25.9.2007 | 23:11
Þau fara samt alltaf sátt að sofa.
.
.
.
Nú verður ekki bloggað meira um hund og kött í bili, því þau hafa beðið um að ég virði þeirra einkalíf. Ástin blómstrar sem aldrei fyrr á þeim bænum.
.
.
(Pssssssst..... ef þau gera eitthvað skemmtilegt síðar, læt ég ykkur vita. )
25.9.2007 | 18:03
Íslensk fjölbragðaglíma.
...... og dóttir mín var að taka upp.
24.9.2007 | 21:12
Stórfrétt !
Alvarleg líkamsárás og nauðgun átti sér stað í heimahúsi í Borgarnesi nú undir kvöld.
Atburðurinn náðist á myndband.
.
.
23.9.2007 | 13:40
Hugarflug.
.
Ef ég er sífellt að herða upp hugann, verður þá hugur minn of harður ? Bara að hugsa.
.
.
.
22.9.2007 | 17:09
Í þá gömlu góðu daga....
.
Jæja.... hér er komin mynd sem sýnir sveitabörn, tilbúin að sníkja pening af fávísum, saklausum, erlendum ferðamönnum. "Outfittið" er sérhannað til að vekja meðaumkun.
.
.
Hér er Anna litla að reyna að fljúga.....
.
.
Sveitabörnin komin í spariföt.... flest ! Þorgeir bróðir er á leiðinni í buxurnar, sýnist mér.
21.9.2007 | 13:47
Helena Björnsdóttir.
Helena er góð bloggvinkona mín. Hún er ein af þessum persónum, sem fá mann til að undrast hversu fjölbreytilegt lífið getur verið. Helena hefur misst sjónina en samt getur hún málað hreinustu listaverk. Það er mér alveg óskiljanlegt.
Reyndar segir hún sjálf, að hún hafi ekki getað teiknað Óla prik skammlaust, meðan hún hafði sjón. Helena gerir oft grín að sjálfri sér og stundum er hún svo djúp að ég kveiki ekki fyrr en mörgum klukkutímum síðar.
"Mig dreymir um að hafa efni á að leigja mér lítið verkstæði (ætti varla að kosta mikið, ég þarf ekki einu sinni glugga :o) )" segir hún.
Mörgum klukkutímum eftir að ég las þetta, var ég að láta mig dreyma um verkstæðið hennar Helenu. Í mínum huga var það bjart og fallegt, með dásamlegu útsýni. Ég undraðist í huganum, hvers vegna hún gerði ekki kröfur um glugga. Fattlaus og vitlaus ég !
.
Myndin mín, HUGLJÚF. REYKJAVÍK Í HUGA MÉR.
EILÍFÐIN FLJÓTT SKIPAST VEÐUR. LÍFSTRÉÐ.
HUGMYND BLÆBRIGÐI.
.
.
Undanfarin 5 ár, hef ég haft það fyrir reglu, að kaupa eins lítið af drasli og ég get... en í staðinn kaupi ég einu sinni á ári, eitthvað sem mig virkilega langar í.
Árið 2007 varð myndin Hugljúf eftir Helenu fyrir valinu.
.
Ég held að mér sé óhætt að segja, að fimm af myndunum hérna fyrir ofan séu til sölu (ekki tvær efstu) og þær fást fyrir aðeins 25 þúsund. Þú leiðréttir mig Helena, ef ég er að bulla. (það væri þá heldur ekki í fyrsta skiptið).
.
Helena vinkona ! þú ert ekki bloggvinkona mín af þeirri ástæðu að þú málar flottar myndir, né af því að þú átt svo fluggáfaðan hund ....... heldur einfaldlega af því að húmorinn þinn er óborganlegur.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
20.9.2007 | 17:12
Óvissuferð.
Jæja góðir hálsar.
.
Þá er komið að árlegri óvissuferð Sparisjóðs grínista og nágrennis....
..... ferð sem allir eru velkomnir í og sérstaklega þeir sem ekki fengu boðsmiða til Rómar.
.
Við erum að fara til útlanda.
Við munum sjá ótrúlega fallegt landslag.... en líka inn í myrkan heim.
Við munum undrast, að það sem við sjáum sé mögulegt.
Við munum hitta persónu sem ég dáist að.
Og við eigum að muna að þakka fyrir okkur, áður en við förum heim aftur.
(t.d. með því að segja eigandanum hvaða landskiki okkur finnst fallegastur)
.
Tilbúin ?
.
Til að njóta sem best, þarft þú að fara nákvæmlega eftir fyrirmælum;
Staðsettu músina á orðinu *Hoppa* hérna neðst á síðunni.
Lokaðu augunum og hafðu þau lokuð í næstum eina mínútu, áður en þú smellir á takkann.
Eftir að þú smellir.... opnaðu augun hægt og rólega.... og njóttu !
.
Ertu ekki örugglega með augun lokuð ?
.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
19.9.2007 | 07:41
Gáta.
Ef ég væri skjöldótt kú.......
.
og þú værir zebrahestur.........
.
Hvað væri þá Lýður Oddsson ?
18.9.2007 | 18:40
Fallvalt ríkidæmi.
Ef ég væri ríkur
darírarírarírarírarí raríraríramm
þá myndi ég bara eyð´í vitleysu
darírarírarí ramm, bamm
.
Ef ég væri ríkur
darírarírarírarírarí raríraríramm
þá væri ég á iðjagrænni grein
og lofthræddur ég yrði, uppi þar.
.
.
Ég er bara að undrast texta, sem hafa verið gerðir og öðlast vinsældir.
Þessi er pínulítið breyttur .... en þið þekkið lagið.
Það geta ALLIR búið til lagatexta !
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
17.9.2007 | 17:27
Hver er boðskapurinn í þessum háfleyga texta ?
Der var en skikkelig bondemand, Það var einn skikkanlegur bóndakall
han skulle ud efter øl. sem ætlaði út eftir bjór
Der var en skikkelig bondemand, það var einn skikkanlegur bóndakall
han skulle ud efter øl. Hann ætlaði út eftir bjór
Han skulle ud efter øl, hann ætlaði út eftir bjór
han skulle ud efter øl, efter øl, hann ætlaði út eftir bjór, eftir bjór
efter hopsasa, tralalala, og svo.... hoppaði og trallaði
han skulle ud efter øl. hann ætlaði út eftir bjór
.
.
Til konen kom der en ung student, Þá kom til konunnar ungur stúdent
mens manden var ud' efter øl. er bóndinn fór út eftir bjór
Til konen kom der en ung student, þá kom til konunnar ungur stúdent
mens manden var ud' efter øl. er bóndinn fór út eftir bjór
Mens manden var ud' efter øl, er bóndinn fór út eftir bjór
mens manden var ud' efter øl, efter øl, er bóndinn fór út eftir bjór, eftir bjór
efter hopsasa, tralalala, aftur.... hoppaði og trallaði
mens manden var ud' efter øl. er bóndinn fór út eftir bjór
.
.
Han klapped' hende på rosenkind Hann klappaði henni á rósrauða kinn
og kyssed' hende på mund. og kyssti svo hana á munn
Han klapped' hende på rosenkind hann klappaði henni á rósrauða kinn
og kyssed' hende på mund. og kyssti svo hana á munn
Mens manden var ud' efter øl, meðan bóndi var úti eftir bjór
mens manden var ud' efter øl, efter øl, meðan bóndi var út´eftir bjór, eftir bjór
efter hopsasa, tralalala, aftur.... hoppuðu og trölluðu
mens manden var ud' efter øl. meðan bóndi var úti eftir bjór
.
.
Men manden stod bag ved døren og så, En bóndinn í dyragætt stóð og allt sá
hvordan det hele gik til. hvað gerðist þar inni hjá þeim
Men manden stod bag ved døren og så, en bóndinn í dyragætt stóð og allt sá
hvordan det hele gik til. hvað gerðist þar inni hjá þeim
For de trod' han var ud' efter øl, en þau héld´ann væri úti eftir bjór
for de trod' han var ud' efter øl, efter øl, en þau héldann væri úti eftir bjór,eftir bjór **
efter hopsasa, tralalala, aftur.... hoppuðu og trölluðu
for de trod' han var ud' efter øl. því þau héld´ann væri úti eftir bjór
.
.
Så skød han studenten og kællingen med, Svo skaut hann stúdent og kjelluna með
og så gik han ud efter øl. og svo fór hann út eftir bjór
Så skød han studenten og kællingen med, svo skaut hann stúdent og kjelluna með
og så gik han ud efter øl. og svo fór hann út eftir bjór
Og så gik han ud efter øl, Já svo fór hann út eftir bjór
og så gik han ud efter øl, efter øl, svo fór hann út eftir bjór, eftir bjór
efter hopsasa, tralalala, aftur.... hoppaði og trallaði
og så gik han ud efter øl. svo fór hann út eftir bjór
.
.
** Ég gerði átta tilraunir til að hafa jafnt línubil.... só sorrý að þetta rennur saman.
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.7.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði