2008 | 10:27
Mig dreymdi að ég ætti að skrifa þessi orð hérna;
11.8.2008 | 17:45
Merkilegt merki.
Heili okkar þarf marga viskuna að meðtaka - og vitleysuna líka ef út í það er farið. Það getur verið þrautin þyngri að ná bílprófi þessi síðustu ár. Endalaust mörg merki sem þarf að læra og kunna.
.
Ég er t.d. ekki alveg klár á þessu.
.
.
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði