Samsæri !

 

Það þarf enginn að segja mér að þetta sé tilviljun. GetLost

 

Áðan tók ég ákvörðun um að fara í sólbað.

Opna því ferðatöskuna og fer að leita að stuttbuxunum mínum.

Ég gramsa og gramsa en án árangurs.

Þá staldra ég við og hugsa. Woundering

Ég man að ég þvoði þær nýlega.

Eftir allmargar mínútur og örfáar vangaveltur fann ég þær !

Stuttbuxurnar földu sig á bakvið peysu úti á snúru.

Ég sem hafði ætlað að taka þær með í hestaferð en mundi svo ekkert eftir þeim....... sem kom ekki að sök, því í hestaferðinni mundi ég ekki eftir að hafa ætlað að nota þær. Wink

En nú er ég búin að finna stuttbuxurnar mínar og svo þarf sólarvörn og "feita strák" (fatboy) sem ég ligg oft á.  Síðan læt ég vatn í glas og tölti út. 

Já, nú sé ég fram á samverustund með gula kjánanum.

Og hvað gerist þá ?

 

getimage

 

Jú, koma ekki skýin og stilla sér upp á milli mín og sólarinnar.

Ég er að segja ykkur það;  Þetta gerist of oft til að það geti verið tilviljun.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.7.2007 kl. 17:00

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Er barnaafmæli ?

Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 17:07

3 Smámynd: arnar valgeirsson

þú ert ekki ein um þetta með skýin. hef oft pælt í þessu með samsærið...

en þú heppin að gleyma því sem þú ætlaðir að nota og fattaðir ekki að þú þyrftir svo ekki að nota fyrr en þú komst heim og fannst ekki.... fyrr en seinna. úff, voðalega er þetta allt skrýtið. ertu stælgæi?

arnar valgeirsson, 22.7.2007 kl. 18:19

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Stælgæi ! 

Ehhmm..... er það gott eða slæmt ef ég er það ?

Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 18:29

5 Smámynd: Hugarfluga

Heldur þú með Í.A.?

Hugarfluga, 22.7.2007 kl. 19:19

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei, ég held með Í.M. 

Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 19:32

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

 

Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 342839

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband