Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010
30.1.2010 | 10:51
Ungfrú Hnappadalssýsla.
Fyrsta hugsun mín á morgnana er alltaf ein merkilegasta hugsun dagsins hjá mér. Helgast það m.a. af því að aðrar hugsanir dagsins eru ekkert sérlega merkilegar.
Í gærmorgun var mín fyrsta hugsun: Pálmi Har. greiðir Jóni Ásgeiri 1 milljarð inn á einkareikning. Pálmi á jafnframt heilt flugfélag og Jón Ásgeir á "ég veit ekki hvað" ! Er greiðslan kannski eitthvað tengd "einhverju ólöglegu" ? Er líklegt að þeir hafi verið að "fjárfesta" í kappakstursliði ?
Í morgun kom þessi hugsun: Það vantar bloggara sem á ekki fyrir salti í grautinn. Með öðrum orðum, það þyrfti einhver sem er í þeim sporum að eiga ekki fyrir mat og sem þarf að leita til hjálparsamtaka til að fæða sig og börnin sín, að skrá dagbók og leyfa landsmönnum að upplifa hvernig það er. Líklegar skýringar á því að einstaklingar í þessum sporum blogga ekki geta verið að viðkomandi byrjar á því að skera niður munað eins og tölvukostnað, að málin eru viðkvæm og fólk er ekki tilbúið að bera sorgir sínar á torg.
Eða - kannski væri góð hugmynd fyrir einhvern af öllum þeim fréttamönnum sem nú eru að missa vinnuna að setjast niður með einstæðri móður í þessum sporum og skrifa sögu hennar og gefa síðan út bók. Sem gæti þá hugsanlega gefið móðurinni pening í aðra hönd.
.
.
Þá eru morgunþankar mínir komnir á netið mér og mínum að meinalausu.
Hins vegar læt ég þess ógetið hvaða hugsanir flögra um kollinn minn síðar um daginn. Það væri fáránlegt að opinbera þá hugsun mína að ég gleymdi að taka þátt í ungfrú Hnappadalssýsla þegar ég var yngri og nú er það orðið of seint !
Ekki af því að ég er orðin 45 ára heldur vegna þess að Hnappadalssýsla er horfin af kortinu.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
28.1.2010 | 14:58
Hafsjór af fróðleik.
Er hægt að hlaupa hraðar aftur á bak en áfram?
.
.
Líklegt er talið að konan á myndinni sé að reyna að skilja við manninn sinn. Þannig hyggst hún dyljast fyrir rannsóknarnefndinni með því að stökkbreyta sér í frökenina í Hamborg. Við munum sjá við þeim leik!
.
Flókin svikamylla, þar sem maðkétið og ónýtt korn hefur verið malað og þreskjað í óleyfi af öldnum Hansakaupmönnum, verður senn upprætt. Rætur spillingarinnar og mistakanna liggja bæði djúpt og einnig langt aftur í aldir. Sagnfræðirannsóknir rannsóknarnefndarinnar hafa sýnt að Hansakaupmenn eða Hamborgarar hófu siglingar og verslun hingað strax á 15. öld. Síðan þá hafa menn stolið kökum fyrir illa fengið fé frá frúnni í Hamborg! Svo djúpstæður er vandinn að nú þarf bókstaflega öll þjóðin að biðja alla þjóðina afsökunar! Myllur í Hamborg hafa verið notaðar til að framleiða endalaust bakkelsi og sælgætiskúlur, allt fengið hingað til lands á kúlulánum. Allar þessar upplýsingar þykja mikið vatn á myllu rannsóknarinnar.
.
Við vitum til þess að frúin í Hamborg fer nú huldu höfði og hefur meðal annars skilið við manninn sinn í því skyni að verða aftur fröken. Rannsóknir málvísindamanna í þjónustu Vísindavefsins hafa hins vegar afgreitt þennan feluleik með einföldum hætti, frú verður aldrei aftur fröken. Hún kemst ekki undan!
.
Það er hafsjór af fróðleik á Vísindavef Háskólans.
27.1.2010 | 16:00
Misskilningur.
Í hádeginu var ég að hraðlesa fréttir á hinum ýmsu netmiðlum.
Ein fyrirsögn vakti athygli mína;
Valdís á bestu klippingu áratugarins.
Ég smellti á fréttina og rýndi í dágóða stund á myndina af Valdísi.
.
.
Alveg sama hversu mikið ég velti myndinni fyrir mér, ég gat bara ekki séð að hún ætti skilið að vera útnefnd með bestu klippingu áratugarins. Mér fannst meira að segja tími kominn á klippingu fljótlega hjá konunni. Hárið svolítið allt út um allt og svona.
Valdís á bestu klippingu áratugarins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.1.2010 | 11:08
FORRÉTTINDI ALDREI LÁTIN AF HENDI ÁTAKALAUST
Þorvaldur Logason, meistaragráðunemi í félagsfræði, kynnti áhugavert sjónarhorn á spillingu í Silfri Egils um helgina.
Þorvaldur talaði um kerfislæga og kapítalíska spillingu.
.
.
Hún gengur yfirleitt alltaf út á það sama:
Að vernda séreignarréttinn.
Að hamla gegn almannavaldi yfir auðlindum.
Að tryggja útvöldum einhver gæði með valdboði lýðræðiskerfisins eða efnahagslegu valdi á markaði.
Að ná tökum á framkvæmdavaldinu.
Að manna dómskerfið sínum mönnum.
Að tryggja forréttndahópum / valdahópum refsileysi (þeir lifa ofar lögum og stígvélaþjófar og eiturlyfjaneytendur fylla fangelsin.)
Alls kyns aðstöðubrask og jafnvel lagasetning utan um sérhagsmuni er síðan dulbúin og sveipuð einhverju stagli töskuberanna sem bíða eftir að molar hrjóti af borðum forréttindastéttarinnar. Sérhagsmunir eru kynntir sem almannahagsmunir með pöntuðum álitum sérfræðinga.
Afraksturinn er að þriðjungur þjóðarinnar vill kjósa yfir sig ræningjana sem aldrei iðrast.
Engum blöðum er um það að fletta að Sjálfstæðisflokkurinn var um áratuga skeið brjóstvörn, sverð og skjöldur þeirra sem stunduðu sjálftöku tekna og eigna.
Þeir notuðu meira að segja opinbert skattfé til að launa leppum sínum með þóknunum eða embættum.
Þessir sömu sjálfstæðismenn vilja ekki greiða erlendar skuldir sínar en vilja engu að síður að lágt launaður almenningur hjálpi þeim við að niðurgreiða skuldir nú.
Munum, að þeir sem búa við forréttindi láta þau aldrei af hendi átakalaust.
.
24.1.2010 | 21:00
Uppfærsla.
Fyrir nokkrum árum fannst mér milljón vera stór fjárhæð. Og mér fannst milljarður og skrilljón og trilljón vera gríntölur sem ekki væru til í reynd. En nú er tíðin önnur og verðin hafa bólgnað svo út að verðbólga er ekki nógu stórt orð til að lýsa bólgunni.
Nú talar enginn lengur í milljónum nema verið sé að ræða skiptimynt. Það eru bara milljarðar.
Þar sem allt hefur hækkað svo mikið, finnst mér ekki úr vegi að ræða ýmis orðtök og uppfæra þau í samræmi við almenna verðlagsþróun og fjármálastökkbreytingu.
Svona líta orðtökin þá út fyrir og eftir breytingu:
Það orkar tvímælis.
Það orkar tugþúsundmælis.
Að vera ekki með öllum mjalla.
Að vera ekki með öllum mjöllum.
Sjaldan veldur einn þá tveir deila.
Sjaldan valda fimm þá tíu deila.
.
.
Hér er svo dæmi um froskgrey sem var vanur að éta 37 flugur en hann fylltist græðgi, þurfti meira og meira og meira eins og svo algengt er í heiminum í dag og át 3589 flugur.
Ekki gott.
20.1.2010 | 18:03
Afleit veðurspá.
Á morgun ættu allir að halda sig heima ef möguleiki er. Það spáir vægast sagt afleitu veðri.
Nú er bara að birgja sig upp af mat og drykk og góðu lesefni....... og kúra.
Myndin er tekin af www.belgingur.is og gildir kl. 16.00 á morgun, fimmtudag.
.
.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.1.2010 | 12:42
FFF
Myndina af hundunum hér fyrir neðan, fann ég á netinu.
.
.
En kisurnar hérna fann ég í rúminu mínu.
.
.
Þegar ég sá þær fékk ég svona tilfinningu að ég þyrfti að fara að taka til.
Undanfarið hef ég upplifað söguna um kiðlingana sjö þar sem einn faldi sig í klukkunni, annar í skápnum, sá þriðji undir hillunni o.s.frv. Nema hvað hjá mér eru það kettir sem kíkja út úr hinum ólíklegustu stöðum. Ævintýri líkast.
.
En kettlingarnir eru farnir að týnast út og eignast ný heimili enda eftirsótt og góð ræktun í þessari sveit. Ræktunarmarkmiðið er að fá fallega, fjöruga og feiknablíða ketti. Effin þrjú.
Um næstu mánaðamót verða öll kisuskottin flogin úr hreiðrinu
- nema kisan sem ég ætla sjálf að eiga.
Sú heppna heitir Frekna og lítur svona út;
.
.
Sumt getur maður bara ekki gefið frá sér.
.
15.1.2010 | 16:47
Ísland, fagra Ísland.
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.1.2010 | 22:22
Í Kvosinni.
Í Kvosinni, æskuminningar og bergsöglismál eftir Flosa heitinn Ólafsson er á náttborðinu mínu núna. Flosi hafði þann einstæða hæfileika að vera bara hann sjálfur.
.
.
Hér kemur smábrot úr bókinni:
Og það var raunar þessi amma mín sem orti fræga vísu um jarpan hest, sem Kiddi móðurbróðir minn átti í hesthúsinu uppí lóðinni á Vesturgötu 15.
Á Jarpi höfðu allir mesta dálæti, en Jana, sem var í vist hjá ömmu, og úr Dölunum, elskaði klárinn.
Svo var það einhvern tímann að skita hljóp á Jarp. Þá orti amma mín þessa vísu:
.
Þegar Jarpur hafði skitu
allir grétu á Vesturgötu
Jana grét þó mest.
Hinir gátu þó hætt.
12.1.2010 | 10:46
Það eru allir hættir að lesa Moggann !
Það eru bókstaflega allir hættir að lesa þennan snepil.
Líka þeir sem skrifa fréttirnar.
Og ritstjórinn !
Í nýrri frétt Mbl. stendur;
"Fram kemur á fréttavef Skessuhorns, að í byrjun ársins hafi nýja árinu hafa hefur leitt til þess að þeir mynda meirihluta en Borgarlisti situr einn í minnihluta í fyrsta skipti á kjörtímabilinu".
.
.
Páfagaukur hefði gert þetta betur.
.
Nýr meirihluti í Borgarbyggð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði