Færsluflokkur: Spil og leikir
30.7.2008 | 09:57
Ballerína fékk taugaáfall.
.
.
THE END.
(Stóð ekki einhvers staðar að í upphafi skyldi endinn skoða)?
.
.
Katla Gustavsberg er búin að vera í dansskóla.
Þessi mynd er tekin á einni af fyrstu æfingunum og þykir Katla heldur gleiðfætt í dansinum. Henni er uppálagt að bæta stílinn.
.
.
Aðeins bar á úrbótum hjá Kötlu. Það er ekki laust við að hún hafi notið dansins. Hún syngur hástöfum.
(Um helgina ætla ég að syngja lágstöfum)
.
.
.
Ómæ ómæ.... hvílík ballerína !!
.
.
Katla Gustavsberg útskrifaðist úr dansskóla með hæstu einkunn.
Eeeeeen............... nú þarf hún að fara til sálfræðings. Hún er haldin félagsfælni á háu stigi.
Þegar gestir stíga inn fyrir dyrnar hendist hún inn í herbergi og felur sig. Allan daginn þessvegna.
.
Og hún fékk taugaáfall þegar hún sá sængur án sængurvera í gær. Katla hélt í alvöru að það væru skrímsli í rúminu.
.
Þess ber að geta að ég var ekki í rúminu þegar hún hélt það.
.
.
28.7.2008 | 15:59
Er hægt að nota hann í smalamennsku í haust ?
.
.
Gunnar var úti með ærnar í haga
kunn´ekk´að smala og ráðalaus dó
Hann dó samt ekki, ég var bar´að bulla
Gunnar samt kann ekk´að smala - og þó ?
Aggagagg sagði kindin og beit´ann
Æjæjæ sagði Gunnar - þú fitubollan ! (við kindina sko)
grænleitum augunum trúi ég hann gjói
á aumingja ærnar, sem hlaupa svo heim.
.
.
Þessa vísu samdi ég fyrir margt löngu um Gunnar bloggvin minn.
Spurningin sem brennur á mér; Er Gunnar kannski besti smali ever ?
Hann er allavega búinn að smala næstum 100 bloggvinum í einn hóp á Topplistanum.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.7.2008 | 09:05
Kæri póstur.
Kæri póstur.
Ég er í vandræðum. Mér finnst eins og líf mitt sé komið í klessu. Við erum að tala um stórmál sem ég sé ekki nokkra einustu lausn á. Maðurinn er örugglega hættur að elska mig. Ég meina, hann gaf mér blóm fyrir viku......... en síðan hefur hann ekki gefið mér neitt. EKKERT.
Ekki eitt laufblað - ekki eina tölu, hvað þá rennilás.
Hvað á ég að gera ?
Ef ég hendi honum út núna, á ég þá að láta helv. blómin fjúka á eftir honum ? Þau eru hvort sem er orðin gömul.
Að maðurinn skuli láta sér detta í hug að ég líði svona framkomu.
Drulluhali, skítbuxi, nískupúki og ómagi.
.
Kæri póstur. Ég bíð eftir svari.
Ein í öllum öngunum.
.
.
24.7.2008 | 21:11
Þjónn !!!
Stundum koma upp aðstæður í daglegu lífi, sem hafa aldrei komið upp áður og þá reynir á hvort maður kunni að bregðast við.
Ég kunni það ekki áðan.
Þannig var að ég fór í bað. Þar sem ég ligg.... ekki í makindum.... heldur í baði og sulla dálítið, sé ég að það er fluga í baðinu mínu. Fluga í baðinu !
.
Það er þó ekkert vandamál get ég sagt ykkur, heldur hitt að þegar ég ætla að kalla;
"Þjónn, það er fluga í baðinu", átta ég mig á því að ég hef engan þjón.
.
.
Það þarf svo sterk bein til að vera ég.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.7.2008 | 23:51
Ég á minn stól.
Nú er ég komin í mánaðar sumarfrí. Ég get sagt ykkur að það er allt öðruvísi að vera í sumarfríi, heldur en án atvinnu og þessvegna í fríi. Samt er maður að gera næstum því ekkert í báðum tilfellum. Þetta er bara spurning um að vita hversu langt fríið er og hvað maður gerir eftir frí.
Svipuð tilfinning og að eiga sinn stól í eldhúsinu. Að hafa fasta punkta í tilverunni.
Í dag gerði ég bara nauðsynlegustu heimilisverk. Á morgun ætla ég að gera bara nauðsynlegustu heimilisverk og ekkert meira. Kannski geri ég eitthvað á hinn daginn, kannski ekki.
Líklega ekki.
.
.
22.7.2008 | 21:18
Bara svona ein spurning í kvöldsárið.....
.......Hefur þú einhvern tíma verið skotinn í Kaf ?
.
.
19.7.2008 | 09:29
Eitt eintak er meira en nóg.
.
Morgunstund gefur gull í mund
með gleði ég opna augun mín
því ég á hesta, kisur og hund
og get sem best líka farið í sund
hugsað um hvernig skal ávaxta pund
fengið mér kaffi sem léttir jú lund
og röddina hækkað, upp um áttund
.
......... nei, þessi vísa fær aldrei vængi.
.
Finn frekar spakmæli úr bók...... bíddu aðeins...... Set hérna mynd á meðan þú bíður.
.
.
Jæja..... hér koma spakmælin;
.
"Barnaskap kalla menn hjá öðrum þann hluta barnsins, sem þeir hafa glatað hjá sjálfum sér".
.
"Sé munurinn ekki tekinn með í reikninginn, erum við manneskjurnar á flestan hátt nokkuð líkar".
.
"Reyndu aldrei að móta neinn í þinni eigin mynd, bæði þú og skaparinn vitið að eitt eintak af þér er nóg".
.
Góðan dag.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.7.2008 | 22:04
Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.
Í gær fjárfesti ég í nammipoka fyrir kisu, svokölluðu kisunammi. Þegar heim kom, gaf ég henni einn mola og hún smjattaði vel og lengi á honum. Eftir kvöldmat ætlaði ég svo að lauma öðrum mola að henni en fann þá ekki pokann. Hér leituðu allir dyrum og dyngjum að kisunamminu en það var engu líkara en jörðin hefði gleypt það.
Eftir langa mæðu fann ég pokasnifsi á gólfinu. Afganginn af pokanum utan af kisunamminu. Mér var eiginlega létt að jörðin skyldi ekki hafa gleypt nammið, heldur kisa sjálf. Líklega er henni illt í maganum í dag.
.
------------------------------------------------
Ég var búin að nefna við ykkur afleysingavinnu mína í ávaxtakælinum þessa dagana. Það sem kemur mér mest á óvart við þá vinnu, sem annars er mjög skemmtileg, er hversu ótrúlega margar tegundir eru til af ávöxtum og grænmeti. Ég þekki varla helminginn af þessu.
.
.
Í einhverri auglýsingunni sagði; Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.
Með það í huga, góni ég á alla torkennilega ávexti sem ég kann ekki nafnið á en er þó engu nær.
Auglýsingar eru bull !
.
------------------------------------------------
.
P.S. Þessa dagana er ég mjög hamingjusöm. Það er þó ekki alveg laust við að ég hafi smá samviskubit yfir gleði minni því ég veit að margir eiga um sárt að binda vegna ástvinamissis.
Enn felli ég líka stundum tár yfir Gillí minni og öðrum ástvinum sem eru farnir. Því vil ég kveikja á kertum fyrir þá sem við söknum og til að sýna samkennd með þeim sem eiga erfitt.
Með ósk um ljúft kvöld.
.
.
15.7.2008 | 22:12
Viltu fá gæsahúð ?
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði