Sparisjóður grínista - grútfúll og sökkar.

 

Síðustu færslur mínar hafa sko ekki verið neitt grín.

Það var meðvituð ákvörðun á þessum bæ að blogga beitt og gagnrýnið.

Bankarnir eru þessa dagana að gleypa Sparisjóðina eins og nýtýnd jarðarber.

.

Sparisjóður grínista og nágrennis vill ekki sjá neina sameiningu eða það að einhver gleypi hann með húð og axlarsíðu hári. 


Því greip hann til þess ráðs - til að forðast að einhvern langaði í hann - að vera fráhrindandi og ógirnilegur, leiðinlegur og grútfúll, ruddalegur og meinfýsinn, asnalegur og klénn.  W00t

Það svínvirkaði því enginn hefur boðið í hlutabréfið.  Blush  

.

Image0009 

.


Neydd til kynferðismaka, brotin rifbein og sprengd hljóðhimna....

 

...... og það dugir ekki til að fá nálgunarbanni framlengt.

Þá spyr ég;  HVAÐ ÞARF TIL ???? 

Hugsanlega er hægt að fá nálgunarbann ef fyrrverandi sambýlismaður höfuðkúpubrýtur konuna, sagar af henni fót eða plokkar úr henni auga.

Kannski ekki.

Það er allavega of seint þegar hann hefur drepið hana.

.

right-wing-jump 

.


mbl.is Kröfu um áframhaldandi nálgunarbann hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mútur ?

 

Ef fram heldur sem horfir, verður Ísland orðið forljótt og mengað eftir örfá ár.

Eins og málin horfa við mér, geta erlend stórfyrirtæki arkað inn í landið og boðið einhverjum sveitarstjórnarmönnum í kaffi...... og líklega eitthvað gott með því......hugsanlega peninga..... og þá fá þeir leyfi til að reisa hér olíuhreinsistöð eða álver eða skíthreinsistöð af einhverju tagi.

Þetta er landið okkar allra.  Ísland !  InLove

Sú stjórnvaldsákvörðun að færa þetta vald frá Alþingi til sveitastjórna er álíka gáfuleg og að ég sem móðir leyfi börnunum mínum að ákveða hvort þau úði tjöru í garðinn minn.

Hvað er  stjórnmálamönnum sem færa svo mikið vald til sveitarstjórna ?

Sjálfstæðisdrasl.  GetLost 

.

 

.


mbl.is Olíuhreinsistöð: Umhverfismat er næsta skref
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. ágúst 2008

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband