Vöknuð !

 

Jæja sko.

Í gærmorgun sagði ég "morgunstund gefur gull í mund".

Núna vaknaði skjátan klukkan sex.  Pinch  ....... og er í sumarfríi !

Er þetta merki um að ég sé að verða gráðug á gullið ?  Gasp

Eða er ekki allt í lagi heima hjá mér ?

Augnablik !

Jújú, allt í ró og spekt og hundurinn hrýtur frammi.

Hef víst aldrei sagt ykkur að hundurinn hrýtur alveg ótrúlega hátt.

Við erum að tala um 8 desibil.  LoL

Hvort ætti ég að fara með hann til háls- nef og eyrnalæknis eða dýralæknis ?

Það bitnar á ykkur að ég get ekki sofið.

Þvílíkt endemis buddl.  Blush

 

Castafiore

 

Best ég reyni að syngja mig í svefn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

... góðan daginn!... það getur verið erfitt að sofa þegar maður er spenntur....

Brattur, 18.7.2007 kl. 07:49

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Góðan daginn Brattur !

Ég var einmitt að gefast upp á söngnum.  Var komin í stuðlög og ekkert að sofna.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 07:55

3 Smámynd: Brattur

... það er gott að geta skriðið uppí aftur.... en aumingja ég... á leiðinni í vinnuna... en hún er þó skemmtileg... það er kostur...

Brattur, 18.7.2007 kl. 07:59

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nú er ég búin að laga netkaffi fyrir þig kaddl. 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 08:04

5 Smámynd: Brattur

... mundu... bara te hérna meginn...

Brattur, 18.7.2007 kl. 08:06

6 Smámynd: Brattur

nette...

Brattur, 18.7.2007 kl. 08:06

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nette hljómar bara svo illa. 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 08:07

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Asnaprikið þitt Brattur !  Stalst nýyrðinu mínu.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 08:08

9 Smámynd: Brattur

... nette lítur ekki vel út... og ekki víst að venjulegt fólk fattið svona orð...

Brattur, 18.7.2007 kl. 08:09

10 Smámynd: Brattur

fatti

Brattur, 18.7.2007 kl. 08:09

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mette drekkur nette. 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 08:09

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Heldurðu að Mette fatti gott nette ?

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 08:10

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Er ég að tala íslensku ?

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 08:12

14 Smámynd: Brattur

... jæja... mikðvikudagur og lífið gengur sinn gang... best að kíkja út og sjá hvað bíður... heyrumst í kvöld...

Brattur, 18.7.2007 kl. 08:12

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hagaðu þér þokkalega í vinnunni pjakkur. 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 08:14

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Best að reyna að kúra........

Ó hve létt er þitt skóhljóð

ó hve lengi ég beið þín

er ég syng koma óhljóð

já ég syng eins og svín

en ég reyni að raula

þetta heitir að baula

hljóðin óma eins og væl

ég er sofnuð með stæl

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 08:24

17 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Sæl, kæru bloggvinir. Afsakið fjarveruna. Eða voruð þið kannski bara fegin að losna við mig um stund? Búinn að lenda í miklum hremmingum með tölvuna heima og seinni partinn í gærkveldi var orðið ljóst að hún ætti ekki langt eftir. Gat tuðað eitt eða tvö komment og að því loknu, laust upp úr miðnætti gaf vélin endanlega upp öndina. Móðurborðið hrunið og ljóst að viðgerð borgar sig engan veginn. Veikindi "Dellu" hófust með "hiksti í mús" sem yfirleitt er ekki talinn hættulegur, að öllu jöfnu, en endaði semsagt með andláti í nótt.  Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þau sem vilja mynnast hennar er bent á "Leitasrjóð Lúsifers" á Akureyri. 

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 09:10

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Við söknuðum þín !

Nú arkar þú út í búð og kaupir þér nýja tölvu strákur.

Ég hlusta ekki á nein mótmæli hér.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 09:47

19 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

kvitt frá Ísafirði!

Edda Agnarsdóttir, 18.7.2007 kl. 10:35

20 Smámynd: Hugarfluga

Ég held að þú ættir að prófa að fara með hundinn á bifreiðaverkstæði og láta tékka á hljóðkútnum í'onum. Og hey ... ég svaf til 10.58 og það er allt of mikið. Núna er ég með bakverk og sí-geyspandi. Hefði getað verið búin að gera helling í fríinu mínu, en nenni engu núna.

Hugarfluga, 18.7.2007 kl. 11:29

21 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Nei Anna, hundurinn er sennilega með skakkt miðnesi eða þá úfurinn of síður.

sem minnir mig á að eigi verður jakki frakki, nema síður sé. 

Leist þér ekki vel á lýsinguna á folanum mínum sáluga? (sjá komment á síðasta bloggi.)

Ég veit ekki hvort ég kemst á leikinn í kvöld, nema þú hafir kannski einhver ráð handa mér til að dulbúast.  Ferð þú á leikinn? 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.7.2007 kl. 11:38

22 Smámynd: Marta B Helgadóttir

er ennnnnnnn á flakkinu á Austfjörðum- takk Anna fyrir skemmtilegar færslur frá þér.

Marta B Helgadóttir, 18.7.2007 kl. 12:10

23 Smámynd: Anna Einarsdóttir

*geisp* 

Lýsingin á klárnum Inga......... ég tók sérstaklega eftir því að hann var alltaf 17 vetra.

Hæ stelpur, austur og vestur !

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 12:16

24 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

var að spá í hvort þú værir í hestamennsku eftir að þú sagðist þurfa að strauja hestabuxurnar þína.  því þá gætum við rakið ættir Hrafns frá Holtsmúla,

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.7.2007 kl. 13:08

25 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hrafn er undan Snæfaxa frá Páfastöðum og Jörp frá Holtsmúla.  Hrafn var frekar graður og eignaðist 5-600 afkvæmi.  Ég nenni engan veginn að telja þau upp núna. 

Þú kynnist mér með tíð og tíma Ingibjörg.... no comment, no comment. (vá, ég tala eins og ég sé fræg) 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 13:23

26 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

þú hlýtur að vera fræg, ef ekki núna, þá strax.

Það komu margir góðir frá Páfastöðum og allir brúnir.

Imbu genin láta ekki að sér hæða 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.7.2007 kl. 13:31

27 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Gobbidí gobb!!!!   600 afkvæmi.!! Nóg að gera þar  Átti einu sinni átta hesta. Þá var gaman.

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 13:38

28 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Allt í lagi þá...... læt undan þrýstingi.  Já, ég á sýnishorn af stóði,, fjóra hesta.    Enginn brúnn !

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 14:02

29 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Stóri hesturinn minn brúni

stendur útí túni.

Sólin skín á hann allan

Hvað segir hún amma þín.      eöa þannig kvað frægur hestamaður sem löngu er nú fallinn frá.

Hvaðan eru þínir gæðingar Anna og Halldór Egill. Hvaðan voru þínir klárar.

Minn 17 vetra foli var grár á lit,  undan Slaufu frá Meðsetju og Kjarki frá Rauða-Hofi. Hann sagði líka gobeddí gobbedí gobb.

Það er ekkert að eiga 600 afkvæmi þegar þau eru dreifð um allar jarðir. 

Annars, er ég að fara í snyrtingu fyrir leikinn í kvöld. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.7.2007 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 342838

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband