Gáta - Hvernig er hryssan á litinn ?

 

Hér sjáið þið hryssu í minni eigu. 

Spurt er;  hvað kallast litur hennar ?

.

Birta 

.

 

BirtaII 

.


Játning Halldórs.

 

Á netinu er að finna afskaplega merkilega ræðu Halldórs Ásgrímssonar á Viðskiptaþingi Verslunarráðs Íslands í febrúar 2005.

Hér má líta valda kafla úr ræðunni; 

.

"Þeir eru örugglega til sem vildu fá aftur ríkisrekna banka og fjárfestingarsjóði, svarthvítt sjónvarp og frí frá því á fimmtudagskvöldum, en gætum við hin ekki fengið að spegla okkur í sólargeislum framtíðarinnar og þeim feykilegu tækifærum sem felast í henni?

Er íslenskt viðskiptalíf nógu duglegt við að koma þessum boðskap á framfæri? Að hér hafi verið sköpuð tækifæri til vaxtar og útrásar? Nei, það held ég ekki. Gleymum því ekki að til er önnur hugmyndafræði sem gengur út á að hið opinbera eigi að auka afskipti sín af atvinnulífinu og vill setja á boð og bönn um alla skapaða hluti. Vilja Íslendingar hverfa aftur til þess tíma þegar gengisfellingar, verkföll, verðbólga og atvinnuleysi tóku lungann úr fréttatímum sjónvarpsstöðvanna? Nei, það held ég alls ekki".

framsokn2 

.

og síðar í ræðunni kemur þetta;

 

 

"Ég leyfi mér að fullyrða að einkavæðingarferlið, ef svo má að orði komast, hafi gengið vel undanfarin ár og til þess fallið að auka samkeppni og skilvirkni í þjóðfélaginu, neytendum til hagsbóta. Íslensku viðskiptabankarnir eru gott dæmi um slíkt. Heldur einhver að afl þeirra, sem sýnir sig ekki bara í lækkandi vöxtum og þjónustugjöldum heldur einnig í magnaðri útrás og starfsemi á erlendri grundu, hefði stóraukist eins og raun ber vitni undir væng ríkisvaldsins? Ég held ekki og hef ég þó prýðilega trú á sjálfum mér og öðrum stjórnmálamönnum! Það hefur sannast á undanförnum misserum að þessum rekstri er einfaldlega betur fyrir komið í höndum einkaaðila". 

.

og loks;

"Mig langar til að enda tölu mína á því að vísa í upphaf og endi þess sem hér hefur verið umfjöllunar, nefnilega þann glæsilega árangur sem náðst hefur fyrir tilstuðlan dugmikillar þjóðar sem lætur smæð sína ekki slá sig út af laginu heldur siglir ótrauð áfram, jafnvel þótt stundum blási hraustlega á móti. Á sama hátt og ég leyfi mér að telja okkur stjórnmálamennina að nokkru leyti ábyrga fyrir þeim góða árangri sem náðst hefur, fyrst og fremst með því að skapa ákjósanleg og hvetjandi skilyrði, þá er það og okkar hlutverk að móta framtíð sem býður upp á enn frekari tækifæri.

Ég á mér þann draum að í framtíðinni verði Ísland þekkt um víða veröld sem alþjóðleg fjármálamiðstöð. Að hér á þessari litlu og hjartfólgnu eyju starfi kraftmikil alþjóðleg fyrirtæki, sem hafa kosið að eiga hér höfuðstöðvar vegna ákjósanlegra skilyrða af hálfu stjórnvalda, vegna þess mannauðs sem í landinu býr og vegna mikils og góðs stöðugleika, hvort sem er í efnahaglegu eða stjórnmálalegu tilliti".

.

37c

.

Undirstrikunin er gerð af bloggsíðuhöfundi. 

Loksins er hér einn maður sem lýsir sig ábyrgan !! 


Ort af tilefni.

 

Þetta fann ég á netinu en veit ekki hver höfundur er;

.

Ort af tilefni.

.

Var það þess virði
þú víkingur útrásarinnar
að láta land þitt að veði
svo legið þú gætir á allsnægtabeði
og kjamsað á ávöxtum ágirndar þinnar?
Var það þess virði
að veðsetja allt sem er dýrast
hneppa þjóð þína í helsi
hrifsa burt stolt hennar, manndóm og frelsi
svo aleinn þú fengir í höllum að hírast?
Var það þess virði
að veita þér allt sem þú þráðir
ánetjast gleði og glaumi
gjálífið þreyja í óminnisdraumi
– uppskeru njóta, þó engu þú sáðir?
Var það þess virði
að verða svo sjúklega ríkur
– að eignast allt þetta glingur?
Er ekkí hjarta þér dulítill stingur?
Því sá á jú ekkert, sem yndið sitt svíkur.

.

alfheidur-akranesi-fani-einn-480 

.


Evrópumál.

 

Þegar ég var á Bifröst í den,  lærði ég þýsku í einn vetur.  Eða átti að læra þýsku.  Blush  Mér fannst kennarinn kenna okkur svo vitlaus orð.  Hann kenndi t.d. öll smáatriði á reiðhjóli;  bjalla, keðja, stýri og hnakkur á þýsku.  Halló !  Til hvers ?  Pinch   Nema.... þar sem ég var unglingur fór ég í netta uppreisn og nýtti þýskutímana í að hnoða saman ljóð ásamt einum bekkjarfélaga mínum.... sem líka var í uppreisn.

Síðan gerist það nokkrum árum síðar að ég fer til Þýskalands.  Ekki notaði ég reiðhjól og þurfti því ekkert á þeim orðum að halda sem reynt hafði verið að troða í hausinn á mér.  Reyndi ég þó að rifja upp einhver önnur og nothæfari orð.  Kvöld eitt fórum við á veitingastað og ég, ofurroggin, pantaði bradwürst.

Sá í huganum ljúffenga samloku.  Joyful

Eftir smástund kemur þjóninn með disk;

.

f3310 

.

Þrátt fyrir ítarlega leit á netinu, fann ég ekkert bjúga sem var eins ógirnilegt og það sem þjónninn bar mér þennan dag í fyrndinni.  Helst líktist það þó efstu bjúgunum á diskinum, þessum brúnu.  Var bara stærra og lá eins og skeifa yfir diskinn allan.  Það var ekki neitt annað en þetta risabjúga á diskinum.  Ojjjj.

Ég horfði skelfingu lostin á "matinn".  Crying  Þetta var svo hroðalega ólystugt að það var ekki séns að ég fengist til að smakka.  Maður borðar ekki ALLT !

.

Síðan hef ég ekki talað þýsku.  Pouty


Er ég að tapa mér ?

 

Gasp

Í miðju skammdeginu og kreppunni kom það fyrir mig fimm sinnum í nótt að ég vaknaði.

Ég veit ekki hvort ég á að þora að segja þetta.   Pouty

FootinMouth

Æ, þið vitið hvort eð er hvernig ég er.  Frown

Ehhhm.....

Ég vaknaði fimm sinnum í nótt......... 

 

 

 

 

.................skellihlægjandi !

 

.

LaughCartoon[1] 

.

Ekki nokkur svefnfriður fyrir mínum eigin hlátri. 

Ferlegt að ég man ekki hvað mig dreymdi.  Sideways

 


Rónarnir og fjölskyldan í Álfheimunum.

 

.

Einu sinni var fjölskylda í Álfheimunum.  Svo virtist sem allt léki í lyndi hjá foreldrunum og börnunum þeirra átta.  Faðirinn vann úti en móðirin var heimavinnandi húsmóðir.  Dag einn, er þau sitja að kvöldverðarborði, er bankað.  Fyrir utan standa nokkrir rónar.   Móðirin á heimilinu þekkti þá frá fornu fari.  Þarna stóðu gamlir skólafélagar hennar.  Móðirin, sem þekkt var fyrir að vera vinur vina sinna, gerði sér lítið fyrir og rétti þeim allt sparifé fjölskyldunnar.  Nú skyldu þeir fá að skemmta sér.  Wizard

Rónarnir urðu að vonum mikið glaðir og héldu á næsta bar.  Þar drukku þeir og drukku uns peningarnir voru uppurnir.  Þá hringdu þeir í vini sína í Álfheimum og sögðu farir sínar ekki sléttar.  Móðirin sá enn aumur á þeim og veðsetti húsið fyrir láni handa þeim.  Þeir héldu þá áfram gleðskap sínum.  Mikið fjör og mikið gaman !  Enn komu rónarnir, nokkru síðar.  Föðurnum fannst að hann yrði að standa með konu sinni og afhenti rónunum lykla að húsinu og bauð þeim að láta eins og heima hjá sér.  Einnig tæmdu þau framtíðarreikninga barna sinna....... því rónarnir voru jú svo almennilegir að bjóða hjónunum í ærlega drykkjuveislu með sér. 

Nú tók við svall næstu misserin.  Heyrðust þá raddir sem vildu að börnin yrðu tekin frá þessum foreldrum í Álfheimunum.  M.a. vegna þess að fregnast hafði að yngsta barninu væri gefinn sopi af og til, til að þagga niður í því þegar það var óánægt.  Heimilið var líka í rúst !

.

Baby%20Drinking%20Beer 

.

Mamman og pabbinn kunnu ráð.  Þau vildu halda foreldrahlutverki sínu - því barnabæturnar voru svo háar - og Þau ákváðu að skipta bara um hlutverk;  mamman myndi framvegis vinna úti og pabbinn vera heimavinnandi.  Þar með var engin ástæða til að taka börnin frá þeim lengur.  

Eða hvað ?  Woundering

----------

Geir og Ingibjörg Sólrún, ásamt öðrum ráðherrum eru að gera það sama.   Þau skipta um hlutverk.   Eins og það breyti einhverju ?  Kjósendur eru náttúrulega voða glaðir og kátir.  NOT.

Helvítis fokking fokk - eða þannigBlush  (ljótt að blóta)

 


4-1

 

Manchester United rúllar Chelsea upp í dag,  4-1 .... annars má ég hundur heita.  Cool

.

DogObedienceTraining 

.

Ef svo fer að mér skjátlast... þá er næst að finna nafn á hundinn.  Pouty

.


mbl.is Lykilmenn tilbúnir í slaginn í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fækkaði fötum í vinnunni í dag.

 

.

Það er ekki á hverjum degi sem maður fækkar fötum í vinnunni.  Whistling 

.

Í dag var ég að stilla blómum fram til sölu.  Blómvendirnir eru í þremur mismunandi stærðum.  Ég þurfti að klippa endann af hverjum vendi og setja vendina síðan í vatn.

.

Þegar ég er búin að þessu og er að fara að trilla blómunum fram, tek ég eftir því að ég geng á vatni.  Ekki þó eins og Jesú, heldur bara svona sull í pollum á gólfinu.  

.

Undrandi skoða ég undir vatnsföturnar og sé þá að ein lekur.  Og eins og Guðni Ágústsson myndi orða svo pent;  "Þar sem að fata lekur,,, þar er vatn".

.

Það var því ekki um annað að ræða en að henda fötudruslunni...... og fækka þar með fötum í vinnunni. 

.

 

.

810005

.

 


Litla gátuhornið.

 

Þegar jólamyndirnar eru skoðaðar kemur dálítið athyglisvert í ljós.

Nú er það ykkar að finna hvað er merkilegt við myndirnar ?

.

kisi I 

.

kisi IV 

.

kisi II 

.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband