Gleðja litla sál, plís.

 

Allir er´að gera´ða gott nema ég.

 

Sumir eru mest lesnir, aðrir fá flestar athugasemdirnar, einhverjir fá minnstu heimsóknirnar og enn aðrir dónalegustu kommentin.  Hér er bara lásý meðalmennska !

 

Mig langar að vera með leeeeeeeeeeengstu GESTABÓKINA.  Blush

 

Allir að kvitta og vera með, HA !

winkeywink


Sölumenn.

 

Það er ekki nokkur vafi að bestu sölumennirnir koma vestan af Snæfellsnesi.  Máli mínu til stuðnings nefni ég tvö dæmi:

 

Ég seldi útlendingum Biðukollur þegar ég var lítil - en þó aldrei í roki. Wink

getimage

 

Einhverjum snillingnum tókst að selja sveitabæinn Hausthús - sem sumarhús. LoL


Nú er það ljótt........

 

Ég öfunda beljur. Blush 

  • Þær skvetta sér núna út í vorið með rassaköstum.
  • Þær eru sjaldan mjólkurlausar.
  • Það er káfað á þeim tvisvar á dag.
  • Þær baula flott.
  • þær eru með nuddtæki í fjósinu sínu.

Ég hef fulla ástæðu til að öfunda þær af baulinu.

belja

 

 


Fann einn !

 

Enginn tími til að blogga í dag.  Var að lesa bloggvin minn, Hrólf Guðmundsson.  Hvernig félagsskap er ég eiginlega komin í ?  Ekki veit ég hvaða óeðli það er, en ég hef hrikalega gaman af öðruvísi fólki.  Hrólfur Guðmundsson er maður sem þið ættuð að taka með ykkur í rúmið - og lesa. Tounge

Viðbót:  Fyndið hvað ég get verið seinheppin. LoL  Hrólfur hætti að blogga í gær.


Afkomandi Bólu-Hjálmars

 

Upp í mér er kominn Bólu-Hjálmar

að hemja mig er erfiðar´en fjandinn

úr ranni mínum renna ljóð og sálmar

en renna mest þó út í sandinn.  LoL

 

 

 


Hmmm....

 

Ég ætla bara að vera stuttorð:

Vaðlaheiðavegavinnuverkfærageymsluskúrlyklakippuhringur.


Þingvallastjórnin.

Iceland

Ekki er ég alveg sátt

við annars góða ríkisstjórn

Bjössi hefði bara mátt

beiðast undan, kallast fórn.

 

 

Nú er hún Solla á nýju skónum

nú eru að koma jól

Geiri er í síðum buxum   (hver samdi þetta eiginlega) Angry

Solla á bláum kjól........


Uppfinningar eru til að finna þær upp.

 

Máltæki eru skemmtileg. Tounge 

 

Sjaldan er gott blogg of oft bloggað.

Ekki er öll vitleysan heimskuleg.

Nú er úti veður vont og það hefur ekkert með steina að gera.

Allt er hey í rúllum.

 

En hvaða asni fann upp:  "Ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið"?  Hver drekkur kál ? Sideways

 

 

 

 


Gáta....

Hvað er líkt með fíl ?


Geri alltaf allt rétt.

Þegar ég var 13 ára gömul var ég barnapía hjá ráðskonu í sveit.  Ári síðar hætti ráðskonan og flutti í burtu með barnið og þá var ég atvinnulaus.  Ég sótti því um ráðskonustarfið og fékk það.  Óskiljanlegt, því ég kunni ekkert til húsverka.  Á þessum bæ komu oft gestir óvænt.  Það mæddi því töluvert á ráðskonunni ungu.  Dag einn komu margir gestir.  Ég fór í frystikistuna og náði í bjúgu og svo sauð ég kartöflur og gerði minn fyrsta jafning.  Eða..... það átti að vera jafningur.  Eitthvað mistókst mér nú smá - vil ekki gera mikið úr því samt.  Fólkið settist að borðum, fékk sér á diskinn en þegar það ætlaði að setja herlegheitin uppí sig, þá slitnaði ekki sósan eins og hún á að gera, frá diskinum.  Ahhhh, fyrir smá misskilning samanstóð matseðillinn af bjúgum með kartöflum og lími. 

Síðan hefur mörg sósan runnið til sjávar -  segir grískur málsháttur. Wink


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband