Ég kann svo marga málshætti.

.

Hver er sinnar gæfu smiður.

Hver er sinnar heppni arkitekt.

Hver er sinnar lukku pípulagningamaður.

Hver er sinnar hamingju skrifstofustjóri.

........................

Enginn er verri þótt hann vökni.

Enginn er verri þótt hann þorni aftur.

........................

Þar skall hurð nærri hælum.

Þar skall hurð á tána.  Pinch

.........................

Að vera með grátstafinn í kverkunum.

Að vera með stafinn A í kverkunum.

Að vera með stafinn B í kverkunum.

.........................

Nú er fokið í flest skjól.

Nú er logn í flestum skjólum.

.......................

Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.

Oft bullar lítil Anna tóma steypu.  Blush

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Enginn veit fyrr en allt í einu.

Það sem hefur aldrei gerst áður, getur alltaf gerst aftur.

Allar síður eru síður A og síður B, nema síður C.(Píþagoras)

Fátt er verra en að "ganga í hægðum sínum".

Er ekki annars allt gott að frétta úr Borgarfirðinum, Anna mín?

Halldór Egill Guðnason, 10.10.2007 kl. 11:19

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 Þú ert óborganlega Anna

Ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið.

Ekki er sopið kálið ef úr ausunni er farið.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 11:21

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Jú Halldór minn.  Hér gengur á með sunnangolu.  Hundurinn er vær.  Ég er lasin en fer til læknis á eftir.  Ég myndi segja að ég væri með helvítis hósta ef ég blótaði.... en það geri ég ekki.  Dóttir mín náði bílprófinu í gær.  Og já, ég seldi gamla bílinn minn líka í gær.... fyrir smá aur og kanel.

Er eitthvað að frétta af þér Halldór minn ?

Anna Einarsdóttir, 10.10.2007 kl. 11:25

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ekkert að frétta héðan, nema bærilegt, þakka þér fyrir. Leggst í viking í næstu viku og verð á ferð og flugi fram að jólum um allar trissur, holt og bolt og út um allan heim.

Halldór Egill Guðnason, 10.10.2007 kl. 11:39

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Halldór heimsborgari.  Þú ert nú bærilega góð landkynning.... þ.e. ef þessir útlendingar skilja brandarana sem vella út úr þér eins og hafragrautur úr potti.

Ég ætla rétt að vona að þú verðir í tölvusambandi strákur ! 

Anna Einarsdóttir, 10.10.2007 kl. 11:46

6 Smámynd: Ragnheiður

Anna er eins og hún á að vera.

Full af bulli og steypu

Ragnheiður , 10.10.2007 kl. 11:50

7 Smámynd: Ragnheiður

nú vantaði bæði botninn í innleggið mitt og þá botn í þessa vísu  Ragga klúðrari

Ragnheiður , 10.10.2007 kl. 11:53

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Anna er eins og hún á að vera
full af bulli og malbiki.           (auðveldara fyrir rím)
Nú er bara um að gera
að halda sínu striki...
Ég mætti áðan litlum héra
hann var að safna spiki.
Get ekki hætt að opinbera
hvernig ég er... þó ég hiki. 

Anna Einarsdóttir, 10.10.2007 kl. 12:28

9 Smámynd: Ragnheiður

Ragnheiður , 10.10.2007 kl. 12:42

10 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þú bullar skemmtilega

Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.10.2007 kl. 15:27

11 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

eftir einn ei aki neinn

drekktu tvo og akktu svo

jafnvel þrjá og aktu á

fimm til  átta og farðu að þrátta

Skál.. 

Brynjar Jóhannsson, 10.10.2007 kl. 17:07

12 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Sjaldan er góð ýsa of oft freðin... ( mótvægisaðgerðamálsháttur ).

Ásgeir Kristinn Lárusson, 10.10.2007 kl. 17:13

13 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú ert frábær

Heiða Þórðar, 10.10.2007 kl. 17:26

14 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Anna mín komdu í leik á blogginu mínu kl. 10

Edda Agnarsdóttir, 10.10.2007 kl. 21:03

15 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Oft kemur góður þá getið er

Oft reynist sanleikurinn helber lygi.

Best finnst mér rúgbrauðið sem ég aldrei smakkaði

Oft stoppar strætó á Hlemmi

Oft bylur í tómri tunnu,

Oft veð ég í villu og svima.

 Anna mín, eigum við ekki að fara gef´tta út.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 10.10.2007 kl. 23:26

16 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Myndin af þér Kristjana er eins og gamla mín.... fyrrverandi.... áður en ég gifti mig sko.... eða þannig.. eigum við það ræða það eitthvað, eða?

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.10.2007 kl. 03:40

17 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Við eigum nýjan borgarstjóra, eigum við að ræææða það eitthvað?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.10.2007 kl. 19:43

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Enginn er verri þótt hann vökni nema hann drukkni ruglaða tjéddlingin þín  addna

Jóna Á. Gísladóttir, 13.10.2007 kl. 00:22

19 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Maður er manns gaman

konur eru konum verstar

... helduru að það séu nú aldeilis  fordómar í þessum gömlu málsháttum 

Marta B Helgadóttir, 13.10.2007 kl. 13:30

20 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Lengi hafa menn skemmt sér við að snúa út úr málsháttum.  Ég man eftir að hafa heyrt:
Oft byrjar málsháttur á "oft"
Enginn er verri þó hann vakni
Sjaldan launar kálfur ofbeldið
Oft fylgir öxull framdrifi

Þorsteinn Sverrisson, 14.10.2007 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 342860

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband