Sannleikurinn er sagna bestur.

 

Ég skil ekki fólk sem getur logið.  

Undanfarið hef ég þurft að umgangast nánast ókunnugt fólk sem segir tæplega eitt satt orð á dag. 

Það hlýtur að vera fjandanum erfiðara að muna hverju maður laug síðast og að hverjum, ef maður ástundar þessa iðju.  Shocking

Einhvern tíma í lífinu reyndi ég að segja smávegis ósatt en þá komu augun upp um mig.

Samviskan braut sér leið,  út um spegil sálarinnar og ég stóð fyrir framan þann sem ég plataði og vissi, að það sást úr kílómeters fjarlægð að ég var að ljúga.  Blush

Með þessum vísdómsorðum hér að ofan (að eigin mati) fylgir auðvitað viðeigandi mynd.........

............ lygi er  Bullshit.

.

BullShit 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hef heyrt að þeir að norðan megin á Snæfellsnesi séu lygnari en þeir að sunnan megin.Er eitthvað satt í þessu?

Númi (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 23:01

2 Smámynd: Ragnheiður

Þú ert ljós Anna mín og það er satt, það á enginn að ljúga.

Ragnheiður , 5.6.2008 kl. 23:07

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hvaða félagsskap ertu eiginlega komin í? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 5.6.2008 kl. 23:29

4 Smámynd: Einar Indriðason

Lygnari?  Það er tengd veðrinu, er það ekki?  Ef það er logn, þá er lygnt?  Ef það er vindur, þá er ekki eins lyngt?

Einar Indriðason, 5.6.2008 kl. 23:57

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Lára Hanna.  Félagsskapnum sem ég VAR í, er ég búin að gleyma núna. 

Einar.  Spekin þín nýtur vinsælda hérna.  "Sjaldan er logn í hávaðaroki".

Ragnheiður.  Ef ég er ljós, ætla ég að slökkva á mér núna og fara að sofa.

Anna Einarsdóttir, 6.6.2008 kl. 00:05

6 Smámynd: Einar Indriðason

Góða nóttina þá, og vonandi verður veðrið lygnara fljótlega :-)

Einar Indriðason, 6.6.2008 kl. 00:34

7 identicon

já, satt hjá þér, þetta er leiðindaiðja sem sumir stunda..en ég er smá sek, ég nota stundum hvítu lygina á krakkana mína...eða á einhvern sem ég nenni ekki að fá í heimsókn og svona... en hin lygin er svo sannarlega leiðindaiðja!!

alva (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 01:39

8 identicon

Mér leiðast lygarar.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 14:39

9 identicon

Lygi er óþolandi og ég þoli ekki fólk sem lýgur  Það sést á fólki eða þá að það kemur upp um sig. Heppin ertu að vera laus við þetta lið!

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 17:09

10 identicon

Ég: ég heiti Guðbjörg og ég er lygari ! ! !

ALLIR: Velkomin Guðbjörg 

Guðbjörg :þ (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 19:29

11 identicon

Jáhá.... sumar lygar koma meira segja í fréttunum!!!     Sannleikurinn er sagna bestur.... sumir ruglast bara kannski útaf því að vaffið á lyklaborðinu er við hliðina á béinu... bestur > vestur... eða hvað??? Ég skil ekki svona...

Sakna ykkar... knús... 

Stina (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 19:32

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég heiti Björg sem kennd er við Inga og er lygari

Ingibjörg Friðriksdóttir, 6.6.2008 kl. 19:48

13 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

"Ef það er logn, þá er lygnt" Þetta er guðdómleg speki Hefur annars einhver spáð í hvað lognið þarf að fara hægt til að það geti talist lygnt?

Þetta með að ljúga er hins vegar ákaflega vel ígrundað hjá þér Anna mín. Lygi er náttúrulega bara "nautaskítur" og hana nú...já eða naut. Þetta er reyndar að verða svo "djúpt" að ég held ég segi bara pass inn í sumarið Búið að "ísa" mig fram í ágúst, altso mánuðinn og síðan er ég farinn til Argentínu!

Halldór Egill Guðnason, 7.6.2008 kl. 02:35

14 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

"Flush ´em down, ´em white lies" ( Carl Gustavsberg 1893-1976 )

Ásgeir Kristinn Lárusson, 7.6.2008 kl. 08:51

15 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hér eru pælingar á fullu - eru þetta spilagaldrar? Ég sit hér við tölvuna með tárin í augunum yfir óréttlæti heimsins sem er eins og lýginni líkast.

Knús á þig og þína.

Edda Agnarsdóttir, 7.6.2008 kl. 10:57

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ásgeir !!!    Carl Gustavsberg ?  Hann hlýtur að vera forfaðir Kötlu Gústavsberg, kisunnar minnar.    Ég vissi að hún væri vel ættuð.

Anna Einarsdóttir, 7.6.2008 kl. 13:24

17 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

ÉG t.d. er bara með ifö heima hjá mér.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 7.6.2008 kl. 13:46

18 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

 Helgarknús frá Helgunni.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.6.2008 kl. 16:29

19 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Kæra Anna, við ljúgum öll.

Spurningin er bara hvað telst vera lygi, er það lygi að leyna vitneskju sem við höfum fyrir einhverjum, er það lygi að orða hlutina óljóst eða tala undir rós, til að draga úr hugsanlegum óþægindum okkar eða þess sem við tölum við.

Þetta er spurning um skilning á því hvað er lygi og hvað er ekki flokkað sem lygi.

Dáist af góðum lygara, minni lygarans þarf að vera skýrt alla ævina og minnstu smáatriði að standast endurtekningu og áratuga skoðun.

Held samt að við séum öll lygarar í raun, vitandi eða óafvitandi, erum uppfull af heimildum sem aðrir hafa fært okkur með munnlegum hætti eða vitneskju sem við höfum lesið, og getum jafnvel ekki fengið staðfesta sem sanna.

Hún er víst endalaus þessi leit að sannleikanum.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.6.2008 kl. 13:25

20 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þorsteinn Valur.....

Það sem ég meina er þegar einhver segir að bíllinn sé rauður þótt hann sé brúnn.

Meðvitaðar lygar, til þess fallnar að reyna að blekkja fjölda fólks. 
Mér finnst það ljótt.

Anna Einarsdóttir, 9.6.2008 kl. 16:52

21 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Það er rétt Anna, slíkt er bæði ljótt og ómerkilegt.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.6.2008 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband