10.7.2010 | 10:16
Heimspeki leikmannsins.
Hvergi í heiminum hefur verið ritaður pistill um orðið "hvergi" áður, mér vitanlega.
Samkvæmt mínum skilningi er "hvergi" stytting á "ekki á neinum stað"
Ég finn hann hvergi = Ég finn hann ekki á neinum stað.
.
Kristján Jónsson orti:
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima.
Nú er horfið Norðurland,
nú á ég hvergi heima.
.
Ég velti því fyrir mér hvað Kristján var að hugsa. Það er útilokað að Norðurland hafi horfið bara si svona og enginn og ekkert getur verið hvergi. Eða ?
Kristján Jónsson
Hvergi
Íslandi.
(Líklega var hann að flytja í Hveragerði og var að flýta sér að tala)
.
.
Anna, hvergi bangin.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.6.2010 | 21:35
Misskilin dönskukunnátta.
Í kaffitímanum leysti ég af á afgreiðslukassanum.
Fólkið streymdi í gegn og kassinn sagði bíbb,..... bíbb,...... bíbb,........ bíbb, um leið og hann las strikamerkin á vörunum.
Inn í búðina streymir hópur af dönskum eldri borgurum.
Röð myndast fyrir framan kassana.
Allir tala dönsku.
Eldri kona segir eitthvað óskiljanlegt við mig, sem ég skil auðvitað ekki vegna þess að það er óskiljanlegt.
Ég hvái.
Hún endurtekur bullið óskiljanlega og þá giska ég á að sú danska sé að reyna að tala ensku !
Sem tilraun til að leysa úr samskiptaörðugleikum okkar, bið ég hana að endurtaka það sem hún var að segja - og nú á dönsku.
Þarna tók ég stóran séns þar sem ég hef ekki talað stakt orð í dönsku í 25 ár.
Konan bunar út úr sér orðum sem ég umsvifalaust þýði yfir á íslensku: "Er póstkassinn í næsta húsi tæmdur daglega"?
Ja, siger jeg.
Snakker du dansk, siger hun.
Neeeej, næsten ekki noget, siger jeg. Jeg har ikke snakket dansk í fem og tyve år.
Hvað haldiði að sú gamla hafi þá gert ?!!
Hún gólaði yfir röðina: HUN SNAKKER DANSK..... og benti á mig.
Næstum allir farþegar rútunnar þyrptust að kassanum hjá mér - og töluðu og töluðu og töluðu við mig dönsku eins og væri ég innfædd.
.
.
Ég svitnaði.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.6.2010 | 12:10
Steindauðir peningar.
Þúsundkallarnir mínir liggja báðir í buddunni án nokkurs lífsmarks.
Ég hef reyndar aldrei átt lifandi peninga en sumir segja að tiltölulega einfalt sé að lífga við dauða seðla.
Það vefst að minnsta kosti ekki fyrir Hannesi Hólmsteini, syni Gissurar, sem hefur ítrekað sagt að enginn vandi sé að lífga peningana við og hann tjáir sig um það síðast í dag, 17. júní 2010:
"Góðærið 19952004 átti sér eðlilegar skýringar, ekki síst þá, að dautt fjármagn lifnaði við, um leið og það komst í eigu einstaklinga". (Tilvitnun sótt HINGAÐ)
.............................
En það er sama hversu mikið ég reyni og reyni, mínir aurar eru eins steindauðir og risaeðla á gapastokk.
.
.
Björgólfur sendi sína milljarða til peningahimna þegar þeir dóu.
Hvað á kona að gera sem er kannski búin að ganga með lík í buddunni í marga mánuði ?
Það er hrikalega erfitt að átta sig á hvenær best er að jarðsetja fjármagnið því ég hef ekki hugmynd um hvenær þúsundkallarnir dóu.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.6.2010 | 20:44
Æ, ég ætlaði að blogga í morgun.......
.......... en svo gleymdi ég því.
.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.6.2010 | 22:23
Ég var leiðinleg.
Í vetur var ég atvinnulaus.
Það var verulega fínt fyrsta mánuðinn.
Ég gat dúllað mér og dinglað mér og hvílt mig svo lengi á eftir.
Næstu þrjá mánuðina hafði ég það bara alveg ágætt með sjálfri mér.
En fimmti mánuðurinn var ekkert sérlega góður.
Ég er að segja ykkur það að eftir tæplega hálft ár með mér einni, var ég orðin hundleiðinleg.
Sem betur fer er til lækning við leiðindum. (ég vissi það ekki fyrr en nýlega)
.
.
Öll leiðindi taka endi um síðir.
Ég er farin að vinna og orðin þokkalega skemmtileg aftur.
- Finnst mér -
Nú.
Þar sem ég er nýlega orðin skemmtileg, ætla ég að njóta mín í sumar - við vinnu - með fjölskyldunni - með dýrunum - í sólbaði - og kannski líka fyrir framan spegilinn.
.
.
Og ég verð lítið í tölvunni !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.5.2010 | 20:43
Sjö þúsund orð.
Mynd segir meira en þúsund orð. Þetta verður því langt bogg eða ígildi sjö þúsund orða.
.
Á há Lágheiðinni.
.
Skúrir í Grennd. Fyrir þá sem ekki vita, er Grennd í Húnavatnssýslum. Og þar eru alltaf skúrir.
.
Í baði.
.
Í körfu.
.
Í slökun.
.
Í skál.
.
Þess má geta að öll dýrin komu sér þarna fyrir af sjálfsdáðum.
.
Óskaðu þér.
.
18.5.2010 | 10:27
Töffarinn.
Um síðustu helgi voru Raftarnir með vel heppnaða bifhjólasýningu í Borgarnesi.
Sonur minn, sem er í Röftunum, gekk á sínum tíma í Húsmæðraskólann á Hallormsstað og þar lærði hann að prjóna.
.
.
Sjáiði hvað hann er flottur ! Algjör töffari.
.
Töffaragenin hefur hann í beinan kvenlegg frá móður sinni.
.
.
Þessi mynd er tekin fyrir rúmlega korteri úr öld. Þarna situr mömmutöffarinn á Suzuki 50 hjólinu sínu.
Mömmutöffarinn gleymir því aldrei þegar hún var að hjóla um götur Akranesbæjar í hálku og lenti á rauðu ljósi. Þegar stigið var ofurvarlega á bremsurnar rann afturhjólið í fallegum boga upp að hlið framhjólsins og mömmutöffarinn fór hægt en virðulega á hliðina, hvar hún skautaði á hliðinni - með reisn - yfir rauð ljós og út á mið gatnamót.
.
Djöfull var það töff !
.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.5.2010 | 10:00
Ungviði.
Hvað er það sem heillar svo við smábörn, hvolpa, kettlinga, apaunga og folöld ?
.
.
Ég held að það séu leikgleðin og sakleysið.
.
Hver kannast ekki við litlu stúlkuna -sakleysið uppmálað - sem spyr móður sína í sundlaugarklefanum: "af hverju er konan þarna með svona stór brjóst"?
Já, börnin segja kannski ekki alltaf það sem við viljum heyra - en þau segja það sem þau meina. Við þurfum að læra það af þeim. Að segja það sem við meinum og standa við það. Vera sönn.
Væri ekki heimurinn miklu betri ef börnin stjórnuðu honum ?
.
.
Við fullorðna fólkið eigum ekkert erindi upp á pall með okkar græðgi, valdsýki og eiginhagsmunapot.
Við erum bara snargalin.
.
.
Ungviðið er alltaf svo yndislegt. Nema kannski fiskar.
10.5.2010 | 14:24
Bíddu.
Ég þekki ekki einn einasta mann sem finnst skemmtilegt að bíða.
Það er mér hulin ráðgáta hvaða galgopi fann upp fyrirbærið BIÐ.
Einhverjir toppuðu svo fíflaganginn og fundu upp biðstofur, biðskýli og biðraðir.
Sérhannaðir staðir til að bíða og bíða og bíða og bíða. Hversu gáfulegt er það ?
.
Það er til fullt af fólki sem er búið að bíða í 20 ár eftir því að finna elskuna sína.
Aðrir bíða alla ævi eftir því að fá happadrættisvinning.
Bíða eftir kaffinu
- klósettinu
- fréttunum
- símhringingu
- þvottavélinni
- rigningunni.
Menn bíða meira að segja eftir því að komast til tannlæknis.
.
.
Þegar orðið bíða er "gúgglað" koma 7.970.000 niðurstöður. Bara á Íslandi !
Það eru bókstaflega allir að bíða og rúmlega það.
Ertu kannski að bíða eftir því að ég bloggi gáfulega ?
.
NOT !
4.5.2010 | 15:49
Vanhæfir flokkar.
Þegar íslenska handboltalandsliðið spilar á heimsmeistaramótum, stendur þjóðin öll á bakvið strákana. Þá stöndum við saman, Íslendingar. En það er u.þ.b. í eina skiptið sem þjóðin stendur saman.
Við rekstur okkar sameiginlega fyrirtækis, ríkisins, er hver höndin upp á móti annarri.
Nokkrir flokkar sjá um að reka "fyrirtækið" Ísland og þeir gera það ekki í neinni sátt. Leðjuslagur á milli flokka yfirtekur alla umræðu á Alþingi og hagsmunir þjóðarinnar víkja fyrir hagsmunum flokkanna.
Hvaða vit er í svona rekstri ?
.
.
Hefur engum dottið í hug að reka samfélagið eins og fyrirtæki ?
Við kjósum okkur framkvæmdastjóra, fjármálastjóra og stjórn og þau ráða síðan inn hæfa sérfræðinga til að leysa ýmis flókin mál í rekstrinum. Þau myndu vera - ólíkt núverandi skipulagi - öll í sama liði.
Hagsmunir þjóðarinnar væri sameiginlegt markmið þeirra.
Nú segja einhverjir að þetta sé ekki hægt. En flest er framkvæmanlegt, sé til þess vilji. Og við erum komin á þann tímapunkt að við verðum að breyta.
Tíunda stærsta fyrirtæki heims árið 2009 er fyrirtækið Toyota í Japan. Þar starfa 320.000 manns. Svipaður fjöldi og öll íslenska þjóðin. Smæðin í íslensku samfélagi hefur reynst okkur dýrkeypt en við getum líka nýtt okkur hana á jákvæðan hátt.
Breytum stjórnarháttum á Íslandi og förum að standa saman.
Leggjum niður flokkakerfið.
.
.
Hér er afar áhugaverð grein Illuga Jökulssonar um klíkuskap.
Hér skrifar Daði Ingólfsson en hann var gestur í Silfri Egils um helgina.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði