2.8.2007 | 19:19
Forvitni læknirinn.
Það var ekki vandræðalaust að koma yngstu dóttur minni í heiminn. Fimm dögum eftir fæðingu, fékk ég heiftarlegar blæðingar. Þá er ekki verið að tala um rennandi blóð, því það fór allt í köggla og lifrar inni í mér og spýttist svo út á gólf þegar það kom út. Mjög sjarmerandi.
.
Læknar á sjúkrahúsi, úti á landi, settu dripp í æð hjá mér sem átti að stöðva blæðingarnar. Áfram héldu þó blæðingarnar af fullum krafti. Þeir skrúfuðu þá meira frá flöskunni, juku drippflæðið, en allt kom fyrir ekki. Þannig gekk í tvo sólarhringa. Ég var búin að skamma þá og segja að þetta virkaði ekki hætis hót og það eina sem þetta dripp gerði mér, var að ég varð alltaf veikari og veikari.
.
Skemmtileg saga ?
.
Tveimur sólarhringum eftir að blæðingar hófust, var ég loks send með sírenusyngjandi sjúkrabíl á gjörgæslu Landspítalans.
.
Á Landspítalanum tók á móti mér læknir sem ég þekkti frá fyrri sjúkrasögu - sem ykkur kemur ekki við.
Ég man hvert einasta orð sem okkur fór á milli:
.
Læknir...... "Sæl......ég þarf að spyrja þig nokkurra spurninga. Veistu hvaða dagur er" ? (Hvað, eins og maður gangi með dagatal á sér þegar maður er á spítala )
.
Anna....Nei.
.
Læknir....."Veistu hvaða mánuður er" ? ("Hvað er að manninum.....getur hann ekki gáð að því sjálfur" ? Ennþá finnst mér eðlilegt að ég viti ekki svarið þar sem ég hef jú verið á spítala).
.
Anna.... Nei.
.
Læknir..... "Veistu hvaða ár er" ? (Nei hættu nú alveg )
.
Anna.... Ehmmm..... nei.
.
Læknir..... "Veistu hvað þú heitir" ? (Ég hugsa lengi, lengi).
.
Anna....... Nei. (aulalegt )
.
Læknir......"Veistu hvað ég heiti"?
.
Anna......... Ég man ekki hvað þú heitir, en ég veit sko alveg hver þú ert ! (Hjúkket, ég held kúlinu. Þar skall hurð nærri hælum. Næstum búin að gera mig að fífli ).
.
Það sem gerðist var að drippið áðurnefnda, ruglaði blóðsykri og söltum sem olli því að ég fékk mikinn bjúg alls staðar. Líka við heilann. Mér skilst að ég hafi litið hroðalega út.
Þegar ég fékk rétta meðhöndlun runnu svo frá mér 15 lítrar á 15 tímum. 15 kíló.
Og ég er svo heppin að vera nokkuð heil í heilanum..... held ég.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 343172
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
vá! heppin ég að þú lifðir þetta af ! já ok ok og allir hinir og fjölskyldan þín líka
Ragnheiður , 2.8.2007 kl. 19:28
Ok, frekar grós svona í byrjun, var að spá í að sleppa að lesa rest ...... en gott að þú bjargaðist úr þessum lífsháska
Eva Þorsteinsdóttir, 2.8.2007 kl. 19:40
Hei ! Ég var ekkert að drepast.
Fannst ykkur ekki síðasta svarið kænlega orðað ?
Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 19:54
það frosnaði ekki í þér heilinn eins og stefán fá möðrudal fékk víst að heyra þegar hann varð úti á fjalli á sínum tíma ..... Anna ég er alltaf að sjá betur og betur ... You are normal in this special world ......
Brynjar Jóhannsson, 2.8.2007 kl. 19:59
Er ég normal ? Það eru þó góðar fréttir.
Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 20:04
Úff...hræðileg saga Anna mín, alltaf einhver við dauðans dyr í þessari fjölskyldu. Ætli heilabjúgurinn sé ábyrgur fyrir skáldskap og skrýtlum
Gíslína Erlendsdóttir, 2.8.2007 kl. 20:39
En Gillí mín....... við erum seigari en hjólbarði.
Heilabjúgurinn ábyrgur ? Nei, held ekki. Ég var farin að haga mér svona um 7 ára aldur. Fór í könnunarleiðangur undir pilsfaldinn hjá ömmu og svoleiðis....
Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 20:52
Jess Kristjana. Með óstarfhæfan heila, finnst mér þetta vel af mér vikið.
Er ekki stoltari af nokkru svari, fyrr eða síðar.
Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 22:31
OMG
Jóna Á. Gísladóttir, 6.8.2007 kl. 00:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.