31.8.2007 | 14:24
Verðlaunin - Riddari með regnhlíf.
Nú er slétt vika, þar til skákmót bloggara með tattoo fer fram með pompi og prakt. Hver pompar ? Ég held að það verði Edda. Það er hefð fyrir því hjá fegurðardrottningum, og jafnvel alheimsfegurðardrottningum, að pompa á rassinn.
.
Mér er bæði ljúft og nátengt að upplýsa,, enn og aftur, að verðlaun á skákmóti bloggara með tattoo, eiga að vera af lakara taginu. Heimatilbúin eða hugarsmíð, veidd eða sungin.
.
Mín verðlaun standa vissulega undir því, að vera af allökustu tegund. Þau eru svo ljót að ég sárvorkenni þeim sem þau hlýtur. Veit samt ekki ennþá hver verður svo óheppinn.
.
Hahahahahaha...... ...... afsakið....... er að jafna mig.
.
Jæja...... saga verðlaunagrips míns, sem heitir Riddari með regnhlíf, er harla ómerkileg. Hún hefst þegar ég,, ung stúlka í grunnskóla, kemst að því að listamannshæfileikar mínir eru langt undir eðlilegum mörkum. Og hún endar á þeim tímapunkti, þegar óheyrilega miklir stríðnistaktar taka völdin fyrir viku síðan...... og ég ákveð að mála mynd í verðlaun.
.
Ætla að sækja draslið........
.
.
Æ, ekki þessi. Mér fannst hún eitthvað svo ruglingsleg og ég hef sennilega verið undir fullmiklum áhrifum frá Erro..... svo ég gerði aðra...........
.
.
.
Listamannslufsan setti þarna á striga riddara, sem tengingu við skáklistina og skírskotar einnig í hestamannseðli hönnuðar. Þar sem óvenjumikil rigningartíð hefur verið undanfarið, þótti við hæfi að setja regnhlíf þannig að verkið samsamaði sér í tíma og rúmi. Blái liturinn táknar allt nema Sjálfstæðisflokkinn.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Hvað gerir þú margar svona myndir?
Edda Agnarsdóttir, 31.8.2007 kl. 15:09
Edda mín... bara eina, enda er það einni of mikið.
Það hefur kannski farið framhjá þér að "allir sem mæta eiga að koma með ein verðlaun. Verðlaunin skulu hafa nafn... því þeim verður úthlutað eftir ákveðnum reglum, sem einungis ég og Kristjana vitum.... en það tengist nafni verðlauna".
Síðan eru það vinsamleg tilmæli að bloggað verði um verðlaunin... helst núna um helgina. Þetta er gert svo menn séu ekki að drolla við þetta fram á síðustu stundu.
Á skákmótinu og í aðdraganda þess, verða þó engar reglur sem ekki má brjóta... nema auðvitað "Dragdrottingarfyrirbærið."
Anna Einarsdóttir, 31.8.2007 kl. 15:46
Ægir nú þykir mér eitthvað vera farið að draga úr sjálfstrausti þín... fram til þessa hefurðu þú ávallt stefnt á sigur en ekki skussa verðlaunin .....en svo held ég að svona flott mynd verði aldrei í skussaverðlaun.
Arnfinnur Bragason, 31.8.2007 kl. 17:05
Annars er ég enn að reyna að klambra saman mínum verðlaunum Veit ekki hvort það verður "Drottningarbragð" veit ekki hvernig ég á að skapa þau verðlaun... Get alveg búið til bragðið en þar sem ég er ekki drottning, ja þá.??? En svo er ég með aðra hugmynd sem er með vinnuheitið "Riddari á leið inn í sólarlagið"
.....Þarf smá tíma til að klára þetta og gera upp við mig hverslags verðlaunin eiga að vera
Arnfinnur Bragason, 31.8.2007 kl. 17:10
Hryllilegar myndir.
Þröstur Unnar, 31.8.2007 kl. 17:10
Þröstur !! Þú ert smekklaus með öllu......
Anna Einarsdóttir, 31.8.2007 kl. 20:06
Dúa þú talar bara við æðstráðandann (þú veist hver það er) en þú verður að sýna prófskírteini frá viðurkenndum Amerískum klappstýruskóla
Arnfinnur Bragason, 31.8.2007 kl. 21:15
þú hefðir nú getað sloppið létt út úr þessu og komið með eitthvað sem væntanlegur eiginmaður eða kannski eiginlega fyrrverandi væntanlegur eiginmaður hefði þurft að taka með sér.
annars er þessi mynd frumleg og fal.... eða allavega frumleg. og hæfir verkefninu.
svo veit ég að ægir leynir á sér. hann æfði í mörg ár. tók nokkrar skákir í viku í mörg mörg ár. lætur ekki taka sig í heimaskít.
arnar valgeirsson, 31.8.2007 kl. 22:14
Halló er Ægir einhver pró??? Hann verður þá að tefla með annað augað lokað eða aðra höndin aftan við bak til að jafna leikinn......Sammála???
Arnfinnur Bragason, 31.8.2007 kl. 22:23
Ekki láta Arnar plata ykkur....skamm, skamm Arnar. Jú tefldi smá í denn, en hef ekki hreyft peð í mörg mörg ár. Það er Arnar sem er pró
kloi, 31.8.2007 kl. 22:28
Hæ,
Er stödd á Selfossi hjá unglingnum og stalst í tölvuna bara til að segja hæ po dæ
Fer svo austur á Flúði með riffilinn og skýt Steingrím eða Ögga beib, nei annars, tek rjúpuna í hlaðvarpanum. djók
Nú er kallað og ég þarf að hlaupa.
Hlakka til að hitta ykkur á sunnudaginn on the blogg.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 31.8.2007 kl. 23:08
Þú ætlar að vinna mótið sé ég.
Marta B Helgadóttir, 1.9.2007 kl. 01:27
Þetta er merkilegt. Það hefur enginn falast eftir myndinni ennþá.
Anna Einarsdóttir, 1.9.2007 kl. 13:22
Annnna... Im back!.. jæja góða.. Strákar: Er einhver til í að bjóða Önnu í bíó fyrir mig um helgina.. henni bráðlangar að komast í bíó með popp og kók og karlmann sér við hlið hið bráðasta.. Svo eru einhverjir hugaðir riddarar þarna úti .. .lofa að þeir verða ekki "slegnir" til riddara..
Björg F (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 14:46
Björg stríðnispúki ! Ég átti von á slagsmálum og verulegri aðsókn þegar ég sá að þú hafðir sett mig á uppboð.....
Jæja... ég tek þá bara hundinn með mér.
Anna Einarsdóttir, 1.9.2007 kl. 16:18
Skammast´ín Ægir !
Anna Einarsdóttir, 1.9.2007 kl. 16:47
Á maður að senda inn mynd af verðlaunagripnum? Ég kem með málverk, en á ekki mynd af því. Vinn á því bráðan bug á morgun.....vonandi. Ansi er þetta annars skemmtileg mynd hjá þér Anna. "The flying knight and the ambrella"?Er kannski bannað að hafa tvö málverk í verðlaun?
Halldór Egill Guðnason, 1.9.2007 kl. 20:14
... regnhlífamyndina VERÐ ég að eignast... hvað þarf ég að gera til þess, kæra Anna...
Brattur, 2.9.2007 kl. 00:31
Ó Halldór, takk ! Það væri gott ef þú tekur mynd af myndinni, en ekki skylda. Nei, það er ekki bannað að hafa tvö málverk........ bara ekki tvö eins. Ég vona að þú hafir ekki málað "eftir minni mynd"
Svo sæt setning Brattur ...... ég ræð því ekki hver fær hvað..... en ef svo fer að þú færð hana ekki..... þá má fara í verðlaunakaup (sbr. hestakaup).
Anna Einarsdóttir, 2.9.2007 kl. 11:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.