20.10.2008 | 21:31
Það er dýrt að vera vitlaus.
Við landsbyggðarfólkið erum heppin.
Góðærið náði ekki til okkar sem þýddi þá að við höfðum enga peninga til að kaupa hlutabréf fyrir sem aftur leiddi svo til þess að við töpuðum litlu. Maður stórgræðir á að græða ekki. Hverjum hefði dottið það í hug ?
Og það var fleira sem mér datt ekki í hug. Til dæmis að ég væri ábyrgðarmaður fyrir einhverja Lukkuláka sem ég þekki ekki græna baun.
Vúúúú, ef ég hefði bara vitað. Þá hefði ég sent bréf til þeirra og sagt;
"Kæru félagar.
Nú vil ég ekki skrifa upp á fleiri íslenska banka í útlöndum nema ég fái eins og eina góða veislu í staðinn. Einn Elton John eða Mike Oldfield upp á svið". Jamm, eða eina skútusiglingu.
.
.
En nei. Þar sem ég var vitlaus og vissi ekki neitt í minn haus, fékk ég nákvæmlega ekkert fyrir minn snúð. Ekki einu sinni svið. Því verð ég sjálf að baka mína snúða í framtíðinni og lofa sjálfri mér því að hætta að skrifa upp á víxla fyrir bláókunnuga menn.
.
Skammast´ín Anna að gera svona.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:33 | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Ji minn eini og þú sem ert sparisjóðsstjóri og allt..
Ragnheiður , 20.10.2008 kl. 21:53
Segðu !
Kannski ég axli ábyrgð. Ég er með svo breitt bak.
Á ég að segja af mér eða á ég að segja....... brandara ?
Anna Einarsdóttir, 20.10.2008 kl. 23:11
Allt í réttu hjá þér samsinnir norðanvargurinn.
Mmmmm, zvið ....
Steingrímur Helgason, 20.10.2008 kl. 23:13
Tí, hí, góð............!
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 21.10.2008 kl. 00:34
Halldór Egill Guðnason, 21.10.2008 kl. 01:37
;)
Aprílrós, 21.10.2008 kl. 07:31
alva (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 08:26
Segðu frekar brandara! Enginn hinnar hefur sagt af sér og þau segja ekki einu sinni brandara
Hrönn Sigurðardóttir, 21.10.2008 kl. 08:35
Ég held að meirihluti Borgarbúa hafi ekki grætt neitt heldur, þó lengi hafi verið haldið í vonina um gróða eða allavega að góðærið skilaði sér í betri afkomu, en því miður gerðist það ekki .... eða kannski sem betur fer því nú sýtir maður ekki gróðatap. - heldur hrósar happi. -
Ég var ein af þessum kverúlöntum sem brást illa við, þegar ég frétti af ríkisábyrgð hér og ríkisabyrgð þar, á þessum og hinum fyrirtækjunum, í þessu vinasamfélagi.
Afþví að ég er alin upp við að fylgjast með fréttum og vera meðvituð um þjóðfélag mitt, var ég ósátt þó ég æpti ekki á torgum. -
Og ég grét, þegar Davíð og Halldór gáfu vinum sínum kvótann "okkar" . - Grét enn meir, þegar þeir leyfðu "vinum sínum" að veðsetja óveiddan fiskinn í sjónum, og þegar þeir breyttu svo lögum til að geta leyft þeim að "veðsetja veðsetningarnar af óveiddum fiskinum í "og "selja" veðsettu veðsetningarnar af óveidda fiskinum erlendis. -
Ég felldi líka tár þegar þeir einkavinavæddu bankanna, en það voru reiðitár.
Ég fylltist sorg þegar ég sá hvernig þeir Bakkabræður Davíð og Halldór bruðluðu og breiddu úr sér, ásamt sínum áhangendum.
Ég huggaði börnin mín og sagði að þeir mundu lagfæra og leiðrétta ólögin sem þeir settu á öryrkja, lífeyrisþeganna og öreiganna, áður en þeir færu frá. -
Því bráðum færu þeir á eftirlaun, og af venjulegum eftirlaunum gætu þeir ekki lifað.
Það hvarflaði ekki að mér að þeir væru orðnir það siðblindir að þeir settu ný lög sem tryggðu þeim og þeirra áhangendum margfaldan lífeyri á við alla aðra þrátt fyrir að þeir væru með full laun annarsstaðar hvað þá hjá ríkinu að auki. - Og m.a.s. var tekið fram að ef þeir hefðu það að hobbýi að skrifa leikrit eða ljóð, smásögur eða ævisögur þá væri það líka skattfrjáls vinna.
Nú græt ég framtíð barna minna og barnabarna. -
Og framtíð Lands míns.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 21.10.2008 kl. 14:29
Lilja Guðrún. Ég sá þig í sjónvarpinu og mér líkar vel við þig.
Guðjón Viðar. Það að ég hafi tapað líka, er eitthvað sem ég sætti mig vel við. Margur verður af aurum api en ekki ég. Ég fæddist api.
Hrönn. Brandarinn kemur bráðlega.
Anna Einarsdóttir, 21.10.2008 kl. 16:25
Hvar sástu Lilju Guðrúnu í sjónvarpinu??? Ég vil líka sjá...
Lára Hanna Einarsdóttir, 21.10.2008 kl. 18:57
Má ég vera vitlaus med þér?
Gulli litli, 21.10.2008 kl. 19:02
Ég bara skil þetta ekki, samkvæmt þessu hér og hér þá ætti þetta ekki að geta átt sér stað.
kop, 21.10.2008 kl. 20:32
Lára Hanna. Ég sá Lilju Guðrúnu í fréttunum. Leiklist á Akureyri. Fyrir örfáum dögum. Man ekki alveg hvaða dag.
Gulli litli. Já, verum vitlaus.
Anna Einarsdóttir, 21.10.2008 kl. 20:45
Ég líka,ég líka, ég sá hana sko líka.
(Dómur, afplána í 190 daga. Byrjar 21 desember. Á Skólavörðustíg)
Sett upp svona hans vegna og til að ættingjarnir sjái, ef þeir fatta þetta þá
Ragnheiður , 21.10.2008 kl. 20:59
Ég er hryðjuverkamaður og les símaskrána - á hvolfi...
Ásgeir Kristinn Lárusson, 21.10.2008 kl. 22:23
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 11:49
Úff..guðanna bænum komdu með brandara...og gátur...það er svo gaman að hlæja með þér....
Ég bý nú á stórKópavogssvæðinu og græddi ekki krónu...bankinn minn græddi hins vegar á mér.....
Ég skrifaði víst líka uppá eitthvað fyrir einhvern...án minnar vitundar...var aldrei spurð....enda líklega í "vitlausra"hópnum...og hélt að bankarnir bæru ábyrgð á sér eins og ég á mér....ekki er ég með neina ríkisábyrgð sko....
En þegar þú verður ALVÖRU sparisjóðsstjóri...kannski í SAMVINNUSPARISJÓÐNUM...þá kem ég sko til þín og ávaxta gullið...
Bergljót Hreinsdóttir, 22.10.2008 kl. 12:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.