Ég fékk skemmtilega athugasemd í dag.....að ég væri normal. Það sama er ekki hægt að segja um dýrin mín.

 

Einu sinni átti ég hryssu sem fór alltaf með mér út á snúru að hengja út þvottinn.

Getur einhver toppað það ?

.

.

Þetta er Depill. 

Reyndar hét Depill Doppa þar til ég kíkti á "bíbbið".

Hvað er hann að gera þarna ? 

 

Mynd(37)

Jú, Depill er að sjúga tíkina... þessa hérna...

.

A003

.

Við þurftum að klæða hana, til að venja Depil drykkfellda af brjósti.

.

 

Hér er svo kisi eftir drykkinn góða.

.

Aftur

.

Depill er núna tæplega tveggja ára og það kemur ennþá fyrir að hann stelst á spena.  Sumt er bara svo gott.  Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Er Depill drukkinn á myndinni Anna? HHvar fær maður svona hund?

Halldór Egill Guðnason, 2.8.2007 kl. 20:56

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rosalegar dúllur eru þetta kona.  Krúttkast

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.8.2007 kl. 20:57

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Dóttir mín fékk svona hund frá mér í fermingargjöf.  Cavalier.  Finnur þá væntanlega á netinu.... það gerði ég.

Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 21:01

4 Smámynd: Brattur

... toppa þessa sögu... hvað með þetta; einu sinni átti ég konu sem fór alltaf með mér út á snúru að hengja upp þvottinn...

Brattur, 2.8.2007 kl. 21:33

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Brattur.  Þetta telst ekki með.  Við erum að tala um hunda, hesta, ketti, mýs.........

Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 21:46

6 Smámynd: Brattur

úpps.. Anna... mér fannst reynslusaga mín hinsvegar mjög sérstök... það er reyndar rómantík í því að hengja upp þvottinn með elskunni sinni, er ekki.... bara vel meint...

Brattur, 2.8.2007 kl. 21:55

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já, samþykki það.  Heilmikil rómantík að þurrka af saman líka.

Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 22:01

8 Smámynd: Karl Tómasson

Ég vil meina að Depill eigi að fara í nám til Kúsandra.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 2.8.2007 kl. 22:05

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Annars eru kettir merkilega klárir í kollinum.  Hér eru engir gluggar opnir upp á gátt því ég vil ekki fleiri heimilisdýr, s.s. fugla og mýs.  Kisa leitar að mér í húsinu og mjálmar fyrir utan þann glugga sem er næstur mér til að komast inn......

Pottþétt langgáfaðasti kötturinn á þessum breiddarbaug. 

Anna Einarsdóttir, 2.8.2007 kl. 22:05

10 Smámynd: Ragnheiður

gaman að klárum kisasögum.

Ragnheiður , 2.8.2007 kl. 22:09

11 Smámynd: Brattur

... kisan mín, hún frú Emilía er ansi krúttleg á veturna, þegar hún bankar blíðlega á rúðuna í stofunni hjá okkur og vill komast inn... það er alltaf opinn gluggi að aftan fyrir hana.... en henni finnst miklu betra að ég komi að aðaldyrunum og hleypi henni inni... og svo vill hún alltaf kyssa mig... held að þetta sé koss... en kannski er hún bara að þefa???... hvað með það, hún frú Emilía kyssir vel... 

Brattur, 2.8.2007 kl. 22:12

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Veit ekki hvort maður á að vera að reyna að toppa snúrusöguna, en ég þarf sennilega að fara sjálfur á snúrunrnar....hik

Halldór Egill Guðnason, 3.8.2007 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 342862

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband