Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
29.6.2007 | 09:50
Hei !
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
28.6.2007 | 20:27
Auðveldasta gáta í heimi.........
Nú er ég að fara svolítið. Hvert er ég að fara ?
Vísbending: Nafnið á staðnum sem ég fer á, rímar við mann sem rekur við í þolfalli.
Hversu auðvelt er það nú ekki.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
28.6.2007 | 08:47
Tregur læknir maður.
Þegar ég fór til læknisins á föstudagskvöldið, átti eftirfarandi samtal sér stað:
Læknirinn Jæja góða mín, hvað get ég gert fyrir þig ?
Ég Gat nú skeð.
Læknirinn Ha, hvað ?
Ég Gat nú skeð.
Læknirinn horfði á mig opinmynntur og skildi greinilega ekki neitt.
Ég GAAAAAT nú skeð.
Furðulegt að læknar skuli ekki leggja sig fram við að skilja venjulegt fólk !
27.6.2007 | 23:28
Rétt taktík.
Það voru tveir vinir að spjalla saman og annar segir við hinn... Ég skil þetta ekki.. alltaf þegar ég er að koma heim af barnum læðist ég upp að útihurðinni, opna ofur varlega, fer úr skónum og læðist upp á baðherbergi. Þar passa ég mig á að gera engan hávaða og svo læðist ég eins varlega og ég get upp í rúm og alltaf skal samt konan vakna og skammast í mér.
Þá sagði hinn... ég ríf upp dyrnar með látum, skrölti inn á bað og pissa þannig að bunan fer beint í miðjuna á skálinni svo að það koma hellings læti.. fer svo inn í hjónaherbergi og tæti af mér fötin, rek við og segi svo hátt... "núna væri sko gott að fá að ríða". Það bregst ekki að konan steinsefur.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.6.2007 | 16:42
Djúpar pælingar.
Hafiði pælt í því að þegar maður er farinn að græða á áhugamálinu sínu, þá er það hætt að vera hobbý.
Dæmi:
Þú borgar fullt fyrir hest og reiðtygi og hagabeit = áhugamál
Þú temur hross fyrir fólk gegn greiðslu = atvinna
Mér datt bara í hug........... aumingja kvensjúkdómalæknarnir.
Þeir missa af helv.... góðu áhugamáli.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
25.6.2007 | 21:43
Þú hefur verið blekkt/ur.
Maður á að miðla af reynslu sinni.
Nú vill svo til að ég er kona með reynslu af höfuðhöggi.
Þar með vil ég koma því á framfæri að það er bara plat að fólk sjái stjörnur við þessar aðstæður.
Ekki ein einasta stjarna.
24.6.2007 | 22:31
Sex spor.
Ég vann ferðina til Vestmannaeyja og hún varð vendipunktur í mínu lífi. Í sakleysi mínu var ég að dansa þegar kona dettur beint fyrir aftan mig og kippti undan mér fótunum þannig að ég flaug á hnakkann og úps !!! GAT á hausinn minn.
Þá komu þrjár löggur og handtóku mig. Það var frekar gaman. Löggan keyrði mig á spítalann. Síðan var stefnumót við lækninn sem því miður var kvenkyns. Já, maður fær ekki öllu ráðið. Ekki á óskalistanum. Jæja, daman setti sex spor í hausinn á mér og núna er ég sem ný.
Í gær tróð ég svo upp með Árna Johnsen. Hann kom og spilaði fyrir okkur kjellurnar. Ég hafði fjárfest í gítar einum, fyrr um daginn. Svona pínulitlum gítar en samt nógu stórum til að taka lagið með stráknum. Núna erum við búin að stofna dúett - eða hljómsveit. Allir sem eru fúlir út í strák fyrir þjófnað, hætti því strax. Kallinn er húmoristi og þá má hann eiginlega allt. Það er bara þannig. Skemmtilegur kall.
Eigum við að kjósa aftur ?
Spil og leikir | Breytt 27.6.2007 kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
21.6.2007 | 17:29
Glæsileg verðlaun.
Í tilefni af tuttuguþúsundustu flettingunni á bullinu, verða nú veitt vegleg verðlaun.
Hinn heppni hlýtur ferð fyrir einn til Vestmannaeyja í fyrramálið. Innifalin er hótelgisting í tvær nætur, skoðunarferðir, veislumatur, hellaskoðun og eintóm gleði.
Og sá heppni eeeeer..... trommusóló, bomm bomm bomm...... ANNA EINARSDÓTTIR !
Þvílík endemis lukka.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
21.6.2007 | 08:38
Bloggvinabálkur....
Svampur Sveinsson ægilegur
en stundum var hann þægilegur
oft kerlingar frusu
er fengu á sig gusu
mér fannst kauði hlægilegur.
Hugarfluga fallegt fljóð
finnst mér vænt um hana
á hún skilið ástarljóð
er prýði meðal svana
Sæmundur er gamall granni
gat hann alveg teflt
segi því með fullum sanni
sá hafi andann eflt.
Gillí frænka er ferlega klár
og fyndin, ættgengt mun það vera.
Ég vona að hún lifi í 100 ár
því endalaust er hún gott að gera.
Jenný mín hún bloggar margt
mig setur hún á gat
pistlar fjórir fyrripart
og fimm svo eftir mat
Af bloggvinum á Heiða hauga
en hefur engan mann.
Gæskan er með glóðarauga
hver gaf henni á´ann ?
Ef ég Eva hitti þig
er geng ég niður veginn
skaltu kjella knúsa mig
og kyssa báðum megin
Bratti ég lofa litlu kvæði
því ljóðelskur karlinn er
maðurinn er algjört æði
í uppáhaldi hjá mér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
20.6.2007 | 20:17
Fann dóna !
Hér er það netlögreglan sem ritar.
Í dag kom ég upp um dóna.
Ég var að leita að ákveðnum aðila á blogginu í dag og tek það fram, svo ekki komist af stað einhver útbreiddur misskilningur, að maðurinn er líklega á sjötugsaldri, frekar en áttræðis. Áhugi minn á honum var altså bundinn við hans bundna mál.
Jæja, þar sem ég mundi bara fyrra nafnið mannsins sem ég leitaði og hann er ekki einn af mínum bloggvinum, smellti ég mér í bloggleit. Það leiddi til þess að ég datt alveg óvart inn á nýstofnaða klámsíðu. Ojojojoojjjjj. Svona gera menn bara ekki.
Ég auðvitað skoðaði hana vel og vandlega til að vera viss um að þetta væri klám en ekki erótík. Ekki var um að villast. Þá sendi ég póst á mbl-stjórann og var augljóslega fyrst með fréttirnar. Ekki fékk ég nú fundarverðlaun eða neitt svoleiðis. Núna er ég að reyna að láta ekki valdið stíga mér til höfuðs.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði