Fallegasti staður á jarðríki erlendis ?

 

Hver er fallegasti / athyglisverðasti / skemmtilegasti staður, sem þú hefur komið á erlendis ?

.

Mig langar að finna út hvert ég þarf að fara.  Wink

.

Minn er Chamonix í Suður Frakklandi.... lítill ferðamannabær með stórkostlegu útsýni við rætur Mont Blanc...... hann er sko fallegur og ekkert SMÁ.

.

3%20Jorge%20G%F3mez%20Sirvent%20-Mont%20Blanc%20desde%20Chamonix-%20%202%20PREMIO


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ótrúlega falleg mynd, get ekki ráðlagt þér með útlönd...aldrei farið til útlanda..

Ragnheiður , 17.10.2007 kl. 16:56

2 Smámynd: Kári Harðarson

Fallegir staðir sem ég hef komið á:

Bærinn Positano á Amalfi ströndinni.  Myndin "Enchanted April" var tekin þar í grennd.

        http://www.igs2005.unicas.it/images/positano.jpg 

Mont Saint-Michel kirkjan í Bretagne er byggð á háum hólma úti á eyðiströnd, efst í henni er garður. Ótrúlegur staður...

        http://static.flickr.com/9/13504831_c8a275fcff.jpg 

Borgin Dubrovnik í Króatíu

        http://www.gdargaud.net/Photo/Dubrovnik.html

Kári Harðarson, 17.10.2007 kl. 17:14

3 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Tek undir hjá Kára Mont Saint-Michel er geggjaður staður en mér finnst nú Djúpalónssandur alltaf flottastur.

Gíslína Erlendsdóttir, 17.10.2007 kl. 17:46

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Vá.... Takk Kári.  Ég ætla allavega til Positano á Ítalíu við næsta tækifæri.... og tækifærin koma oft hjá mér.    Kannski ég komi við á Djúpalónssandi í leiðinni.

Ragnheiður.... nú ferð þú til útlanda innan árs.... skipun frá Önnu yfirkoppi.

Anna Einarsdóttir, 17.10.2007 kl. 18:01

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Skemmtileg pæling hjá þér Anna.

Cornwall héraðið í Suður Englandi er það fallegasta umhverfi sem ég hef verið í. Við Genfarvatn, ekki síst í miklu frosti en ógleymanleg sjón. Í Austurríki er víða óskaplega fallegt bæði að sumri og vetri. Heidelberg finnst mér yndisleg.  ... svona mætti lengi telja, erfitt að gera upp á milli, fegurð er svo huglæg manni á þeirri stundu sem maður er staddur þar.  

Marta B Helgadóttir, 17.10.2007 kl. 18:03

6 Smámynd: Fríða Eyland

Algjörlega tilvalinn staðu til að setjast niður með vín og osta ef hitastigið er 23° - mildur andvari, horfa á náttúruna og hlusta á fuglana

Anna, hvar skrái ég mig i flokkinn sem þú stofnaðir ? Þarf að stjórna en vantar embætti, ef eitthvað er enn laust getur  þú eða fríðust  látið mig  vita...

Fríða Eyland, 17.10.2007 kl. 18:10

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Fríða.... þú ert umsvifalaust kjörinn Forseti þingsins.      Ertu ekki annars vön að smíða ?  Maður þarf að vera dálítið flinkur með hamarinn.

Anna Einarsdóttir, 17.10.2007 kl. 18:51

8 Smámynd: Ragnheiður

öhhh..fór í fyrsta sinn í leikhús um sl helgi..með stóru systur, heimta bara að hún dragi mig til útlanda næst...hehe

Ragnheiður , 17.10.2007 kl. 19:23

9 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Alltaf gaman að koma til útlanda, ég verð samt aldrei fyrir sömu áhrifum og ég verð fyrir hér heima þegar ég horfi á landið okkar. Hattver og nágrenni stendur upp úr. Þar fær maður allt litrófið.

Kristjana Bjarnadóttir, 17.10.2007 kl. 19:57

10 Smámynd: arnar valgeirsson

ittoqqortoormiit eða scoresbysund á norðaustur grænlandi að vetri til, takk fyrir. allt annað verður bara prump.

arnar valgeirsson, 17.10.2007 kl. 20:01

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ó !  Ég hélt það héti Sporöskjusund en ekki Scoresbysund. 

Ertu búin að ákveða hvert þú ætlar Ragnheiður ??

Anna Einarsdóttir, 17.10.2007 kl. 20:31

12 Smámynd: Ragnheiður

nei ekki alveg svona fljót að hugsa skoh ! á nú eftir að finna mér ferðafélaga og svona..kallinn aldrei farið út heldur og vill ekki

Ragnheiður , 17.10.2007 kl. 20:59

13 Smámynd: Fríða Eyland

Forseti tek því fagnandi, jú það passar, það leikur allt í höndunum á mér

Fríða Eyland, 17.10.2007 kl. 21:35

14 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Herjólfsdalur vestmannaeyjar og klósettið sem ég ældi í á leiðinni til Hollands á sínum tíma.. en þá var ég staddur yfir skotalandi svona sirka... mikilfönglegt útsýn og HROTTAALEG FEGURÐ.. mikil upplifun

Brynjar Jóhannsson, 17.10.2007 kl. 21:52

15 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvað með Kína?

Edda Agnarsdóttir, 17.10.2007 kl. 22:25

16 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Mmmm geðveik mynd - hún var svo lengi að koma upp!

Edda Agnarsdóttir, 17.10.2007 kl. 22:26

17 identicon

Upp í hugann koma tveir staðir:  gríska eyjan Santorini (póstkortamyndirnar ljúga EKKI, aldrei þessu vant) og kastala - miðaldabærinn Les Beaux í Suður-Frakklandi.

Kann ekki að setja inn tengla, áhugasamir verða bara að gúggla :)

Svo er Ísland ótrúlegt, Ásbyrgi, Skaftafell, Fljótsdalshérað.  Svona til að nefna staði sem týpískur Snæfellingur kemur ekki oft á! 

Þorbjörg (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 22:48

18 Smámynd: Þröstur Unnar

Akranes.

Þröstur Unnar, 17.10.2007 kl. 23:10

19 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

I cane explain everything! Just googl

!Ihave seenthis lake!

Halldór Egill Guðnason, 18.10.2007 kl. 00:13

20 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Er Akranes erlendis?  Ég fór með lest frá Salsburg til Trieste í gegnum áusturísku/ítölsku Alpana, það var magnað. Og svo norsku firðirinr, ótrúlegir.

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.10.2007 kl. 01:15

21 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Grand Canyon=Miklagljúfur í Arizona í bandaríkjunumer eitthvað það rosalegasta sem ég hef séð,allt byggt af náttúrunnar hendi og mæli því að þú farir þangað ef átt leið um Bandaríkin.

Magnús Paul Korntop, 18.10.2007 kl. 15:16

22 identicon

Hæ.. bara að láta vita að ég er enn á lífi og hugsa til þín.. kem bráðum aftur og tvíelfd  Fallegasti staðurinn á ég enn eftir að koma á en draumastaðirnir eru Himalayafjöllin, Nepal, Ástralía og Alaska

Love you

Björg F (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 16:16

23 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Háwdý páwdý Björg krúsla.... ég er að bíða eftir þér.... en líst kannski ekki nógu vel á að þú komir tvíefld.  Er það ekki aðeins of mikið af því góða ? 

Anna Einarsdóttir, 18.10.2007 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 342860

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband