30.3.2008 | 21:08
Hrafnkatla Himinbjörg Skítalabbi Gustavsberg.
Mikið hefur verið skrifað um Hrafnkötlu Himinbjörgu, margar myndir birtar og má ætla að hún sé hvers manns hugljúfi og ljómi allra kettlinga. Í það minnsta fékk ég beiðni um eigendaskipti á henni í dag. Frænkur mínar tvær vildu gjarnan eignast þetta krúttilega kvikindi. Ég sagði bara; "Já, fínt, þið megið bara eiga dýrið"
.
.
Það kom á þær yfir svari mínu... þeim fannst ég full fljót að afhenda kisu, svo þær spurðu nánar út í dýrið. Já, sagði ég, hún er óskaplega þrifin greyið. Fer alltaf í kassann sinn og gerir þar stykkin sín. Mér fannst hún óttalegt krútt meðan hún var með harðlífi. Eitthvað fór móðurmjólkurleysið í magann á henni svo nú er hún með skitu. Það væri bara fínt - hún fer í kassann sinn og svoleiðis - eeeeeeen einhvern veginn tekst Hrafnkötlu alltaf að stíga ofan í niðurganginn og svo arkar hún niður ganginn, létt á fæti, eins og gengur, eins og gengur. *DÆS*
Skítalabbi semsagt.
Þegar illa tekst til, kemur hún með saurugan fót upp í rúm til mín og þegar enn verr árar, stígur hún á hárið á mér, meðan ég sef. Hvað getur maður sagt ? SHIT !
Við fjölskyldan erum nú búin að vera í skítverkum alla helgina og Hrafnkatla fer í bað þrisvar á dag.
Langar einhvern í hana ?
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
...... hahahahahaha....... hahahahaha hahahahahahaha
Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.3.2008 kl. 21:17
þessar kisur, gera mann hreinlega vitlausan
en að öðru.... ROSALEGA ER HÚN SÆT
Karítas Hrafnhetta skuggabaldur með meiru biður kærlega að heilsa :)
halkatla, 30.3.2008 kl. 21:20
nei úps ekki hreinlega vitlausan, gleymdi ó-inu fyrir þínar kringumstæður
halkatla, 30.3.2008 kl. 21:21
HA HA HA HA það mætti eiginlega segja að þú sért í djúpum skít hehehe
En þvílíka krúttið sem hún er, ég bara trúi því ekki að svona krútt skuli gera þetta.
Linda litla, 30.3.2008 kl. 21:48
Ég gleymdi að bjóðast til að lána þér eina bleiu eða svo. Fínt að skella á kisu. Annars tekst litlu minni alltaf að kúka niður á tær og upp fyrir haus. Sem betur fer kann hún ekki að labba... En hún ælir reglulega á mig og sérstaklega í hárið á mér, helst þegar að ég er nýkomin úr sturtu.
Þórunn Ella Hauksdóttir, 30.3.2008 kl. 21:50
vá hún er algert krútt! =)
Katan , 30.3.2008 kl. 21:52
Hahahaha það er best að sjá hana bara á mynd, lyktarlaus svoleiðis hehehe
Ragnheiður , 30.3.2008 kl. 22:11
Hahaha, æ hvernig getur maður orðið reiður við svona lítið skinn sem mænir á mann? En vá hvað ég myndi ekki nenn'essu!!!
Hugarfluga, 30.3.2008 kl. 23:00
omg..... það er semsagt neyðarástand á heimilinu....... en segðu mér á hvernig fæði er litli kúkalabbinn....??
Fanney Björg Karlsdóttir, 30.3.2008 kl. 23:08
Sko. Fyrst fékk hún bara Humarsúpu og súpan fór vel í maga. Svo fékk hún kattamat og það þoldi hún alls ekki. Við erum að tala um Whiskas í allskonar formi... og hún fékk líka harðfisk. Ætli ég verði ekki að gera Humarsúpu fyrir hana í öll mál ? Og bjóða kannski Lýð Oddssyni í mat í leiðinni ?
Anna Einarsdóttir, 30.3.2008 kl. 23:12
Nei kaupa kattamat úr gæludýrabúðum - alvöru mat þá fær hún eðlilegar hægðir Anna mín. Þegar ég fékk hann Mola minn hjá frú Sigríði í Kattholti og nefdi að ég ætti Wiskas kattamat heima í búri kvað við í henni. "Hann fær nú strax drullu af því." Svo við sömdum um að Moli fengi aðeins hágæðafóður og allt hefur gengið vel.
Erna Bjarnadóttir, 31.3.2008 kl. 08:31
henda Whiskas kattamatnum út.....langt út á rúmsjó........ kaupa þurrfóður í gæludýrabúð sem er sérstaklega ætlað kettlingum..........gangi þér vel.........
Fanney Björg Karlsdóttir, 31.3.2008 kl. 13:14
.... alltso fóðrið á að vera sérstaklega ætlað kettlingum..... gæludýrabúðin má vera fyrir alla....
Fanney Björg Karlsdóttir, 31.3.2008 kl. 13:14
Já þær gera nú ýmislegt þessar elskur. Kötturinn minn á það til að stíga ofan í pissupollinn sinn í sakleysi sínu þegar hann er að sparka sandinum yfir, svo þegar sandurinn er búinn að vera blautur milli táslanna í nokkurn tíma er hann orðin mjúkur af hlandi.. ekki gaman að fá svoleiðis á fötin sín hvað þá rúmið sitt! :P
Svo þú átt alla mína samúð, en ég myndi reyna annað fóður áður en ég gæfist endanlega upp :)
Ása ókunnuga (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 15:48
Læðan mín hefur borðað Wiskas þurrfóður með öðrum mat í bráðum átta ár og hefur aldrei fengið niðurgang. Kettlingar frá henni hafa ætíð líka borðað wiskas bæði þurrfóður og dósamat og aldrei hef ég lent í vandamálum með þá heldur - svo það er bara hreinasta bull að wiskas sé eitthvað niðurgangsorsakandi. Það er líka bull að maður eigi að gefa kettlingum sérstakt "kettlingafóður".. slíkt er bara sölumennska. Allir kettlingar hjá mér hafa fengið mat hjá mömmu sinni, dósamat fyrst og svo þurrfóður með þegar þeir stækka - og aldrei lent í vandræðum með þá. Wiskas er mjög gott fóður fyrir ketti, unga sem aldna. By the way - gullfallegur kettlingur hjá þér..
Tiger, 31.3.2008 kl. 16:22
Hún Hrafnkatla Himinbjörg Skítalabbi Gustavsberg er ekkert að fara neitt.
Í gærkvöldi átti ég þess kost að láta hana en þá gat ég það ekki. Ég finn leið til að dempa í henni *þið vitið hvað*.
Anna Einarsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:36
Anna prófaðu bara að hræra smá sement saman við fæðið hennar,,,,það virkar fínt
Runólfur Jónatan Hauksson, 31.3.2008 kl. 22:27
Ertu ekki búin að upplifa það að litla sæta kisan þín kemur beint úr kassanum og skríður á rassinum eftir gólfinu já og að ég tali nú ekki um eftir teppinu sé það til staðar og það finnst kisu best af öllu. Teppi það er málið.:-o)
ej
edda (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 00:53
Held mig áfram við að eiga hund.
Halldór Egill Guðnason, 1.4.2008 kl. 09:37
Orðið skítalabbi hreyfði við mér.
Einu sinni var skítalabbi ljótasta orðið sem ég kunni, allavega notaði ég það óspart, þegar ég reiddist. Pétur bróðir minn varð oftast fyrir því, en hann er tveimur árum eldri en ég og stríddi mér og var oft ekki góður við litlu systur sína,
Eftir því sem málþroski minn óx og dafnaði, var farið að bæta við þetta skemmtilega orð, en voru það á ýmis forskeyti, bölv og ragn. En eftirnafn fékk Skítalabbinn aldrei, en ég mun hringja í Pésa bró á eftir og spyrja eftir Herra Gustavsberg, hahahahahah
Skilaðu kveðju til Labba litla, hann er krútt.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 1.4.2008 kl. 09:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.