Rónarnir og fjölskyldan í Álfheimunum.

 

.

Einu sinni var fjölskylda í Álfheimunum.  Svo virtist sem allt léki í lyndi hjá foreldrunum og börnunum þeirra átta.  Faðirinn vann úti en móðirin var heimavinnandi húsmóðir.  Dag einn, er þau sitja að kvöldverðarborði, er bankað.  Fyrir utan standa nokkrir rónar.   Móðirin á heimilinu þekkti þá frá fornu fari.  Þarna stóðu gamlir skólafélagar hennar.  Móðirin, sem þekkt var fyrir að vera vinur vina sinna, gerði sér lítið fyrir og rétti þeim allt sparifé fjölskyldunnar.  Nú skyldu þeir fá að skemmta sér.  Wizard

Rónarnir urðu að vonum mikið glaðir og héldu á næsta bar.  Þar drukku þeir og drukku uns peningarnir voru uppurnir.  Þá hringdu þeir í vini sína í Álfheimum og sögðu farir sínar ekki sléttar.  Móðirin sá enn aumur á þeim og veðsetti húsið fyrir láni handa þeim.  Þeir héldu þá áfram gleðskap sínum.  Mikið fjör og mikið gaman !  Enn komu rónarnir, nokkru síðar.  Föðurnum fannst að hann yrði að standa með konu sinni og afhenti rónunum lykla að húsinu og bauð þeim að láta eins og heima hjá sér.  Einnig tæmdu þau framtíðarreikninga barna sinna....... því rónarnir voru jú svo almennilegir að bjóða hjónunum í ærlega drykkjuveislu með sér. 

Nú tók við svall næstu misserin.  Heyrðust þá raddir sem vildu að börnin yrðu tekin frá þessum foreldrum í Álfheimunum.  M.a. vegna þess að fregnast hafði að yngsta barninu væri gefinn sopi af og til, til að þagga niður í því þegar það var óánægt.  Heimilið var líka í rúst !

.

Baby%20Drinking%20Beer 

.

Mamman og pabbinn kunnu ráð.  Þau vildu halda foreldrahlutverki sínu - því barnabæturnar voru svo háar - og Þau ákváðu að skipta bara um hlutverk;  mamman myndi framvegis vinna úti og pabbinn vera heimavinnandi.  Þar með var engin ástæða til að taka börnin frá þeim lengur.  

Eða hvað ?  Woundering

----------

Geir og Ingibjörg Sólrún, ásamt öðrum ráðherrum eru að gera það sama.   Þau skipta um hlutverk.   Eins og það breyti einhverju ?  Kjósendur eru náttúrulega voða glaðir og kátir.  NOT.

Helvítis fokking fokk - eða þannigBlush  (ljótt að blóta)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

einmitt. halda foreldrahlutverki sínu. það er erfitt að láta frá sér völdin.

stundum þarf að fjarlægja foreldrana frá börnunum, jafnvel með valdi.

arnar valgeirsson, 12.1.2009 kl. 00:19

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þetta er auðvitað svolítil einföldun hjá mér..... í raun er Dabbi pabbi og Halldóra mamma en þau fóru frá okkur og þá komu stjúpforeldrarnir sem reyndust okkur engu betri.  Málið er að stjórnvöldum er auðvitað fyrst og fremst ætlað það hlutverk að hugsa um heill og hag sinnar þjóðar.  Þau brugðust því hlutverki.

Ég vil fá nýja foreldra í vor.  Engar hrókeringar takk !  Skákin er búin.

Anna Einarsdóttir, 12.1.2009 kl. 08:09

3 Smámynd: Einar Indriðason

Þetta kallast meðvirkni.  Og ansi slæm meðvirkni er að hrjá ansi marga íslendinga.

T.d. Allir þeir sem kjósa D listann, og sjá ekkert athugavert við það eru meðvirkir.  Allir þeir sem sjá ekkert athugavert við aðgerðir D listans eru meðvirkir.

Og, það sem verra er... Þessir meðvirku... algjörlega þverneita því að þeir séu meðvirkir.  Sem þýðir... þeir neita að horfast í augu við að það séu yfirhöfuð nokkur vandamál til.  Og neita því að þiggja hjálp, þó þeir liggi jafnvel ófærir eftir, með brotin bein, glóðaraugu, marbletti, og allt tilheyrandi.

SVEI ykkur meðvirku kjósendur!

Einar Indriðason, 12.1.2009 kl. 08:27

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mér finnst ég vera svo munaðarlaus.........

Hrönn Sigurðardóttir, 12.1.2009 kl. 08:51

5 Smámynd: Gulli litli

Hmmmmm

Gulli litli, 12.1.2009 kl. 15:41

6 identicon

Sæl Anna og GLEÐILEGT 'Ar,  stelst alltaf öðru hvoru til að kíkja á bloggið þitt og hef alltaf jafn gaman að. Fjári góður pistill hjá þér,mín tilfinning er sú að þessir skrattakollar (eru þeir ekki 63) sem sitja hið háa alþingi séu allir meira og minna meðvirkir,hvort sem þeir kallast D,S J eða hvað þetta heitir nú allt saman,treysti engum þeirra fyrir næsta húshorn. Held að það þurfi eitthvað mjög stórt til að taka til í öllum þessum vibba sem hefur viðgengist  Eins og Hrönn segir,mér finnst ég svo munaðarlaus.  Bestu kveðjur frá atvinnuleysingjanum.

Sæa (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 16:31

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gleðilegt ár Sæa og takk fyrir að stelast hingað inn reglulega. 

Nú stofnum við Samtök munaðarlausra kjósenda. 

Anna Einarsdóttir, 12.1.2009 kl. 17:33

8 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

HELV.... fo..... f... !!!!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.1.2009 kl. 17:36

9 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Æi, þetta er svo sorgleg fjölskyldusaga...................

Kristjana Bjarnadóttir, 12.1.2009 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 342866

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband